Síða 1 af 1

FTP Hjálp

Sent: Mán 04. Jan 2010 10:28
af villisnilli
Mér langar að gera FTP server en hann kemur alltaf bara á local hvernig geri ég hann á netinu þanneiginn að ég geti farið á hann á öðrum tölvum?

Re: FTP Hjálp

Sent: Mán 04. Jan 2010 10:35
af AntiTrust
Forwardar portinu á routernum og/eða eldveggnum hjá þér, það ætti að vera nóg til að komast inn á hann með external IP.

Re: FTP Hjálp

Sent: Mán 04. Jan 2010 10:56
af kusi
FTP serverar nota default port nr. 21 en það eitt og sér er bara nóg til að þú getir tjáð þig við serverinn. Ef þú vilt geturu látið hann nota eitthvað annað port. Port scannerar leita gjarnan á porti 21 og þá vill log skráin fyllast af einhverju rugli. Ef þú breytir portinu verða tengingar við serverinn aðeins flóknari, í vafra myndiru td. gera: ftp://localhost:800/ ef portið er 800.
Ef þú vilt flytja gögn þarftu að forwarda einhverjum "gagnaflutningsportum" líka og láta ftp serverinn vita hver "external" ip addressan sé. Sumir serverar geta kannski áttað sig á henni sjálfvirkt en ég hef þurft að stilla það handvirkt í gegnum tíðina.

Til að hægt sé að segja þér nánar hvernig þetta er gert þarf að vita hvaða ftp server þú ert að nota og hverskonar router.

Re: FTP Hjálp

Sent: Mán 04. Jan 2010 11:02
af fireiron
ok takk