Síða 1 af 1

IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Fim 25. Mar 2010 19:58
af Krissinn
Þá er ég loksins búinn að fá búnaðinn frá Símanum og búinn að tengja en hvernig stilli ég hann inná innanhússloftnetskerfið tildæmis fyrir hin herbergin. Til hvers eru þessi loftnet inn og út á honum?

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Lau 27. Mar 2010 23:23
af akarnid
Þessari spurningu er vandsvarað.

Officially, þá virka þau ekki. Eina ástæðan fyrir því að þau eru þarna er sú að Sagem framleiðir lika lykla fyrir DVB-T útsendingar (eins og Digital Ísland) og þeir endurnýta bara sama chassis og vélbúnað, og disable-a bara þetta í firmware-inu.

En ég hef heyrt frá einhverjum sem eru með svona lykla að þeir hafi fengið rásir inn í gegnum þetta, en þá er það aldrei á sömu 'rás' og IPTVið sjálft. Held að þetta geti virkað sem loop put græja, þeas tengja coaxinn inn og svo út aftur í annað tæki eins og video eða DVD upptökutæki. En það væri soldið pointless.

Bottom line, þetta á ekki að virka, og það þýðir ekki að reyna að fá official support á það. Ég gæti vel trúað að Síminn hafi beðið um custom lykla sem væri með þessu portum removed, en Sagem bara sagt þvert nei :)

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Sun 28. Mar 2010 08:01
af Krissinn
akarnid skrifaði:Þessari spurningu er vandsvarað.

En hvernig dreifi ég þá merkinu úr honum í herbergin? Það virkar ekki að tengja jamm í videotæki er búinn að prófa það. Það virkaði einu sinni þegar Síminn var með minni gerðina af þessum afruglurum

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Sun 28. Mar 2010 09:17
af teitan
Þetta er hægt með því að tengja myndlykilinn með Scart í vídeótækið og taka svo loftnetskapalinn úr því yfir í hin sjónvörpin. Þú verður samt alltaf að hafa kveikt á vídeótækinu og hafa það á réttu rásinni til að þetta virki. Þetta er eina leiðin sem ég fann út til að gera þetta.

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Sun 28. Mar 2010 15:28
af Krissinn
teitan skrifaði:Þetta er hægt með því að tengja myndlykilinn með Scart í vídeótækið og taka svo loftnetskapalinn úr því yfir í hin sjónvörpin. Þú verður samt alltaf að hafa kveikt á vídeótækinu og hafa það á réttu rásinni til að þetta virki. Þetta er eina leiðin sem ég fann út til að gera þetta.

Virkar það hjá þér? Hvernig gerðiru það? Ég tengdi í scartið í VCR portið á myndlyklinum og það virkar ekki. Þá kemur einhverjir stafir á skjáinn á myndlyklinum og það er bara svartur skjár. Líka á hinum tv-unum sem ég er að dreifa merkinu á. Video-ið er á AV.

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Sun 28. Mar 2010 17:20
af teitan
Já þetta svínvirkar hjá mér... tengi í VCR á myndlyklinum eins og þú segist hafa gert... ég er með 2 scart tengi og það skiptir engu í hvort ég tengi þau virka bæði. Svo er bara gamli góði coax-kapallinn úr vídeótækinu yfir í hitt sjónvarpið :)

Eina sem mér dettur í hug að gæti verið að hjá þér er að út af einhverju þá sé vídeóið hjá þér ekki að taka við merki frá afruglaranum... :?

Edit: Hvaða stafir koma á skjáinn á afruglaranum?

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Sun 28. Mar 2010 18:31
af Krissinn
teitan skrifaði:Já þetta svínvirkar hjá mér... tengi í VCR á myndlyklinum eins og þú segist hafa gert... ég er með 2 scart tengi og það skiptir engu í hvort ég tengi þau virka bæði. Svo er bara gamli góði coax-kapallinn úr vídeótækinu yfir í hitt sjónvarpið :)

Eina sem mér dettur í hug að gæti verið að hjá þér er að út af einhverju þá sé vídeóið hjá þér ekki að taka við merki frá afruglaranum... :?

Edit: Hvaða stafir koma á skjáinn á afruglaranum?

Skal skoða það á eftir :)

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 00:45
af Krissinn
teitan skrifaði:Já þetta svínvirkar hjá mér... tengi í VCR á myndlyklinum eins og þú segist hafa gert... ég er með 2 scart tengi og það skiptir engu í hvort ég tengi þau virka bæði. Svo er bara gamli góði coax-kapallinn úr vídeótækinu yfir í hitt sjónvarpið :)

Eina sem mér dettur í hug að gæti verið að hjá þér er að út af einhverju þá sé vídeóið hjá þér ekki að taka við merki frá afruglaranum... :?

Edit: Hvaða stafir koma á skjáinn á afruglaranum?

Ertu með nýju eða gömlu gerðina af myndlykli frá þeim? Skoða þetta á mrg :)

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 08:07
af teitan
Ég er með þennan.

Mynd

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 10:50
af Krissinn
teitan skrifaði:Ég er með þennan.

Mynd

Já okey er með eins. Skal tékka á því sem kemur á skjáinn um hádegið, er í skólanum :)

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 12:55
af Krissinn
teitan skrifaði:Ég er með þennan.

Mynd

Það kemur: UCR sýnist mér.

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 17:35
af akarnid
Það er actually VCR, og þýðir bara að þú ert með Scartsnúru tengda í tengið merkt 'VCR' aftan á myndlyklinum :)

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 18:00
af teitan
akarnid skrifaði:Það er actually VCR, og þýðir bara að þú ert með Scartsnúru tengda í tengið merkt 'VCR' aftan á myndlyklinum :)

Sem er dálítið sérstakt þar sem það hefur aldrei komið neitt annað en "tv" á lykillinn hjá mér

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 19:14
af Krissinn
akarnid skrifaði:Það er actually VCR, og þýðir bara að þú ert með Scartsnúru tengda í tengið merkt 'VCR' aftan á myndlyklinum :)

Það verður bara allt svart og það kemur engin mynd :S

Re: IPTV afruglari frá Símanum

Sent: Mán 29. Mar 2010 23:53
af Krissinn
teitan skrifaði:
akarnid skrifaði:Það er actually VCR, og þýðir bara að þú ert með Scartsnúru tengda í tengið merkt 'VCR' aftan á myndlyklinum :)

Sem er dálítið sérstakt þar sem það hefur aldrei komið neitt annað en "tv" á lykillinn hjá mér

Er búinn að redda þessu :D Prófaði annað video og þetta kom strax inn :D Takk fyrir hjálpina :)