Síða 1 af 1

Zyxel powerline ethernet adapter

Sent: Fös 19. Mar 2010 18:55
af kazgalor
Hæhæ, ég er með svona zyxel powerline-ethernet adaptera. Núna undanfarnar vikur hafa þeir verið með stanslaust vesen. Þeir missa samband nokkrum mínútum eftir að ég set þá í samband. Ég fór með þá í tölvulistann og þeir segja að ekkert sé að. ég er búinn að skipta um ethernet kapla og prufa nokkrar innstungur. Ég var að spá hvort þetta geti verið routernum að kenna? ég er með Speedtouch 585 frá Símanum.


Eithverjar hugmyndir?

Re: Zyxel powerline ethernet adapter

Sent: Lau 20. Mar 2010 12:29
af codec
Truflanir í rafmagninu?
Ég er með dlan tæki frá devolo sem voru með stæla en það lagaðist þegar ég uppfærði firmeware. Athugaðu hvort það sé til nýrra firmware á heimasíðu framleiðandans.

Re: Zyxel powerline ethernet adapter

Sent: Lau 10. Apr 2010 01:10
af Le Drum
Hvaða firmware settirðu í græjuna? Og hvar fannstu það? Er að lenda í svipuðum vandamálum.

Re: Zyxel powerline ethernet adapter

Sent: Lau 10. Apr 2010 16:54
af codec
Man ekki alveg hvaða firmware nákvæmlega, bara það nýasta á þeim tíma. Finnur firmware á heimasíðu framleiðandans
http://www.devolo.com