Síða 1 af 1

FTP

Sent: Mið 20. Jan 2010 20:42
af KermitTheFrog
Uhm, var að spá í því að setja upp FTP á tölvunni minni sem ég gæti bara accessað hvar sem er. Náði í Serv-U og fór eftir einhverju tutoriali. Sýnist ég vera kominn með þetta upp.

En maður þarf alltaf forritið til að geta tengst servernum eða hvað?

Er hægt að gera þetta á einhvern hátt án þess að þurfa að downloada forriti í hinum tölvunum?

Re: FTP

Sent: Mið 20. Jan 2010 20:55
af hagur
Þú þarft alltaf FTP client á "hinum" tölvunum. Þú þarft reyndar ekki að sækja neitt sérstakt forrit, því að allir (a.m.k flestir) browserar styðja FTP staðalinn.

T.d í Internet Explorer gerirðu bara ftp://ip-talan-þín/

Það er þó lang best að vera með alvöru FTP client, eins og t.d CuteFTP, SmartFTP eða álíka.

Re: FTP

Sent: Mið 20. Jan 2010 21:07
af SteiniP
Filezilla er mjög þægilegur. Getur fengið án installer og haft hann á usb lykli.

Re: FTP

Sent: Mið 20. Jan 2010 21:31
af KermitTheFrog
Þarf ekki að borga fyrir FileZilla?

Ég þarf líka að opna port er það ekki?

Re: FTP

Sent: Mið 20. Jan 2010 21:32
af hagur
FileZilla er freeware ... eins og stendur í titlinum á vefsíðunni þeirra. "FileZilla - The free ftp solution".

http://filezilla-project.org/

Re: FTP

Sent: Mið 20. Jan 2010 21:54
af KermitTheFrog
Jæja, ég setti upp FileZilla og reyndi að accessa það í Firefox en ég get bara séð home möppuna og that's it. Get ekki séð öll hin drifin sem eru shareuð og ég kemst ekki inn í neinar möppur inni í home möppunni.