Zyxel P-660HW-D1 router með leiðindi


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Zyxel P-660HW-D1 router með leiðindi

Pósturaf SteiniP » Mán 04. Jan 2010 18:18

Ég er að lenda í alveg ógeðslega pirrandi veseni með routerinn.
Það lýsir sér þannig að þegar ég reyni að browsa netið á hinum skjánum meðan ég er að tengjast server í L4D2 þá fer netið allt í heng og ég næ ekki að tengjast að eða loada vefsíður, en þetta hefur samt engin áhrif á torrent, þau halda alltaf áfram.

Þetta er að birtast út um allan router logginn
"192.168.1.34 exceeds the max. number of session per host!"
192.168.1.34 er þá tölvan mín.

Það dugar oftast að taka netsnúruna úr sambandi í smástund en stundum dugar ekkert minna en að restarta routernum.
Þetta gerist líka oft í öðrum leikjum þegar ég er að leita að serverum. Líka skrýtið að ég get ennþá notað chattið á steam þótt ég geti ekki opnað neinar síður eða tengst serverum.

Hvað segið þið? Routerinn FUBAR eða eitthvað stillingaratriði?



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 43
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Zyxel P-660HW-D1 router með leiðindi

Pósturaf gRIMwORLD » Þri 05. Jan 2010 12:52

Prófaðu að lækka number of connections í torrent forritinu. Átti einn svona router sem ég varð alltaf að endurræsa reglulega ef ég var með torrent í gangi í langan tíma.


IBM PS/2 8086


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Zyxel P-660HW-D1 router með leiðindi

Pósturaf SteiniP » Þri 05. Jan 2010 13:45

grimworld skrifaði:Prófaðu að lækka number of connections í torrent forritinu. Átti einn svona router sem ég varð alltaf að endurræsa reglulega ef ég var með torrent í gangi í langan tíma.

Þetta er bara ekkert tengt torrent. Sama hvort það er í gangi eða ekki.
Þetta gerist bara þegar ég reyni að tengjast serverum í leikjum.

Virðist samt vera komið í lag núna. Ég breytti max sessions í routernum úr 512 í 2048 gegnum telnet og þetta hefur ekki gerst síðan.




Leviathan
spjallið.is
Póstar: 437
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
Reputation: 2
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Zyxel P-660HW-D1 router með leiðindi

Pósturaf Leviathan » Þri 05. Jan 2010 13:48

SteiniP skrifaði:
grimworld skrifaði:Prófaðu að lækka number of connections í torrent forritinu. Átti einn svona router sem ég varð alltaf að endurræsa reglulega ef ég var með torrent í gangi í langan tíma.

Þetta er bara ekkert tengt torrent. Sama hvort það er í gangi eða ekki.
Þetta gerist bara þegar ég reyni að tengjast serverum í leikjum.

Virðist samt vera komið í lag núna. Ég breytti max sessions í routernum úr 512 í 2048 gegnum telnet og þetta hefur ekki gerst síðan.

Sæll, ég er að lenda í svipuðu. Ertu nokkuð til í að henda í mig telnet skipuninni sem þú notaðir?


AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Zyxel P-660HW-D1 router með leiðindi

Pósturaf SteiniP » Þri 05. Jan 2010 13:53

Jú það er ip nat session og setur töluna fyrir aftan, ég notaði 2048