Síða 1 af 2

Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 20:12
af zlamm
Hvaða vírusvörn er best að ykkar mati? (verður að vera frí)

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 20:16
af Klemmi
Taka netið úr sambandi og tengja eða setja engin ný utanaðkomandi gögn við tölvuna!

En annars hef ég ágætis reynslu af Avast.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 20:26
af zlamm
skiptir ekki máli, ég fattaði að ég er með Windows defender í tölvunni. :oops:

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 20:48
af Gúrú
zlamm skrifaði:skiptir ekki máli, ég fattaði að ég er með Windows defender í tölvunni. :oops:


Það að vera með Windows Defender til að vernda sig frá vírusum er eins og að vera með vatn til að vernda sig frá sjónum.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 20:48
af Kobbmeister
zlamm skrifaði:skiptir ekki máli, ég fattaði að ég er með Windows defender í tölvunni. :oops:

Ekki treysta á það. [-X

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 20:51
af SteiniP
Avast og Malwarebytes. Eina sem ég nota.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 21:09
af zlamm
Kobbmeister skrifaði:
zlamm skrifaði:skiptir ekki máli, ég fattaði að ég er með Windows defender í tölvunni. :oops:

Ekki treysta á það. [-X


afhverju ekki?

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 21:14
af Ulli
Avast og Search and Destroy

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 21:27
af Some0ne
Besta vírusvörnin er notandi með heila í lagi :)

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 21:38
af g0tlife

Kóði: Velja allt

aka netið úr sambandi og tengja eða setja engin ný utanaðkomandi gögn við tölvuna!


hahaha besta fría vírusvörnin

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 21:43
af bulldog
AVG fría vírusvörnin hefur reynst mér vel :)

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:20
af littli-Jake
Avast hefur reynst mér mjög vel

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:22
af Kobbmeister
zlamm skrifaði:
Kobbmeister skrifaði:
zlamm skrifaði:skiptir ekki máli, ég fattaði að ég er með Windows defender í tölvunni. :oops:

Ekki treysta á það. [-X


afhverju ekki?

Af því það virkar ekki jafn vel og vírus vörn frá einhverju öðru fyrirtæki en microsoft.

Annars mæli ég með AVG

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:29
af Frost
zlamm skrifaði:
Kobbmeister skrifaði:
zlamm skrifaði:skiptir ekki máli, ég fattaði að ég er með Windows defender í tölvunni. :oops:

Ekki treysta á það. [-X


afhverju ekki?


Windows defender er hræðinleg vörn, finnur ekki neitt í tölvunni hjá manni.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:33
af Arkidas
Nota sjálfur F-Prot (Lykla Pétur). Ég mundi prófa 30 daga reynsluútgáfuna þeirra. Hún virkar alveg eins og full útgáfa.

http://frisk.is

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:44
af AntiTrust
Ég hef verið að nota Microsoft Essentials á W7 vélunum hjá mér og mjög sáttur, örlítið þungt í vinnslu þegar það er að skanna reyndar en lætur hinsvegar rosalega lítið fyrir sér fara og hefur verið að sýna betri results en margar af þessum stóru - svo er það líka Ad free, sem er stór plús.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:44
af gRIMwORLD
SteiniP skrifaði:Avast og Malwarebytes. Eina sem ég nota.


Besta comboið sem finnst í dag =D>

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 22:59
af Narco
Það er avast, avg og Microsoft Essentials sem ég myndi ráðleggja, en það er satt rétt notkun er svo ein besta vírusvörnin, annars er ég að nota Microsoft Security Essentials og hef ekki fengið neinn vírus síðan ég man ekki hvenær.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Þri 29. Des 2009 23:00
af Lexxinn
Nota hérna sjálfur AVG og hef ekki hugmynd ef það er einhver sem ég get treyst betur miðað við free version

my opinion

grimworld skrifaði:
SteiniP skrifaði:Avast og Malwarebytes. Eina sem ég nota.


Besta comboið sem finnst í dag =D>

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Mið 30. Des 2009 00:54
af Hjaltiatla
Avg free version er klárlega besta fría vörnin að mínu mati þó hún sé ekki sú öflugasta þegar hún er keypt.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Mið 30. Des 2009 01:00
af Carc
Microsoft Security Essentials hefur verið að fá góða einkun af ókeypis vírusvörnum. Annars er það Avira sem ég mæli með, létt í keyrslu. Svo er gott að nota Malwarebytes Anti-Malware til viðbótar.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Fös 08. Jan 2010 22:32
af Mongol
Ég segi það bara eins og er að ég downloadaði ólöglega nod32
og nota svo þessa síðu *LINK REMOVED* til að finna username og password en verið bara vissir um að nota ekki tvær vírusvarnir
á sama tíma vegna þess að þær villa bara fyrir hvorri annari þá.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Fös 08. Jan 2010 22:59
af Pandemic
Microsoft Security Essentials er málið í dag.

Var að nota AVG og um leið og MSE var sett upp fann hún 3 vírusa og hefur náð að stoppa 2. Man varla eftir því að AVG hafi nokkurntíman blockað vírus af heimasíðu hjá mér.

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Fös 08. Jan 2010 23:03
af Blackened
Nod32 er klárlega besta vírusvörn sem ég hef notað.. fer lítið sem ekkert fyrir henni og hún lætur mig alltaf vita ef ég er að sækja eitthvað dúbíus stöff og stoppar það ;)

Re: Besta fría vírusvörnin

Sent: Fös 08. Jan 2010 23:08
af Pandemic
Blackened skrifaði:Nod32 er klárlega besta vírusvörn sem ég hef notað.. fer lítið sem ekkert fyrir henni og hún lætur mig alltaf vita ef ég er að sækja eitthvað dúbíus stöff og stoppar það ;)

Alveg klárlega ekki frí