Síða 1 af 1
VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 00:57
af intenz
Þar sem Hamachi er leiðindarforrit vantar mig nýtt VPN forrit. Forritið þarf að geta haft 3 fyrstu tölurnar í IP tölunni þær sömu og aðrir notendur á networkinu. Þetta hefur með Class-C og leikjaspilun að gera.
Eldri útgáfur af Hamachi voru með sniðugan fídus til að búa til alias fyrir IP tölur þannig IP tölur vina þinna voru með fyrstu byrjun og þú, þannig leikir (sérstaklega VALVe) kæmu ekki með Class C error. Í nýju útgáfunni af Hamachi er þetta ekki lengur hægt. Þess vegna hef ég misst allt álit á Hamachi.
Mæli þið með einhverju friendly & easy VPN forriti?
Re: VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 09:34
af Halli25
Gæti prófað Teamviewer en þori ekki að segja hvort hann geti það sem þú ert að spá í...
Re: VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:17
af intenz
Kallið þið ykkur nörda ?
Re: VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:51
af vesley
getur prufað garena veit að það supportar eitthverja leiki. hef nánast ekkert notað það en veit að það á að vera algjör snilld. hellingur af serverum á því í t.d. cod4-5-6 dota h.a.w.x. og fleira.
Re: VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:59
af Demon
Ég hef einmitt líka verið að leita að einu svona forriti intenz, mátt láta vita hérna ef þú finnur eitthvað. En until then þá stoppar þig ekkert að nota bara gamla útgáfu af hamachi.
Re: VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:05
af gRIMwORLD
Getur athugað með Wippien og Leaf Networks
Re: VPN
Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:23
af intenz
Demon skrifaði:Ég hef einmitt líka verið að leita að einu svona forriti intenz, mátt láta vita hérna ef þú finnur eitthvað. En until then þá stoppar þig ekkert að nota bara gamla útgáfu af hamachi.
Jú nefnilega, það var einhver bögg út af Windows 7.
En er virkilega svona erfitt að gera VPN forrit þar sem maður getur ráðið IP tölunni ??? Ótrúlegt að þetta sé ekki til.
En já, ég prófaði eitthvað Comodo EasyVPN og það hefur virkað best hingað til, samt ekki fullkomlega. Wippien var bara eitthvað djók. Svo síðast þegar ég prófaði Garena skildi ég ekki neitt í því. En ég ætla að prófa Leaf núna.
Re: VPN
Sent: Lau 28. Nóv 2009 16:52
af intenz
COMODO EasyVPN hefur ennþá vinninginn. Hún lætur alla hafa sömu byrjun á IP tölu þannig það er ekkert mál að spila leiki með vinum sínum over vLAN