Síða 1 af 1

Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 14:34
af Daði29
Hvernig er með þetta kerfi, ef maður ætlar að kaupa sér nýja leik út úr búð á PC og ætlar aðallega að spila hann á netinu í gegnum multiplayer en sér svo þetta GFWL merki á hulstrinu, getur maður þá bara gefist upp á þessu strax?

Þetta er náttúrulega heimskulegasta drasl í heimi. Er ekki svo að þetta styður ekki Ísland og 165 önnur lönd í heiminum?! Eru þá allir PC leikir sem notast við Games for Windows LIVE ónothæfir hér á landi í multiplayer?

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 14:39
af GullMoli
Ég hef spilað GTA: IV á netinu, virkaði fínt og það einmitt notast við þetta kerfi. Veit ekki hvort það breyti einhverju að ég keypti leikinn á steam.

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 15:31
af Sphinx
já ég er líka að spila GTA IV á netinu gegnum þetta LIVE dót virkar 100% hja mer keypti hann á steam

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 16:21
af Frost
GFWL virkar vel hjá mér.

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 17:04
af bixer
virkar vel hjá mér, spila online í gta 4 ekki keyptur í best buy í usa

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 20:01
af Daði29
Er einhver hérna sem er búinn að kaupa Colin McRae: Dirt 2 á PC og hefur prufað að spila hann online? Virkar það?

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Mið 17. Mar 2010 23:17
af Tiger
Jebb keypti Dirt2 á Steam og hef spilað online og virkar 100%

Re: Games for Windows LIVE

Sent: Fim 18. Mar 2010 01:19
af Danni V8
Keypti GTA IV gegnum Steam, hef spilað online gegnum GFWL, virkar þannig séð vel, en laggið er alveg MADNESS. Ég get ekki ímyndað mér að það sé nokkurntímann skemmtilegt að spila bílaleik online nema vera bara með max 2ms í ping.