Síða 1 af 1
vesen með að seta netið inn
Sent: Lau 20. Feb 2010 22:06
af aggi345
er eiginlega byrjandi á tölvu en langaði að prufa að formate gömlu tölvuni minni.þega ég var búin að formatini og kveikja á henni og var að fara seta netið inn þá er eins og sé ekki driver eða neitt:( .niðrí honninu er oftast svona net dót til að tengja en það er ekki þar og get ekki set það
veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta og gleimndi að seigja að það er eins og það sé ekkert firewall
vona að eitthver kannist við þetta
eða kannski er ég bara svona mikill nýliði
Re: vesen með að seta netið inn
Sent: Sun 21. Feb 2010 00:38
af Nariur
(Ég biðst afsökunar á þessu ef þú ert ekki Íslendingur.) Komdu aftur þagar þú ert búin(n?) að læra íslensku, það er ekki séns að skilja það sem þú ert að segja af því að þú kannt hvorki íslensku né á tölvu, ef þú kynnir annað gæti ég reynt að hjálpa þér.
Annars, hvaða stýrikerfi ertu með?
Re: vesen með að seta netið inn
Sent: Sun 21. Feb 2010 03:40
af Black
Settu upp Windows 7,, greinilega ekki með driverana fyrir netið.. og ert að nota XP,,
Re: vesen með að seta netið inn
Sent: Sun 21. Feb 2010 09:29
af kazgalor
Black skrifaði:Settu upp Windows 7,, greinilega ekki með driverana fyrir netið.. og ert að nota XP,,
Spurning samt ef þetta er gömul vél, þá myndi hún kannski spjara sig betur með XP uppá að verða ekki slow as shit.
Re: vesen með að seta netið inn
Sent: Sun 21. Feb 2010 10:14
af Danni V8
Þú þarft að finna drivera fyrir netkortið í móðurborðinu þínu. Ef þú getur sagt okkur með vissu hvernig móðurborð þú ert með og hvaða stýrikerfi þú varst að setja upp þá er hægt að benda þér á rætta slóð að driverum.
Re: vesen með að seta netið inn
Sent: Sun 21. Feb 2010 12:29
af aggi345
er að seta upp xp og held að bóðurborðið mitt sé Epox 8K3A+
og já er ekki frá íslandi
Re: vesen með að seta netið inn
Sent: Sun 21. Feb 2010 14:08
af Danni V8
Ef það er Epox 83KA+ sem þú ert að setja upp þá er ekki innbygt netkort í móðurborðinu. Þú hlýtur sem sagt að vera með netkort í einni PCI raufinni í móðurborðinu (ef þú hefur verið nettengdur í þessari tölvu áður). Það ætti að vera nóg fyrir þig að finna út hvernig netkort þetta er og leita á Google af "*Nafn á netkorti* drivers XP"