Síða 1 af 1

Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:05
af playmaker
Daginn.

Nú er ég farinn að hugsa um að uppfæra stýrikerfið mitt úr Xp í Windows 7 enda virðist Windows 7 mun öflugra heldur en Vista nokkurntímann var. Ég hef lesið mér til um að það sé ekkert mál að uppfæra úr Vista yfir í Windows 7 en ef að maður fari úr Xp í Windows 7 þá hreinsist allt út... #-o Finnst það ansi slæmt. Er ekki einhver leið til þess að uppfæra án þess að tapa gögnum? Fróðir vaktarar mega endilega láta vita. :D

p.s. Velur maður hvort maður tekur 32 eða 64 bita uppfærslu þegar maður installar? Sé að uppfærslurnar eru merktar 32/64 eins og t.d. http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1574

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:10
af biturk
það er ekkert spurning um að ef þú ert að skipta um stýrikerfi þá tekuru afrit af gögnum og formatar diskinn, installar nýja stýrkierfinu, driverum, forritum og gögnum og heldur áfram að niðurhalda klámi
:wink:

og til að svara spurningunni enn frekar þá nei, það er ekki í boði að færa úr xp yfir í 7 með uppfærslu, þú tapar bara öllu á því og þú endar líka alltaf með betri tölvu eftir fresh install með formati

Gangi þér vel

ps


þú kaupir bara þá útgáfu sem þú þarft eða niðurhalar á netinu, ef þú ert með ekki yfir 2 gb í minni og ert ekki að fara að stækka þá þarftu ekki 64 bit

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:43
af playmaker
[quote="biturk"]það er ekkert spurning um að ef þú ert að skipta um stýrikerfi þá tekuru afrit af gögnum og formatar diskinn, installar nýja stýrkierfinu, driverum, forritum og gögnum og heldur áfram að niðurhalda klámi
:wink:

Ok skil ekki alveg hvað þú ert að reyna að segja mér... það er ekkert spurning um... hvað....? Ég er viss um að það er svar þarna einhversstaðar, er bara ekki alveg að ná því. Ég vil fá 64 bita því ég er með 4gb af minni. Það stendur að þessi uppfærsla virki frá Xp sem ég linkaði. Þarf ég eitthvað dýrara en uppfærslu?

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:47
af AntiTrust
Það er ekki í boði að framkvæma "Upgrade" úr XP í W7, eingöngu úr Vista í W7. Þú þarft að strauja vélina þína, engin önnur leið.

Svo gleymdu Upgrade pökkum, þú verður að kaupa OEM (ef þú ert heppinn) eða retail útgáfu. Mæli hiklaust með 64bit, ef þú þarft að velja á milli.

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:47
af biturk
skoh


að mínu mati ef þú ert að skipta um stýrikerfi þá formatar maður, þú ert þá að byrja uppá nýtt með öll forrit og allt og tölvan eins hraðvirk og hún getur verið í rauninni því það er ekkert óþarfa sem er að trufla eða eiðileggja vinnsluna


að sjálfsögðu færðu þér 64bita fyrst þú ert með 4gb í minni


það er ekki í boði að uppfæra úr xp yfir í 7, bara úr vista

vona að þetta sé skiljanlegt núna.


í raunni, þá þarftu bara að formata og installa uppá nýtt í stuttu máli :wink:

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:54
af playmaker
Leo Getz! Furðulegt að tala um uppfærslu þarna frá Xp í linukum sem ég linkaði fyrst það virkar ekki finnst mér. Þá er bara að strauja og setja upp 7 frá grunni. Er einhver leið til að færa forritin úr Xp yfir í nýja settuppið eða þarf maður að ná í allt upp á nýtt?

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:57
af AntiTrust
playmaker skrifaði:Leo Getz! Furðulegt að tala um uppfærslu þarna frá Xp í linukum sem ég linkaði fyrst það virkar ekki finnst mér. Þá er bara að strauja og setja upp 7 frá grunni. Er einhver leið til að færa forritin úr Xp yfir í nýja settuppið eða þarf maður að ná í allt upp á nýtt?


Færir ekki forrit sem slík (nema í undantekningartilfellum þegar þau eru standalone). Annars færiru bara install file-a á milli véla.

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 11:58
af playmaker
AntiTrust skrifaði:
playmaker skrifaði:Leo Getz! Furðulegt að tala um uppfærslu þarna frá Xp í linukum sem ég linkaði fyrst það virkar ekki finnst mér. Þá er bara að strauja og setja upp 7 frá grunni. Er einhver leið til að færa forritin úr Xp yfir í nýja settuppið eða þarf maður að ná í allt upp á nýtt?


Færir ekki forrit sem slík (nema í undantekningartilfellum þegar þau eru standalone). Annars færiru bara install file-a á milli véla.


Takk

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 12:00
af SteiniP
þú getur í rauninni notað upgrade pakkann ef að XP uppsetning er til staðar á harða disknum
Þá er öll gamla uppsetningin sett í möppu sem heitir windows.old en ég myndi samt taka backup af öllu til öryggis.

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 12:48
af playmaker
Ef það er hægt að uppfæra er það þá ekki mun sniðugra því uppfærslur eru þónokkuð ódýrari en retail?

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 12:51
af SteiniP
playmaker skrifaði:Ef það er hægt að uppfæra er það þá ekki mun sniðugra því uppfærslur eru þónokkuð ódýrari en retail?

Jú, en gallinn við það er að þú getur ekki gert clean install með upgrade disknum án þess að standa í einhverju veseni.

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 12:55
af playmaker
Hehehe já ég held bara að maður kaupi OEM. Veit einhver hvar maður færi Windows 7 á besta verðinu?

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 13:00
af teitan
playmaker skrifaði:Hehehe já ég held bara að maður kaupi OEM. Veit einhver hvar maður færi Windows 7 á besta verðinu?


http://buy.is/category.php?id_category=20

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 13:03
af playmaker
teitan skrifaði:
playmaker skrifaði:Hehehe já ég held bara að maður kaupi OEM. Veit einhver hvar maður færi Windows 7 á besta verðinu?


http://buy.is/category.php?id_category=20


Sem sagt 30.000 kall fyrir Home premium sem styður 64 bit. Roger

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 13:25
af IL2
SteiniP skrifaði:þú getur í rauninni notað upgrade pakkann ef að XP uppsetning er til staðar á harða disknum
Þá er öll gamla uppsetningin sett í möppu sem heitir windows.old en ég myndi samt taka backup af öllu til öryggis.


Passar. Þú getur náð í öll gögn en engu breytt eða unnið með þau.

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 19:38
af Danni V8
playmaker skrifaði:
teitan skrifaði:
playmaker skrifaði:Hehehe já ég held bara að maður kaupi OEM. Veit einhver hvar maður færi Windows 7 á besta verðinu?


http://buy.is/category.php?id_category=20


Sem sagt 30.000 kall fyrir Home premium sem styður 64 bit. Roger


Ef þú kaupir Retail þá færðu reyndar bæði 64bit og 32bit diska, en ég sé ekki hvers vegna einhver myndi vilja nota 32bit diskinn :?

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 19:49
af bAZik
Danni V8 skrifaði:Ef þú kaupir Retail þá færðu reyndar bæði 64bit og 32bit diska, en ég sé ekki hvers vegna einhver myndi vilja nota 32bit diskinn :?

Því sumir eldri örgjörvar eru ekki með x64 stuðning.

Re: Uppfærsla í Windows 7 úr Xp

Sent: Mið 21. Apr 2010 20:46
af Nariur
það er hægt að setja 7 upp venjulega frá grunni af upgrade diski. Í pakknum sem þú kaupir eru 2 diskar, 1 32bit og hinn 64bit.