Síða 1 af 1
Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 12:50
af Danni V8
Ég er að reyna að setja upp FTP server með FileZilla forritinu, en mig grunar að routerinn er eitthvað að trufla mig.
Til að byrja með þá get ég engan vegin opnað port 21, ég get stillt að það á að vera opið en Port Checker t.d. getur ekki tengst því.
Síðan þegar ég er búinn að setja allt upp eftir leiðbeiningu og að minni bestu vitund alveg rétt, þá nota ég Flash FXP til að tengjast IP tölunni minni og porti 21, þá kemur:
[R] Connecting to ***.**.***.*** -> IP=***.**.***.*** PORT=21
[R] Connected to ***.**.***.***
[R] 220 Inactivity timer = 120 seconds. Use 'site idle <secs>' to change.
[R] USER admin
[R] 331 SpeedTouch Password required.
[R] PASS (hidden)
[R] 530 Permission denied
[R] Connection failed
Prófaði að breyta password í speedtouch password og ég kemst inn, en það er ekkert þar.
Ég er búinn að prófa að breyta Listen port í FileZilla í önnur port sem ég er búinn að opna, en þegar ég stilli á þau í Flash FXP kemur bara connection timed out.
Er hægt að komast framhjá þessu og setja upp FTP server þó að ég er með SpeedTouch router?
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 13:33
af dadik
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 14:08
af Danni V8
Ég er búinn að gera þetta.
Áður en ég opnaði port 21 kom bara time-out þegar ég reyndi að opna ftp á minni IP tölu.
Eftir að ég opnaði port 21 gat ég tengst á ftp skráðan á SpeedTouch routerinn, en ekki FileZilla FTP Serverinn.
Ég er búinn að triple-checka allar stillingar og þær eru allar eins og þær eiga að vera í FileZilla. Ég er líka búinn að prófa aðra FTP client-a en það er sama sagan. Þetta er augljóslega vandamál með routerinn sjálfan en EKKI port forward, ég er búinn að forwarda öllum nauðsynlegum portum og meira til og nota Portforward.com PortChecker tólið til að athuga hvort þau hafi ekki alveg örugglega opnast, sem þau gerðu.
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 14:13
af lukkuláki
Biddu
Depil um að hjálpa þér hann er alger snillingur í þessu
http://spjall.vaktin.is/memberlist.php?mode=viewprofile&u=2328
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 15:15
af Danni V8
Takk fyrir ábendinguna. Ég set mig í samband við hann á næstunni
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 17:12
af Hjaltiatla
gæti verið vandamál með vírusvörnina.
gætir þurft að adda new rule fyrir forritið og incoming tengingar.
Síðan er það stundum þannig að maður þarf að stilla portið passive ekki active.
allavegna gekk þetta hjá mér þegar ég stillti passive og fiktaði í vírusvörninni.
Good luck=)
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Lau 19. Des 2009 17:28
af depill
Skomm bara smá pæling, þú ert að setja upp FTP server á innra netinu þínu og svo að tengjast á innra netinu eða utan.
Ef við ímyndum okkur smá netkerfi ( allar ip tölur og allt shitið er made up fyrir example )
FTP ( Innri 192.168.1.2 ) // Einkavél ( Innri 192.168.1.3 ) // Router ( Innri 192.168.1.254 / Ytri 88.88.88.88 ) // Ytri vél ( Ytri 89.89.89.89 )
Þú portfowrdar porti 21 yfir á 192.168.1.2 svo ferð þú einkavélina og tengist 88.88.88.88 þá mun routerinn svara en ekki NATa fyrirspurninni áfram þar sem hún kemur frá innra kerfinu ( NAT virkar með að hugsa um inside og outside ).... þess vegna mun routerinn svara fyrirspurninni með sínum FTP server.
Þannig þú ferð í einkavélinni þinn (192.168.1.3 ) og reynir að tengjast 88.88.88.88 og færð Router FTP interfaceið, en ef þú tengist 192.168.1.2 þá muntu fá FTP þjónin.
Ytri vélin 89.89.89.89 sem tengist 88.88.88.88 þá mun routerinn forwarda FTP fyrirspurninni ( fyrirspurnin kemur af outside ). Ennfremur áttu að port forwarda 20 og 21 á 192.168.1.2 ( ftp serverinn ) 20 fyrir data, 21 fyrir protocol.
Ég myndi giska að þetta sé vandinn þinn.
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Sun 10. Jan 2010 12:17
af akarnid
Vandinn hérna er eflaust sá að þú ert með Speedtouch 585 v6 með software release 6.2.29.2 og það er fremur þroskaheft á þann hátt að það tekur frá port 21, 80 og 53 fyrir eigin notkun! Þannig að það er ekki hægt að forwarda þeim venjulega. Gersamlega glatað.
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Sun 10. Jan 2010 12:23
af Pandemic
Þú ert örruglega að reyna að tengjast ftp servernum frá innranetinu með því að nota public ip töluna þína.
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Sun 10. Jan 2010 13:37
af Carc
akarnid skrifaði:Vandinn hérna er eflaust sá að þú ert með Speedtouch 585 v6 með software release 6.2.29.2 og það er fremur þroskaheft á þann hátt að það tekur frá port 21, 80 og 53 fyrir eigin notkun! Þannig að það er ekki hægt að forwarda þeim venjulega. Gersamlega glatað.
Get líka tekið undir að þetta er að öllum líkindum vandinn. Mæli með að þú notir annað port en 21 fyrir FTP.
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Mán 11. Jan 2010 11:57
af JReykdal
Það ætti að vera hægt að fjarlægja reglurnar fyrir portin á speedtouch og setja upp forwardið í gegnum CLI, man ekki nákvæmlega hvernig þær líta út samt.
Svo er einn gott að virkja ip nat loopback svo hægt sé að nota ytri töluna innanfrá.
Re: Er að reyna að setja upp FTP server
Sent: Mán 11. Jan 2010 12:15
af Danni V8
Ég leysti þetta með því að setja upp IIS og ftp server með því, síðan bara Hamachi og sá sem var að reyna að ná í frá mér fór bara inn á mig í gegnum Hamachi ip töluna og port 21, þá var ekkert port forwarding nauðsynlegt fyrir utan Hamachi portið, sem er hægt að stilla á hvað sem er
Vorum búnir að reyna að nota Hamachi eins og venjulegt network en það virkaði ekki, hann náði aldrei að sjá mína tölvu í network.
Ég allavega þarf ekki á ftp server að halda lengur, fyrst ég er búinn að finna lausn á þessu. Servarnir verða bara meira private fyrir vikið