Síða 1 af 1
Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 25. Jan 2010 13:51
af Tiger
Sælir meistara. Ég er búinn að leita hérna með hinum og þessum stikkorðum til að athuga hvort það sé einhverstaðar svar við þessari spurningu minni en finn ekkert.
Ég er með router frá símanum og er með sjónvarp símans líka. En hann er bara með 802.11g þráðlausu og bara 100mbit og er því flöskuháls þegar ég tengi tölvur heimilisins við hann sem eru allar með gbit-lan, er líka með þráðlaust tæki sem er 802.11n, mig langar í gbit router sem er með "n" wi-fi staðlinum. Er einhver leið að skipta honum út og halda sjónvarpi símans líka? Og ef svo er, með hverju mælið þið?
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 25. Jan 2010 14:00
af mic
Þeir eru komir með hann hjá símanum
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 25. Jan 2010 14:05
af mind
Þetta er hægt.
Auðveldasta lausnin er einmitt að fá þennan nýja hjá símanum.
Ef þú varst að hugsa skipta út fyrir annan framleiðanda þá þyrftirðu að fara útí að stilla og binda VLAN á ákveðin port á þeim router fyrir ADSL-Sjónvarpið. Geranlegt, en ekki eins auðvelt og að segja það.
Þá væri næst auðveldasta lausnin eflaust að kaupa bara broadband router(er með WAN porti í stað RJ-11/símalínu).
Svo nota og hafa hann bakvið Speedtouch routerinn(drepur samt á þráðlausa á speedtouch). Þú nýtir hvort eð er bara þessa mögulegu hraðaaukningu innanhúss. Það er þó mismunandi eftir routerum hversu vel þeir taka í að vera raðtengdir.
Algengustu routerarnir á íslandi eru eflaust Zyxel og Speedtouch. Kemur líklega til með að þurfa spreða 15-25þús til að fá alminnilega ADSL/Broadband router. Allt undir því ertu væntanlega einungis á fá sambærilegan búnað.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 25. Jan 2010 14:47
af Tiger
Já ok þannig að síminn er kominn með gbit og n staðal routera? Nú þá er málið leyst
.
Takk
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 25. Jan 2010 17:10
af Tiger
Þeir eru nátturulega hvergi til hjá Simanum og ekkert vitað hvenær þeir eru væntanlegir, what a surprice. Og mér var sagt að þeir afhenda gömlu eins lengi og þeir geta og eiga.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 25. Jan 2010 17:19
af ohara
Þessu nýju routerar eru ekki með gigabit lani, en eru n þráðlausum staðli. Að vísu hefur mér ekki tekist að fá það til að virka.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Þri 26. Jan 2010 08:06
af Tiger
Ég hef á tilfinningunni að upower86 eigi eftir að hverfa héðan nokkuð hratt
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Þri 26. Jan 2010 08:32
af viddi
Snuddi skrifaði:Ég hef á tilfinningunni að upower86 eigi eftir að hverfa héðan nokkuð hratt
Búinn að losa okkur við hann, helv bottar
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Þri 26. Jan 2010 09:27
af GuðjónR
Ég frétti af þessum nýja router fyrir stuttu, hann rýkur út eins og heitar lummur en síminn fær reglulega sendingar.
Hringdu í 8007000 daglega og fáðu þá til að hafa samband við smárann/kringluna og tékka hvort þeir eigi þessa routera.
Farðu svo STRAX á staðinn og náðu í einn þegar þú færð grænt ljós.
Ég náði einum, þurfti reyndar tvær ferðir en það var þess virði, hann er nettari, hvítur og grár á lit, með 2x loftentum og n-staðli.
Hann er líka hraðari út á netið og stabílli.
Gamli routerinn þoldi t.d. ekki 6 þráðlaust tæki, þá slitnaði netsambandið hægri/vinstri, einnig þoldi gamli router ekki dl speed yfir 700 án þess að pixla TV'ið en þessi rýkur upp í 1.4Mbs án þess að pixla Tv og hingað til hefur hann aldrei slitið netsambandið.
7-9-13.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mið 03. Feb 2010 08:34
af akarnid
Fyrir þá sem hafa sérstakan áhuga á því, þá er þessi router að synca mikið betur en fyrri búnaður. Ég sjálfur fór upp um heil 4 Mb í sync bara við að setja hann í samband, og hann heldur sambandi mikið betur.
DMT línuaðlögunarbúnaðurin í þessum er mun betri en áður. Hærra sync=meiri möguleiki á hærri hröðum því það skilur eftir meira svigrúm eftir að búið er að taka protocol overhead frá.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fim 27. Okt 2011 15:59
af halldors78
tómt rugl með þessa routera, maður fær bara nýjan ef maður er að byrja með tenginu ef maður er heppin, og getur bara skipt út 858 v5, þannig ég keypti mér bara router sjálfur til að þurfa ekki að borga þessa leigu heldur og þá er eitthvað vesen að setja hann upp fyrir sjónvarpið, það er náttúrulega bara rugl að þetta sjónvarp virki bara fyrir þessa thomson routera. er einhver með upplýsingar hvernig á að setja upp sjónvarpið fyrir Zyxel p-870hn-51b???? væri mjög vel þegið
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fim 27. Okt 2011 16:14
af Blues-
ahh .. those were the days .. þegar mar tengdist netinu í gegnum koparvír og horfði á stamandi sjónvarp í gegnum adsl.
Húrra fyrir ljósleiðaranum ...
Sorry gat ekki hamið mig eftir að hafa lesið þennan þráð
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fim 27. Okt 2011 16:31
af wicket
IPTV virkar á fullt af öðrum routerum en bara Thomson / Alcatel.
Allt bara spurning um að endabúnaðurinn þinn styðji þá staðla sem notast er við.
Ég er t.d. með Zyxel router á Ljósnetinu og sjónvarpið hefur aldrei pixlast þrátt fyrir að torrentið sé að öskrast áfram.
@halldors78
Ég hef oft skipt um routera hjá Símanum. Skipti út Thomson 585V6 fyrir Thomson TG585n (sem er þessi hvíti sem GuðjónR talar um) og fékk svo Thomson TG589 minnir mig á Ljósnetinu og fékk honum svo skipt út fyrir Zyxel router. Allt í gegnum Símann í þeirra verslunum, ekkert kvabb, engin klíka eða neitt. Vissulega þurfti ég að fara fleiri en eina ferð því að verslunin átti ekki þá týpu sem ég vildi fá í það og það skiptið en þetta reddaðist allt á endanum og ekkert vesen.
Ég er hrikalega ánægður með þennan Zyxel router, hann er með full admin GUI þannig að maður þarf ekki að nota terminal eins og á Thomson og hann er multimode þannig að 802.11n tæki tengjast á þann staðal og 802.11g tækið (þetta eina) á heimilinu tengist á 11g í stað þess að draga allt niður í 802.11g eins og margir routerar gera.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fim 27. Okt 2011 19:03
af e330
GuðjónR skrifaði:Ég frétti af þessum nýja router fyrir stuttu, hann rýkur út eins og heitar lummur en síminn fær reglulega sendingar.
Hringdu í 8007000 daglega og fáðu þá til að hafa samband við smárann/kringluna og tékka hvort þeir eigi þessa routera.
Farðu svo STRAX á staðinn og náðu í einn þegar þú færð grænt ljós.
Bíddu, ertu ekki viðskiptavinur Hringdu?
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fös 28. Okt 2011 12:04
af halldors78
vélbúnaðarnýðingur: sælir, ég keypti þenna router hjá tölvulistanum sem eiga að þjónusta símann, en fann samt síðu
http://heildsala.siminn.is/servlet/file ... _ID=184011, þarna stendur að þessi router Zyxel p-870hn-51b eigi að virka fyrir sjónvarp símans, en svo vita þessir gaurar í 8007000 ekki neitt um hvaða tölur eiga að vera eða geta ekki sent manni þetta config í gegnum mail eða neitt. er náttúrulega algjör þvæla að sjónvarpið eigi bara að virka hjá routerum frá þeim. en ef einhver hefur náð að tengja sjónvarpið í gegnum sona router þá væri vel þegið að fá upplýsingar. takk fyrir
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fös 28. Okt 2011 12:09
af tdog
Mér finnst þessi ZyXEL router ekkert spes. Ég prófaði hann á frekar leiðinlegri línu, um 600m í VDSL skápinn og Thomsoninn plummaði sig betur. Myndin í sjónvarpinu var bara ekki eins skýr.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fös 28. Okt 2011 12:22
af beatmaster
e330 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég frétti af þessum nýja router fyrir stuttu, hann rýkur út eins og heitar lummur en síminn fær reglulega sendingar.
Hringdu í 8007000 daglega og fáðu þá til að hafa samband við smárann/kringluna og tékka hvort þeir eigi þessa routera.
Farðu svo STRAX á staðinn og náðu í einn þegar þú færð grænt ljós.
Bíddu, ertu ekki viðskiptavinur Hringdu?
Þetta er tæplega 2 ára gamall þráður...
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Fös 28. Okt 2011 12:49
af GuðjónR
e330 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég frétti af þessum nýja router fyrir stuttu, hann rýkur út eins og heitar lummur en síminn fær reglulega sendingar.
Hringdu í 8007000 daglega og fáðu þá til að hafa samband við smárann/kringluna og tékka hvort þeir eigi þessa routera.
Farðu svo STRAX á staðinn og náðu í einn þegar þú færð grænt ljós.
Bíddu, ertu ekki viðskiptavinur Hringdu?
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Lau 29. Okt 2011 12:03
af natti
halldors78 skrifaði:vélbúnaðarnýðingur: sælir, ég keypti þenna router hjá tölvulistanum sem eiga að þjónusta símann, en fann samt síðu
http://heildsala.siminn.is/servlet/file ... _ID=184011, þarna stendur að þessi router Zyxel p-870hn-51b eigi að virka fyrir sjónvarp símans, en svo vita þessir gaurar í 8007000 ekki neitt um hvaða tölur eiga að vera eða geta ekki sent manni þetta config í gegnum mail eða neitt. er náttúrulega algjör þvæla að sjónvarpið eigi bara að virka hjá routerum frá þeim. en ef einhver hefur náð að tengja sjónvarpið í gegnum sona router þá væri vel þegið að fá upplýsingar. takk fyrir
Burtséð frá því að það er stórundarlegt hversu litlar upplýsingar Síminn er tilbúinn til að veita þeim sem eru ekki með router frá Símanum.
T.d. samanborið við Vodafone sem að þangað til "eftir kreppu" var hægt að fá góðar upplýsingar frá Vodafone.
Þá er samt hálf kjánalegt hjá þér að finna eitthvað blað sem að snýr að heildsölu, þar sem meðal annars er bent á að fyrir þau fyrirtæki sem ætla í samstarf með Símanum þá geti þau haft samband við heildsöluna og fengið config, að kvarta yfir að einstaklingsþjónusta (8007000) sé ekki með allt á hreinu eða geti sent þér config.
Þetta snýst ekki um að "sjónvarpið eigi bara að virka hjá routerum frá þeim" heldur að Síminn hefur ákveðið að fókusa á að þjónusta sína viðskiptavini, sem eru með router frá þeim, en ekki alla sem vilja gera e-ð öðruvísi og "eru með vesen".
En þetta eru rásir 7/48, 7/50 og 7/51 (til að vera safe) sem þú þarft að brúa yfir á eitthvað eitt ethernet port til að fá Sjónvarp símans til að virka.
Það er hægt að gera þetta á ótalmörgum routerum.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Lau 29. Okt 2011 12:11
af tdog
Best er að routa þessum sýndarrásum á sér vlan, og beina portunum á vlanið. Það þarf líka að búa til dhcp client fyrir sjónvarpsþjónustuna og stilla QoS.
Re: Replacement router fyrir router símans
Sent: Mán 31. Okt 2011 15:20
af halldors78
natti: sælir, takk fyrir þetta, gott að vita allavega hvaða rásir þetta eru og sona, er samt ekki alveg klár á þessu, prufa að fikta eitthvað í þessu þegar ég nenni því. samt soldið þreytandi að geta ekki verið með eiginn router fyrir sjónvarpið, sérstaklega þar sem hann virkar fínt fyrir netið og eins ef maður tímir ekki að borga leigu til þeirra.
en ég spæja þetta, danke schön.