Síða 1 af 1

Win XP Home OEM

Sent: Mán 09. Feb 2004 04:10
af MadDog
Ég er að spá að uppfæra stýrikerfið mitt(er með win98),en það kostar um 30.000kr nema maður kaupir nýja tölvu,þá er hægt að kaupa OEM útgáfu sem kostar kostar bara um 10.000kr.
Svo ég var að spá hvort maður mundi uppfæra tölvuna með því að kaupa sér nýtt móðurborð,örgjörva og vinnsluminni hvort það minndi reiknist sem ný tölva og maður mæti þá kaupa OEM?

Sent: Mán 09. Feb 2004 09:06
af gumol
Jú, örugglega. Hringdu bara og spurðu til að vera alveg viss.

Sent: Þri 10. Feb 2004 08:49
af Cras Override
en afhverju kostar win svona mikið. bara smá pæling og svo líka smá hint fáðu þér bara origisafrit af því eithverstaðar lána hjá vini eða eithverjum.

Sent: Þri 10. Feb 2004 14:51
af ICM
Windows kostar ekki mikið. Þú ert kanski að kaupa smá forrit á 2.500 - 1.2000 kr. samt eru það forrit langt frá því að vera eins flókin og stýrikerfi. Mín skoðun er að windows er frekar ódýrt, og hafið það í huga að aðeins 20% af þeim sem eru með PRO þurfa það, 80% kæmust vel af með home.

Sent: Fim 12. Feb 2004 16:58
af Rikkinn
Svona til fróðleiks... hver er í raun munurinn á Home og Pro?

Sent: Fim 12. Feb 2004 17:10
af Spirou
Rikkinn skrifaði:Svona til fróðleiks... hver er í raun munurinn á Home og Pro?


Ég er nú ekki með neinn tæmandi lista en af minni reynslu er eftirfarandi ekki í Windows XP Home:

Windows IIS fylgir ekki.

Security flipinn í explorer er ekki til staðar, þannig að þú getur ekki tekið réttindi af ákveðnum möppum, þannig að þú getur ekki falið pronið frá mömmu þinni. Réttindi eru samt til staðar en þú getur bara ekki breytt þeim nema að fara inn sem admin í gegnum safemode. Þú getur reyndar tekið mydocuments og gert þau "private" en ég hef ekki hugmynd um hversu mikið private það er.
Svo er Domain support eitthvað takmarkað, veit ekki alveg hvað er málið , en þetta lýsir sér þannig að Windows býður ekki upp á að muna lykilorð inn á share á öðrum tölvum, en á samt ekki í neinum vandræðum með að accessa það(þú þarft bara að slá inn lykilorðið aftur).

Sent: Fim 12. Feb 2004 17:21
af viddi
Spirou skrifaði:Security flipinn í explorer er ekki til staðar


hvar er þessi flipi í xp pro ?

Sent: Fim 12. Feb 2004 17:41
af ICM
kallar mínir hafiði aldrei kíkt á http://www.microsoft.com/windows?

Sent: Fim 12. Feb 2004 18:48
af Spirou
viddi3000 skrifaði:
Spirou skrifaði:Security flipinn í explorer er ekki til staðar


hvar er þessi flipi í xp pro ?


Explorer ->hægri clickar á skrá/dir og velur properties og þar er security flipinn. Þessi flipi er bara ekki í XP Home

Sent: Fim 12. Feb 2004 18:53
af Demon
Rikkinn skrifaði:Svona til fróðleiks... hver er í raun munurinn á Home og Pro?


Win XP Pro styður 2 örgjörva meðan Home styður bara einn og eitthvað af þeim möguleikum sem eru fyrir admin á pro eru takmarkaðir eða ekki til staðar í home líkt og annar vaktarmaður sagði hér áður

Sent: Fös 13. Feb 2004 17:29
af bizz
Ég hef aðallega rekið mig á muninn í network hlutanum...

Sent: Fös 13. Feb 2004 17:45
af Demon
bizz skrifaði:Ég hef aðallega rekið mig á muninn í network hlutanum...


Hmm, hvað var það aftur?

Sent: Fös 13. Feb 2004 17:58
af ICM

Sent: Fös 13. Feb 2004 20:56
af gnarr
Demon skrifaði:
Rikkinn skrifaði:Svona til fróðleiks... hver er í raun munurinn á Home og Pro?


Win XP Pro styður 2 örgjörva meðan Home styður bara einn og eitthvað af þeim möguleikum sem eru fyrir admin á pro eru takmarkaðir eða ekki til staðar í home líkt og annar vaktarmaður sagði hér áður


styður xp home þá ekki HT ?

Sent: Lau 14. Feb 2004 13:41
af Demon
ekki alveg viss...svolítið langt síðan ég skoðaði hver munurinn var virkilega á milli kerfanna...og þá voru hyperthreading örgjörvar ekki í almennri notkun.