Síða 1 af 1
Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 14:54
af PepsiMaxIsti
Góðan dag
Mig langar að spyrja ykkur hvort að þið vitið um gott forrit til að laga til í tónlista safninu hjá manni. Ég er með fullt af diskum sem að mig langar að laga, laga ID-tagið á þeim, nenni ekki að gera það við hvert og eitt í einu.
Kv. PepsiMaxIsti
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 15:15
af Lexxinn
Ég er dáldið sammála þessu og vantar þetta líka er með yfir 15 gb af tónlist í tölvunni og vantar smá flokkun og endurröðun á það.
En annars frítt Bumb.
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 15:20
af hauksinick
ég er með rétt yfir 100 gb af tónlist,tónlistin sem er ekki svona organized bara hlusta ég nánast ekkert á,,,,vantar svona forrit,
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 15:21
af Bioeight
iTunes gerir þetta að einhverju leyti, hægt að breyta nafni á höfundi, diski, lagi á mörgum lögum í einu. Ég komst reyndar að því seinna að iTunes ruglaði öllu möppuskipulaginu mínu líka. Hlýtur að vera hægt að gera þetta án þess að gera það, maður þarf bara að vita hvað maður er að gera. Skoðaði mörg önnur forrit til að checka hvort það væri til eitthvað þægilegt og gott en fann ekkert.
Síðar komst ég að því að það er hægt að gera þetta bara beint í Windows Explorer - Properties, í það minnsta í Windows 7. Ég henti þar af leiðandi iTunes og nota bara Winamp og breyti því sem þarf að breyta í Windows Explorer, Music folderinn minn er ennþá í rúst eftir iTunes samt, verð að laga það einhvern tímann.
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 15:30
af PepsiMaxIsti
Jæja eftir að hafa googlað smá meira þá komst ég í tæri við eitt forrit
http://www.collectorz.com/mp3/, sem að ég veit ekki allveg hvort að virkar allmennilega eða ekki, en ætla að gefa því séns og sjá hvort að ég nái ekki að laga til allavega nöfnin á lögunum, laga folderana til seinna. Fann það svo á síðu sjórængjanna og það virkar. Endilega látið vita hvort að þið prufið þetta og hvort að þetta virkar vel fyrir ykkur. Ef að þið vitið/finnið eitthvað annað forrit sem að gerir það sama sem að er betra meigiði endilega láta vita.
Kv. PepsiMaxIsti
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 15:51
af SteiniP
Tag&rename alveg einstaklega þægilegt forrit þegar maður er kominn upp á lag með það
http://www.softpointer.com/tr.htmGetur tekið tags út frá filenames eða af netinu.
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 16:03
af PepsiMaxIsti
SteiniP skrifaði:Tag&rename alveg einstaklega þægilegt forrit þegar maður er kominn upp á lag með það
http://www.softpointer.com/tr.htmGetur tekið tags út frá filenames eða af netinu.
Ertu með einhverja sniðuga síðu þar sem að hægt er að fynna lykil fyrir þetta, þar sem að þetta er bara 30 daga útgáfa
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 16:04
af JohnnyX
TuneUp Media er líka fínt hef ég heyrt. Ekki notast við það sjálfur.
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 16:07
af Leviathan
SteiniP skrifaði:Tag&rename alveg einstaklega þægilegt forrit þegar maður er kominn upp á lag með það
http://www.softpointer.com/tr.htmGetur tekið tags út frá filenames eða af netinu.
Frábært forrit, mæli með því.
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 16:08
af intenz
Ég hef bara notað Winamp hingað til með góðum árangri
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 16:19
af SteiniP
PepsiMaxIsti skrifaði:SteiniP skrifaði:Tag&rename alveg einstaklega þægilegt forrit þegar maður er kominn upp á lag með það
http://www.softpointer.com/tr.htmGetur tekið tags út frá filenames eða af netinu.
Ertu með einhverja sniðuga síðu þar sem að hægt er að fynna lykil fyrir þetta, þar sem að þetta er bara 30 daga útgáfa
minnir að þetta sé nagware, þannig þú getur notað trialið endalaust en það kemur alltaf gluggi þegar þú kveikir á því þar sem þú smellir á "continue testing" eða álíka eftir 30 daga.
annars geturðu bara kíkt á piratebay
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 19:54
af Blues-
Musicbrainz Picard .. rokkar feitt ..
Re: Tónlistar safn, ID tag
Sent: Þri 04. Maí 2010 21:19
af wicket
Musicbrainz og Tag & Rename eru einu forritin sem ég hef prófað. Mæli hiklaust með þeim báðum.
mediamonkey er líka forrit sem að ég hef séð dásamað og menn hafa líka verið að tala vel um þessir fídusar séu flottir í nýjasta Windows Media player (eitthvað sem maður átti ekki von á að heyra).