Síða 1 af 1

Smá aðvörun varðandi ljós hjá vodafone.

Sent: Lau 12. Jún 2010 09:49
af Alien8
Þannig er mál með vexti að ég tek ljós og heimasíma hjá vodafone í byrjun des síðastliðnum.

Reikningarnir sem ég var að fá voru engan vegin að stemma við það sem ég átti von á, ég var bara ekki að nenna að grafa dýpra og bera saman fyrr en í dag, þegar ég var búinn að klára 6 mánaða samninginn við OR.

tölurnar eru þessar

NET : uppgefið verð - 5080 - Raunverulegur reikningur - 5333 (við bættist leiga á router sem ekki var tala um í upphafi)
Heimasími : Uppgefið verð, grunngjald 800 + notkun (afar, afar lítil) - Raunverulegur reikningur 3200 - 3400 (með notkun)
Gagnaveitan : uppgefið verð 2410 - Núverandi verð 2661 (Vísitölu hækkun)

Þannig að ég hringdi og spurðist fyrir um þennan háa reikning fyrir heimasímann, sem mér fannst alveg út úr kú.

Kom í ljós að síðustu 6 mánuði hef ég verið að borga 2800 í grunngjald fyrir heimasímann í stað þess 800 sem ég pantaði, s.s. .... c.a. 12.000 ofgreitt.

Þau voru öll af vilja gerð og ég er búinn að fá þetta endurgreitt, en vil bara vara fólk við að borga reikninga sem það er ekki sátt við eða kannast ílla við upphæðir á. Ef þú borgar reikning þá ertu í raun að samþykkja upphæðina og 3 mánuðum seinna áttu ekki rétt á endurgreiðslu samkvæmt lögum, ég var bara staðfastur og fékk þannig leiðréttingu lengra aftur í tímann...... EN passið ykkur.

DD

Re: Smá aðvörun varðandi ljós hjá vodafone.

Sent: Lau 12. Jún 2010 14:02
af spankmaster
Jamm ég er hjá vodafone (ekki með ljós samt, bara allt í gulli) og lenti í svipuðu, fyrir ekki svo löngu. Kom í ljós þegar ég fór að skoða reikningana mína að ég var búinn að vera að borga dulítið meira en auglýst var, en ég gerði það sama og þú, hringdi í vodafone og tuðaði aðeins (mjög kurteis samt, það borgar sig alltaf) og málinu var bara reddað eins og skot, ég fékk bara næsta mánuð frítt og svo afslátt þann næsta þangað til allt var komið á núll. Og þetta hefur verið í lagi síðan.

En ég hef heyrt svipaðar sögur víðar, meira segja frá starfsmanni Vodafone, það virðist vera nokkuð algengt að þeir rukki mann meira en um var samið í upphafi, en samt ennþá þokkalega sáttu við þá þjónustu sem ég hef fengið hjá þeim hingað til :)