Síða 1 af 1

Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Mið 31. Mar 2010 02:19
af DoofuZ
Veit einhver ykkar um eitthvað svona desktop wallpaper forrit sem hægt er að stilla þannig að það setji ákveðna mynd eða ákveðnar myndir (sem er þá skipt á milli reglulega) eftir því hvaða dagur er? Ég er nefnilega að fikta aðeins við að gera nokkrar skemmtilegar bakgrunnsmyndir sem tengjast allar uppáhaldsþáttunum mínum og langar svoldið að hafa það t.d. þannig að þá daga sem nýr 24 þáttur er sýndur þá setji forritið inn myndir tengdar 24. Það væri ennþá betra ef það væri scriptable forrit, þar sem væri þá hægt að láta það t.d. athuga dagskránna og skipta um mynd eftir henni, en ég stórefast þó að svoleiðis forrit sé til :roll:

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Mið 31. Mar 2010 14:26
af DoofuZ
*BÖMP* ? 8-[

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Mið 31. Mar 2010 14:44
af hagur
Þetta er ideal DIY project maður :8)

Ertu ekkert að fikta við forritun?

Það er frekar auðvelt mál að stilla wallpapers í t.d .NET C#:

http://blogs.msdn.com/coding4fun/archiv ... 12569.aspx

Endalausir möguleikar, hægt að scrape-a myndir af t.d TV.com og skoða episode schedule til skipta um wallpaper sjálfkrafa eftir dagskrá eins og þú segir.

Þegar eitthvað forrit er ekki til, þá bara "roll your own". Það hef ég a.m.k gert hingað til.

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Mið 31. Mar 2010 23:32
af DoofuZ
Tja, bjóst nú einmitt við því að það væri líklega ekki til svona forrit :? Er bara ekkert svakaflinkur í forritun nema í php og ekki get ég nú gert svona forrit í php :roll: Hef samt aðeins fiktað mig áfram í Delphi en .NET er nú eitthvað sem ég hef bara engan áhuga á að koma nálægt, og þegar áhugi er ekki til staðar hjá mér þá get ég yfirleitt ekki lært neitt 8-[

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Fim 01. Apr 2010 23:31
af starionturbo
Ég er alveg til í að mixa svona forrit fyrir þig í C# dot net ef þú vilt :)

Til að gera þetta eins einfalt og hægt er, gerum við í raun bara deamon sem runnar í background, loadar myndir úr möppu með ákveðnu mysql timestamp bara.
t.d. 2010-04-01.(jpg|png|gif|bmp)
Skipta klukkan 00:00 or some :)

Geta dundað mér í þessu á mánudaginn næsta :)

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Lau 03. Apr 2010 16:04
af DoofuZ
Já takk æðislega fyrir það! :D Ágætis hugmynd hjá þér en ég er meira að skýra myndirnar mínar "Lost 1.jpg", "Lost 2.jpg", "Flashforward 1.jpg" o.s.frv.

Draumaforritið væri því meira þannig að það gæti t.d. lesið úr skrá, eins og config.ini, þar sem væri listi yfir myndir sem maður myndi vilja fá t.d. eftir dögum. Þá kæmi kannski í skránni [monday] og þar fyrir neðan image1=slóð-á-mynd og image2=slóð-á-mynd fyrir neðan það o.s.frv.

En svo væri ennþá betra ef það væri jafnvel hægt að láta forritið fá upplýsingarnar um hvaða myndir ætti að sýna á hvaða dögum eftir því hvað væri í dagskránni, eins og t.d. á on-my.tv síðunni. Kannski bara spurning um að láta forritið bara sjá um að setja ákveðna mynd í bakgrunn eftir argumentum sem maður myndi gefa því og þá gæti maður t.d. látið eitthvað php-script sjá um að ná í dagskránna, velja mynd og senda það svo á forritið sem myndi þá sjá um rest :)

Kannski svoldið klikkaðar hugmyndir hjá mér en ég er fullur af allskonar svona hugmyndum 8-[

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Mán 05. Apr 2010 20:40
af TDK(nxt)
Ef ég man rétt getur DisplayFusion Pro gert þetta. Er ekki 100% á því samt.

Re: Scriptable wallpaper forrit eða eitthvað í þeim dúr

Sent: Lau 24. Apr 2010 12:25
af guttalingur
var að verða búinn með akkurat þetta í c# .net 3.5
var ekki mikið sem átti eftir að klára einhvað þó

skal reyna að klára það :)