Síða 1 af 1
nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Mán 11. Jan 2010 23:15
af Tiger
Sælir, nú er ég með borðtölvu sem ég hef allar myndir og tónlist á og share henni við börnin og flakkarann í stofunni. En ef einhver er að horfa á mynd þá getur enginn annar horft á hana líka. Er ekki einhver leið til að sama skrá geti verið notuð af fleirri en einum í einu?
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Mán 11. Jan 2010 23:17
af AntiTrust
Hm, hvaða meldingu færðu upp? File in Use?
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Mán 11. Jan 2010 23:19
af Tiger
Nei, eins og ef ég er að horfa í flakkaranum þá bara ruglast myndin og allt frýs.
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Mán 11. Jan 2010 23:25
af Tiger
Ég er reyndar búinn að komast að því að þetta tengist bara flakkaranum (Tvix HD4100) því hann er sá eini sem höndlar það ekki að annar noti skránna á sama tíma
. Get horft á sömu skrá í tveimur fartölvum og ekkert mál, en um leið og flakkarinn bætist í fer allt í steik. Any ideas hvort og hvernig hægt sé að laga það?
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Mán 11. Jan 2010 23:31
af AntiTrust
Snuddi skrifaði:Ég er reyndar búinn að komast að því að þetta tengist bara flakkaranum (Tvix HD4100) því hann er sá eini sem höndlar það ekki að annar noti skránna á sama tíma
. Get horft á sömu skrá í tveimur fartölvum og ekkert mál, en um leið og flakkarinn bætist í fer allt í steik. Any ideas hvort og hvernig hægt sé að laga það?
Spurning um að prufa firmware update?
Annars hef ég aldrei lent í svo mikið sem svipuðu máli, hugsa að google sé besti vinur þinn í þessu.
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Mán 11. Jan 2010 23:39
af Tiger
AntiTrust skrifaði:Snuddi skrifaði:Ég er reyndar búinn að komast að því að þetta tengist bara flakkaranum (Tvix HD4100) því hann er sá eini sem höndlar það ekki að annar noti skránna á sama tíma
. Get horft á sömu skrá í tveimur fartölvum og ekkert mál, en um leið og flakkarinn bætist í fer allt í steik. Any ideas hvort og hvernig hægt sé að laga það?
Spurning um að prufa firmware update?
Annars hef ég aldrei lent í svo mikið sem svipuðu máli, hugsa að google sé besti vinur þinn í þessu.
Ok takk. Hann er með nýjasta firmwareið og ekki komið nýtt í 2 ár og hættur í sölu þessi elska þannig að ekki líklegt að það komi fleirri. Ég held áfram að leita.
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Þri 12. Jan 2010 18:20
af Cikster
Er til önnur firmware fyrir hann sem væri sennilega ekki vitlaust að prófa ...
http://www.opentvix.com/
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Þri 12. Jan 2010 20:09
af Pandemic
Fat eða NTFS?
Re: nota sömu skrá i nokkrum tölvum á sama heimaneti
Sent: Þri 12. Jan 2010 20:26
af Tiger
Pandemic skrifaði:Fat eða NTFS?
Ég er ekki með neinn disk í flakkaranum sjálfum, bara borðvélinni sem ég spila af í gegnum heimanetið. Og þeir diskar eru að sjálfsögðu NTFS