Síða 1 af 1
Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:26
af dedd10
Sælir,
Ekki vill svo til að einhver hérna viti um forrit fyrir Mac eða Windows til að ná í, í heilu lagi, útvarps eða sjónvarpsþætti af visir.is ?
Langar að vera með þetta í tölvunni og svo jafnvel skella einum og einum útvarpsþætti á ipodinn hehe,
Vitiði um eitthvað svona eða tækni til að nálgast þetta?
Takk!
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:33
af kubbur
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:36
af GullMoli
kubbur skrifaði:http://mac.vaktin.is/
....
"Ekki vill svo til að einhver hérna viti um forrit fyrir Mac
eða Windows"
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:36
af dedd10
Afhverju á þetta ekki heima hér ?
Okey þá hérna: Windows EÐA mac
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:37
af GullMoli
dedd10 skrifaði:Afhverju á þetta ekki heima hér ?
hann er bara eitthvað að bulla, skiptir ekki máli.
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:55
af BjarkiB
Hvaða player er notaður til að spila þetta á vísir?
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 15:59
af dedd10
Það er held ég Windows Media player
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 16:05
af BjarniTS
hidownlod
Hef notað það oft til að sækja kompás þætti hér áður.
Það er fyrir win , stundum vesen að græja réttu video Url-in , en reddaðist alltaf fyrir rest hjá mér.
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 16:11
af dedd10
Já, ég hef verið að nota Hidownload en nú er það einhvernvegin ekki að virka :O
Hvað hefur þú gert þegar þú hefur ekki náð að ná í eitthvað?
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 16:22
af andribolla
Djövull væri eg til í að getað náð í harmageddon og haft það á ipodinum minum i vinnuni !
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 16:29
af dedd10
Nákvæmlega!,
Ætlaði einmitt að ná í svona þætti til að tefja tímann í leiðinlegri vinnu
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 17:00
af jagermeister
dedd10 skrifaði:Nákvæmlega!,
Ætlaði einmitt að ná í svona þætti til að
tefja tímann í leiðinlegri vinnu
tefja tímann segirðu ef svo er mæli ég með sjálfstæðu fólki, sá þáttur finnst mér alltaf vera í 3 tíma
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 17:05
af dedd10
ahhh, átti að vera "drepa tímann" :=)
en einhver með lausn til að nálgast svona efni af visir.is ?
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 18:48
af Pandemic
Notar bara VLC
File - Open Advanced - Network - lítill flipi við hliðina á Play og ferð í Convert.
Velur sourceið frá vísi.is og Destination file og setur bara .mp3 ef þú ert að taka útvarpsþátt. og velur mp3 sem profile.
hakaðu svo við Display the output og Start.
Svo geriru bara Stop á vlc þegar þú ert búinn. Passaðu þig samt á að gera ekki Play aftur því þá tekur hún yfir skránna.
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 19:34
af dedd10
Ok, er búinn að vera prufa þetta,
T.d á þennan þátt hérna:
http://vefmidlar.visir.is/VefUtvarp/?ch ... 2c004d0afeVirðist ekki vera að virka, geturu einhvernvegin náð þessu inn hjá þér eða?
Kannski taka screen hvernig og svona ef þú nærð því?
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 20:02
af Pandemic
Ertu ekki bara að taka vitlausan straum
þetta er straumurinn
http://vefmidlar.visir.is/sources/92a22 ... 4d0afe.asx
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 20:18
af dedd10
Jú, ætli það ekki
Þetta tekur svo langan tíma samt haha,
tók aðeins 3-4 min með Hidownload.
en er hægt að taka nokkra þætti í einu eða ?
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 20:21
af Pandemic
Þarna ertu bara að taka strauminn í rauntíma, eflaust til sniðugri lausnir en þessi er mjög einföld og þæginleg ef maður vill ná stuttum brotum.
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 21:32
af BjarniTS
dedd10 skrifaði:Jú, ætli það ekki
Þetta tekur svo langan tíma samt haha,
tók aðeins 3-4 min með Hidownload.
en er hægt að taka nokkra þætti í einu eða ?
Afhverju sækir þú ekki bara Hidownload bara upp á nýtt eða eitthvað ?
það forrit virkar 100% í svona , hvernig lýsir bilunin sér hjá þér ?
Re: Forrit til að ná í TV/útvarpsþætti af Vísi?
Sent: Sun 18. Júl 2010 21:48
af dedd10
Heyrðu!
Það var greinilega eh vesen með WMP í firefox hjá mér og ég eyddi því út og setti aftur upp, nú get ég náð í þetta allt með Hidownloader
Takk samt fyrir allt hitt...
Eru þið samt með eitthvað gott forrit til að converta .wmv yfir í .mp3 ?
(Helst fyrir Mac) en win er í lagi...
Ætla að henda þessu inná ipod...