Síða 1 af 1

Port

Sent: Mið 20. Jan 2010 14:45
af Bouldie
Sælir/ar

Er það ekki þannig að ég get leitt lítin hraða niðurhals hjá mér í gengum µTorrent til að ég sé ekki með opin port?
Er með nettengingu hjá Tal, hvað er ég að fara að spurja þá að gera fyrir mig þegar ég hringi þarna niður eftir?, á ég að biðja um að opna mörg port eða? Ef einhver gæti útskýrt hvernig þetta virkar þá væri það vel þegið.

Re: Port

Sent: Mið 20. Jan 2010 14:51
af AntiTrust
Þú ert að fara að biðja þá um að opna port 6881-6889 (algengustu torrent portin) á Local IP töluna á vélinni þinni.

Re: Port

Sent: Mið 20. Jan 2010 14:58
af Bouldie
Okei, takk kærlega
En hvar sé ég síðan local ip töluna á vélinni minni?

Re: Port

Sent: Mið 20. Jan 2010 15:01
af AntiTrust
Bouldie skrifaði:Okei, takk kærlega
En hvar sé ég síðan local ip töluna á vélinni minni?


Start - Run -> Skrifar þar cmd

Opnast svartur console gluggi, þar skrifaru ipconfig

"IP Address" er innri IP talan þín. Þú verður reyndar að festa IP töluna á vélinni hjá þér. Hérna eru mjög góðar og einfaldar uppl. um hvernig það er gert :

http://portforward.com/networking/static-xp.htm