Síða 1 af 2
Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 00:22
af mbh
Hafiði séð það verra....TAL núna
50mb ljós!! Þetta er auðvitað fáránlegt!!
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 00:32
af intenz
11,77 Mb/s = 1,47 MB/s ... ekkert svo svakalegt á miðað við 50 Mb ljós satt að segja. Ættir að vera að fá <=6,25 MB/s
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 00:37
af mbh
intenz skrifaði:11,77 Mb/s = 1,47 MB/s ... ekkert svo svakalegt á miðað við 50 Mb ljós satt að segja. Ættir að vera að fá <=6,25 MB/s
Utanland downlodið er alveg fáránlegt....keypti Goo með Sonic Youth á miðnætti í gegnum Apple Tv´ið mitt og fyrsta lagið er ekki komið ennþá!! allt nýræst s.s telsey og apple routerinn og tvíið....slökti meira að segja ljósin í stofunni bara til öryggis.......þetta er kjánalegt!!....
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 00:42
af mbh
Fyrsta lagið komið jeiiiii!!! tók bara 40 mín! 56k voru frábær í samanburði við þetta!.
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 00:47
af rubey
Er líka að lenda í þessu með 50mb ljós hjá vodafone alveg óþolandi þetta drasl!
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 00:48
af Drone
Danice er niðri , allir eru á farice eins og er
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 01:01
af rubey
Það skýrir samt ekki afhverju ég er bara að fá 25mb innanlands þegar ég hef vanalega verið með 50-60 mb samkvæmt speedtest.net
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 01:13
af sakaxxx
adls stendur enn fyrir sínu 12mb tal
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 01:18
af Krisseh
Ég er ánægður að hafa séð þennan þráð, Næ varla eingu utanlands, sérstaklega youtube.com og gmail.com
btw, er með 12mb adsl hjá tal
*edti
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 01:41
af mbh
Etta er skítasker sem við búum á!!
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 01:59
af Gúrú
mbh skrifaði:Etta er skítasker sem við búum á!!
Við upplifum nú bara okkar tæknilegu örðugleika eins og allir aðrir...
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 02:07
af Stuffz
voða einfalt það þarf bara spec síðu fyrir svona "símafyrirtækjaaðhald" maður er að sjá litla pósta útum hvippinn og hvappinn á netinu, það vantar að beina bara öllum svona umræðum á miðlægan punkt þannig að það sé hægt að bera kennslu á breytingar og bregðast við þeim fyrr a.m.k. það er ein hugmynd.
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 02:08
af Stuffz
mbh skrifaði:Etta er skítasker sem við búum á!!
allt er afstætt, líka skítasker
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 02:57
af Nariur
toppið þetta
ADSL hjá Vodafone
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 09:18
af mbh
Gúrú skrifaði:mbh skrifaði:Etta er skítasker sem við búum á!!
Við upplifum nú bara okkar tæknilegu örðugleika eins og allir aðrir...
Já það er alveg rétt, en ég er viss um að ef einn vír bilar í Þýskalandi, þá lamast ekki nettraffík landsmanna ...... þeir eru nefnilega með marga víra.
Þetta er fínt til afspurnar......er ekki verið að reisa gagnaver? Það er aldeilis fínt að geyma gögnin sín í landi sem getur hvenær sem er orðið sambandslaust við umheiminn!
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 09:26
af mbh
Stuffz skrifaði:voða einfalt það þarf bara spec síðu fyrir svona "símafyrirtækjaaðhald" maður er að sjá litla pósta útum hvippinn og hvappinn á netinu, það vantar að beina bara öllum svona umræðum á miðlægan punkt þannig að það sé hægt að bera kennslu á breytingar og bregðast við þeim fyrr a.m.k. það er ein hugmynd.
Þetta er bráðsniðugt, væri fínt að líma þráð i Netkerfi "internet hraða kvartanir" ég er viss um að hann verður orðin langur eftir árið
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 09:27
af gardar
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 10:57
af razrosk
ÁAAAgætt
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 12:30
af hagur
Innanlandssambandið mitt er mega gott núna en utanlands gæti verið betra
OK, hérna svo keflavík:
og að lokum Birmingham í UK:
50mbit ljós @ Vodafone
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 13:46
af Orri
12Mb ADSL hjá Vodafone
Í gærkvöldi var netið hrikalega hægt.
Virkar fínt núna:
London:
Ísland:
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 17:12
af codec
hagur skrifaði:Innanlandssambandið mitt er mega gott núna en utanlands gæti verið betra
50mbit ljós @ Vodafone
Ég er líka með 50mbit ljós frá Vodafone en fæ bara:
Ertu tengdur beint í telsey eða í gegnum router.
Er búin að að kvarta yfir þessu við Vodafone alla vikuna en hef ekki fengið lausn mála.
Hraðinn hjá mér er ekki ásætanlegur miðað við 50mbits tengingu.
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 17:17
af Rubix
Er með 12mb frá símanum og fékk þetta :
not so baad
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 17:20
af halldorjonz
Þetta er nátturulega mesta kjaftæði í heimi, er á 8 mb símanum, uploada oftast ca 70kb/s en downloada ALDREI yfir 490kbs
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 17:24
af mbh
codec skrifaði:hagur skrifaði:Innanlandssambandið mitt er mega gott núna en utanlands gæti verið betra
50mbit ljós @ Vodafone
Ég er líka með 50mbit ljós frá Vodafone en fæ bara:
Ertu tengdur beint í telsey eða í gegnum router.
Er búin að að kvarta yfir þessu við Vodafone alla vikuna en hef ekki fengið lausn mála.
Hraðinn hjá mér er ekki ásætanlegur miðað við 50mbits tengingu.
Við verðu samt að átta okkur á því að þessi fyrirtæki auglýsa "allt að 50Mbit/s" sem tæknilega getur þýtt frá 0.1 Mbit/s til 50Mbit/s......þetta væri svipað og að fara á bensínstöð, þar sem aðeins væri hægt að setja 5000 kall í og undir raufinni stæði, þú færð bensín fyrir allt að 5000 kalli.....svo byrjar maður að dæla og hún stoppar svo í 1675 kalli....að því að sá sem á undan þér var fékk 3500 kall. Myndi einhver sætta sig við svona bensínsölu companý? En þetta látum við netverjar yfir okkur ganga!
Re: Enn og aftur hraði á netinu!!
Sent: Lau 16. Jan 2010 17:42
af hagur
codec skrifaði:hagur skrifaði:Innanlandssambandið mitt er mega gott núna en utanlands gæti verið betra
50mbit ljós @ Vodafone
Ég er líka með 50mbit ljós frá Vodafone en fæ bara:
Ertu tengdur beint í telsey eða í gegnum router.
Er búin að að kvarta yfir þessu við Vodafone alla vikuna en hef ekki fengið lausn mála.
Hraðinn hjá mér er ekki ásætanlegur miðað við 50mbits tengingu.
Sæll,
Ég er tengdur í gegnum router, þ.e ekki beint í Telsey boxið. Ert þú með router á milli? Ef svo er, hvaða router? Fyrstu routerarnir sem Vodafone lét fólk hafa toppuðu í 20mbit/s hraða. Zyxel NBG420N og svo þessir nýju Bewan routerar komu svo í staðinn og þeir fara leikandi létt með 50mbit/s.
Ég er sjálfur með Zyxel NBG420N.