Síða 1 af 2

Wep key crack

Sent: Mið 13. Jan 2010 22:53
af KermitTheFrog
Það er engin einföld leið til þess er það nokkuð? Þá er ég ekki að tala um venjuleg SpeedTouch SSID. eitthvað SiminnXXXXXX

EDIT: Windows 7

Re: Wep key crack

Sent: Mið 13. Jan 2010 22:59
af AntiTrust
Einfalt og ekki einfalt - veltur mikið á manneskjunni auðvitað.

Ég tók mig til fyrir nokkrum árum og lærði það á einu kvöldi. Tók mig aðeins lengri tíma að læra að komast framhjá WPA og flr. stöðlum. Alveg óteljandi howto's á netinu um þetta hinsvegar, en svo er talsvert mikilvægt að skilja hvernig wireless chipset virka, hver munurinn er á þeim, hvaða chipset er best að nota og afhverju (betra að chipsetið noti hardware fyrir encryption en software, sem dæmi), ásamt mörgum öðrum factorum auðvitað. Því meira sem þú skilur staðlana og tæknina sjálfa því betri og fljótari verðuru að þessu.

Svo er þetta líka auðvitað spurningin um að vera með rétta software-ið. Þú þarft bæði packet logger/sniffer og svo decrypter. Aircrack er t.d.vinsæll decrypter/cracker. Svo er alveg til endalaust af loggerum.

Seinna meir pantaði ég mér Wi-Foo - The secrets of Wireless Hacking á Amazon, ekki vitlaus bók það.

Re: Wep key crack

Sent: Mið 13. Jan 2010 23:00
af sakaxxx
http://www.aircrack-ng.org/

virkaði á routerin minn tók um 15min

Re: Wep key crack

Sent: Fös 15. Jan 2010 13:21
af sprelligosi
þú hefur væntanlega verið með eitthvað linux distro.
þú hefur ekkert lent í neinum driver vandræðum. ég gerði þetta fyrir ári síðan og var þá í bölvöðu veseni því að ég þurfti að gera einhverja custom driver fyrir kortið mitt.

Re: Wep key crack

Sent: Fös 15. Jan 2010 13:28
af raggos
Þessi virkar mjög vel. Næstum allir að nota default lykilorðið. Þessi leið er líka golden fyrir þá sem eru að nota wpa/wpa2 með default lyklinum.
http://www.nickkusters.com/SpeedTouch.aspx

Re: Wep key crack

Sent: Fös 15. Jan 2010 13:35
af AntiTrust
raggos skrifaði:Þessi virkar mjög vel. Næstum allir að nota default lykilorðið. Þessi leið er líka golden fyrir þá sem eru að nota wpa/wpa2 með default lyklinum.
http://www.nickkusters.com/SpeedTouch.aspx


A) Virkar bara á default speedtouch SSID svo lengi sem það er líka default WEP

B) Núll kúl faktor.

Re: Wep key crack

Sent: Fös 15. Jan 2010 13:36
af AntiTrust
sprelligosi skrifaði:þú hefur væntanlega verið með eitthvað linux distro.
þú hefur ekkert lent í neinum driver vandræðum. ég gerði þetta fyrir ári síðan og var þá í bölvöðu veseni því að ég þurfti að gera einhverja custom driver fyrir kortið mitt.


Ég er búinn að gera þetta með mörgum mismunandi chipsets á mörgum mismunandi Win stýrikerfum, oft sem þetta gengur smurt. Ef þú ert með óalgengt WiFikort/chipset geturu lent í veseni hinsvegar.

Það er einfaldara að gera þetta á Win allavega ef maður er óreyndur á Linux.

Re: Wep key crack

Sent: Fös 15. Jan 2010 13:46
af KermitTheFrog
raggos skrifaði:Þessi virkar mjög vel. Næstum allir að nota default lykilorðið. Þessi leið er líka golden fyrir þá sem eru að nota wpa/wpa2 með default lyklinum.
http://www.nickkusters.com/SpeedTouch.aspx


Vissi af þessu, en eins og kemur fram í póstinum þá er ég ekki með default SpeedTouch SSID til að cracka.

Re: Wep key crack

Sent: Mán 18. Jan 2010 23:51
af JReykdal
Setur bara routerinn í factory default eða hundskast til að láta annarra manna net vera.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 03:44
af sprelligosi
segðu mér eitt. Hefuru einhverja reynslu að gera þetta í win á lappa, þeas með intel /centrio kortum.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 09:18
af starionturbo
wifi packet sniffing á windows suckar, bjó mér til lítið app sem gerir þetta allt fyrir mig á slackware.

Airmon-ng + iwconfig wlan0
airodump-ng wlan0
Interface: velja network
macchanger -m 00:11:22:33:44 wlan0
airodump-ng -ssid SSID -c CHANNEL -w FILE wlan0
aireplay-ng -1 0 -a 00:11:22:33:44 -b SSID-MAC
aireplay-ng -3 -h SSID-MAC
aircrack-ng FILE

~ 5-10 mín að sniffa fyrir 256 bita key

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 10:00
af TechHead
starionturbo skrifaði:wifi packet sniffing á windows suckar, bjó mér til lítið app sem gerir þetta allt fyrir mig á slackware.

Airmon-ng + iwconfig wlan0
airodump-ng wlan0
Interface: velja network
macchanger -m 00:11:22:33:44 wlan0
airodump-ng -ssid SSID -c CHANNEL -w FILE wlan0
aireplay-ng -1 0 -a 00:11:22:33:44 -b SSID-MAC
aireplay-ng -3 -h SSID-MAC
aircrack-ng FILE

~ 5-10 mín að sniffa fyrir 256 bita key


Fljótlegasta leiðin fyrir Wep, Backtrack er líka gott distro til að byrja að fikra sig áfram í þessu :)

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 11:33
af Carc
Hefur einhver reynslu af því að cracka WPA? Virðist vera mun flóknara.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 11:53
af urban
Strákar mínir þíð eruð á alveg svakalega gráu svæði með að ræða þetta hérna.

ég er alveg við það að læsa þessu eða eyða þessum þræði.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 12:15
af AntiTrust
urban skrifaði:Strákar mínir þíð eruð á alveg svakalega gráu svæði með að ræða þetta hérna.

ég er alveg við það að læsa þessu eða eyða þessum þræði.


Það þætti mér, og þú fyrirgefur, í meira lagi kjánalegt.

Þetta væri svipað og að banna umræðu um byssur, afþví að þær geta verið notaðar til að fremja glæp.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 12:35
af TechHead
urban skrifaði:Strákar mínir þíð eruð á alveg svakalega gráu svæði með að ræða þetta hérna.

ég er alveg við það að læsa þessu eða eyða þessum þræði.


Ég nota þetta nú bara eingöngu til að ráðleggja fólki og fyrirtækjum um veikleika þráðlausra neta, ekkert ólöglegt við það?
Sýnist þetta nú vera á hvítu svæði nema við förum gagngert að hjálpa einhverjum að "brjótast" inná net sem hann á ekki heima á [-X

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 12:57
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:
urban skrifaði:Strákar mínir þíð eruð á alveg svakalega gráu svæði með að ræða þetta hérna.
ég er alveg við það að læsa þessu eða eyða þessum þræði.

Það þætti mér, og þú fyrirgefur, í meira lagi kjánalegt.
Þetta væri svipað og að banna umræðu um byssur, afþví að þær geta verið notaðar til að fremja glæp.

Það væri nú meira eins og að ræða hvernig maður ætti að fremja glæp með byssu.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 13:19
af AntiTrust
KermitTheFrog skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
urban skrifaði:Strákar mínir þíð eruð á alveg svakalega gráu svæði með að ræða þetta hérna.
ég er alveg við það að læsa þessu eða eyða þessum þræði.

Það þætti mér, og þú fyrirgefur, í meira lagi kjánalegt.
Þetta væri svipað og að banna umræðu um byssur, afþví að þær geta verið notaðar til að fremja glæp.

Það væri nú meira eins og að ræða hvernig maður ætti að fremja glæp með byssu.


Aj, samt ekki. Því að brjóta eigið net telst seint glæpur, og svo best sem við og aðrir hér vitum er það okkar eini tilgangur.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 13:34
af urban
AntiTrust skrifaði:
Aj, samt ekki. Því að brjóta eigið net telst seint glæpur, og svo best sem við og aðrir hér vitum er það okkar eini tilgangur.



það er nú alveg einstaklega heimskulegt, þar sem að þú jú, þarft ekki að brjóta eigið net :)

og það er nú þegar komið fram svar við því að þetta sem að þú nefndir, er ekki samanburðar hæft.

alveg á sama hátt og torrent, torrent forrit og umræður um torrent síður eru í góðu lagi.
en umræður um það hvar einhver ákveðinn þáttur finnst eru á mjög gráu svæði.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 13:42
af AntiTrust
urban skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
Aj, samt ekki. Því að brjóta eigið net telst seint glæpur, og svo best sem við og aðrir hér vitum er það okkar eini tilgangur.



það er nú alveg einstaklega heimskulegt, þar sem að þú jú, þarft ekki að brjóta eigið net :)

og það er nú þegar komið fram svar við því að þetta sem að þú nefndir, er ekki samanburðar hæft.



Heimskulegt?

Að sjálfsögðu er fyrst og fremst tilgangurinn með þessu að brjóta niður eigið net, sjá hvað þarf til og hvar er hægt að bæta úr. Ég fæ mikið meira útúr því að vita að mitt eigið net er öruggt, heldur en að laumast inn á net til annarra. Ég var t.d. merkilega hissa þegar ég braut fyrst eigið net hvað þetta var auðvelt, og hef síðan þá aldrei dottið í hug að nota WEP eingöngu. Dýrmætur lærdómur, verð ég að segja.

Samanburðarhæft eða ekki, þá ertu að tala um að það sé á gráu svæði að tala um hlut eða aðgerð sem getur verið jafn lögleg og hún getur verið ólögleg. Get ekki með nokkru móti séð lógíkina við að ritskoða slíkt, þegar ekkert tal bendir til þess að við séum að stuðla frekar að ólöglegum aðgerðum.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 14:20
af ponzer
Menn eru bara að æfa sig í að cracka sín eigin net :lol: óþarfi að læsa þessum þræði

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 15:15
af Pandemic
Þetta er jafn heimskulegt að segja að ég megi ekki æfa mig hérna heima að opna lása með pikkunum mínum :/
Fullkomlega löglegt sport og ekkert athugavert við það.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 15:20
af Gúrú
Pandemic skrifaði:Þetta er jafn heimskulegt að segja að ég megi ekki æfa mig hérna heima að opna lása með pikkunum mínum :/

Get sagt þér það hér og nú að þú ert ekki að fara að pikka lása heima hjá þér :)
Standardinn á lásum er orðinn rosalega hár... :(

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 18:59
af Pandemic
Gúrú skrifaði:
Pandemic skrifaði:Þetta er jafn heimskulegt að segja að ég megi ekki æfa mig hérna heima að opna lása með pikkunum mínum :/

Get sagt þér það hér og nú að þú ert ekki að fara að pikka lása heima hjá þér :)
Standardinn á lásum er orðinn rosalega hár... :(

Ég get sagt þér það hér og nú að hann er ekkert rosalega hár og nánast allir hér á landi nota ASSA lása búa yfir fjölmörgum göllum sem gerir það að verkum að auðvelt er að opna þá. Var t.d að bora út nýjan ASSA lás um daginn sem var notaður í fjölbýli og það voru ENGIR öryggispinnar í honum, það eina sem þeir höfðu gert var að fjölga um 2 pinna.

Öryggi í dag er frekar falskt.

Re: Wep key crack

Sent: Þri 19. Jan 2010 19:33
af Gúrú
Pandemic skrifaði:Ég get sagt þér það hér og nú að hann er ekkert rosalega hár og nánast allir hér á landi nota ASSA lása búa yfir fjölmörgum göllum sem gerir það að verkum að auðvelt er að opna þá. Var t.d að bora út nýjan ASSA lás um daginn sem var notaður í fjölbýli og það voru ENGIR öryggispinnar í honum, það eina sem þeir höfðu gert var að fjölga um 2 pinna.
Öryggi í dag er frekar falskt.

Gaur... bor?.... bor? BOR!??!?!
Væntanlega get ég mætt með sleggju og lamið allar hurðir bæjarins niður en það er ekkert svalt við það...
Mér hefur einu sinni tekist að picklocka svona hurðalás og það tók svona... 45 mínútur af 100% einbeitingu og eitthvað þjófalyklasett uppá morðfjár sem ég fékk lánað...