Síða 1 af 1
Gera java executable
Sent: Mið 14. Apr 2010 23:49
af KermitTheFrog
Er einhver vakandi? Ég er að reyna að búa til skrá úr því sem ég geri í Dr. Java sem er hægt að runna bara með því að opna hana. Ég er búinn að gera eins og
hérna en þegar ég runna .bat skránna þá opnast cmd gluggi í brot af sekúndu og svo gerist ekkert.
Vantar smá hjálp...
Re: Gera java executable
Sent: Mið 14. Apr 2010 23:53
af intenz
Ekki opna bat skránna, keyrðu command line.
Re: Gera java executable
Sent: Fim 15. Apr 2010 00:03
af KermitTheFrog
Það kemur bara "javac is not recognized..."
eða er ég að gera eitthvað vitlaust?
Re: Gera java executable
Sent: Fim 15. Apr 2010 00:08
af dadik
Þú getur leyst þetta með því að setja readln neðst í kóðann hjá þér. Þá bíður forritið eftir að þú sláir á enter áður en það hættir.
Þú getur líka keyrt þetta úr command line en þarft líklega að gefa upp allan path-inn - c:\program files\java\ ...
Svo notarðu ekki javac til að keyra þetta heldur java (javac er þýðandinn).
Re: Gera java executable
Sent: Fim 15. Apr 2010 00:11
af KermitTheFrog
já, ég er að reyna að búa til .jar skrá samkvæmt þessu tutoriali en þegar ég keyri .bat skránna eins og er sagt þá verður ekki til þessi DiveLog.jar skrá.
EDIT: ég held ég sé að misskilja tutorialið smá. Ætla að prufa eitt.
Re: Gera java executable
Sent: Fim 15. Apr 2010 00:13
af dadik
Peistað þessu bara línu fyrir línu í command prompt, þá sérðu hvað er að klikka.
Re: Gera java executable
Sent: Fim 15. Apr 2010 00:18
af KermitTheFrog
Sé ekki hvernig ég á að gera það. Það eru bara 2 línur sem ég set í þessa .bat skrá. Á að vera eitthvað meira þar?
EDiT: Er þetta DiveLog eitthvað sem ég þarf að hafa installað eða?
Re: Gera java executable
Sent: Sun 18. Apr 2010 20:01
af KermitTheFrog
Enginn með lausn?
Re: Gera java executable
Sent: Sun 18. Apr 2010 21:24
af jakobs
Ertu búinn að installa java compiler?
Re: Gera java executable
Sent: Sun 18. Apr 2010 22:50
af KermitTheFrog
Já, ég get notað Dr. Java. Það þarf compiler til að geta notað það.
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 00:25
af 1Snorri
Mig grunar að javac sé ekki í enviroment variables hjá þér.
http://java.sun.com/docs/books/tutorial ... index.html Þetta reddar þér vonandi. Nema ég hafi misskilið þig allsvakalega
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 00:32
af 1Snorri
Ætti bat skráin ekki að vera svona?
javac DiveLog.java
jar cvfm DiveLog.jar mymanifest.txt DiveLog.class DiveLog$1.class DiveLog$2.class Welcome.class
pause
bætti við .txt á manifest og pause, bara uppá að sjá villuskilaboð ef einhver, virkaði fínt hjá mér
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 09:26
af KermitTheFrog
Þetta er það sem ég fæ
- javabrund.PNG (17.1 KiB) Skoðað 1665 sinnum
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 10:03
af 1Snorri
Já þetta er bara alveg eins og ég sagði að windows skilur ekki javac skipunina. þarft að setja það sjálfur.
http://java.sun.com/javase/6/webnotes/i ... ndows.htmlþarna er þetta nákvæmar hinn linkurinn var kannski ekkert svo góður. liður nr.4 og þú vilt gera set PATH permanently.
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 10:06
af Daz
Þú ert ekki með java bin í bath (s.s. td. path=c:\java\jdk1.6_17\bin )
Getur skrifað path í command promptið og þá sérðu hvað er í path hjá þér. (Path er shortcut, allt sem er í path er hægt að keyra hvar sem er). Til að stilla path svo hann sé fastur (í windows xp og uppúr í það minnsta): Hægri smella á my computer, properties, advanced, environment variables. Finna í system variables "path" velja edit og bæta inn fullum path í bin möppuna í java uppsetningunni þinni (aðgreint með ; )
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 17:34
af KermitTheFrog
Ok, núna allavega compilar hún. En ég sé hvergi DiveLog.jar sem á að creatast við þetta.
EDIT: jú
Og ef ég skil þetta rétt þá á ég að peista kóðann úr Dr. Java inn í þessa .jar skrá?
EDIT2: Jæja, þetta er komið
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 20:23
af Daz
Þú lætur javac(.exe) vinna á java kóðanum þínum og búa til úr því jar skrá (compælar kóðanum í jar). Svo geturðu executað jarið með java(.exe). Ég hefði haldið að allt þetta væri hægt inn í Dr. Java umhverfinu (þetta er hægt í textpad!)
Re: Gera java executable
Sent: Mán 19. Apr 2010 20:47
af KermitTheFrog
Ég er búinn að ná þessu núna