Síða 1 af 1

Streaming MP3 Server

Sent: Sun 04. Jan 2004 17:54
af ibs
Já!! ég fann það sem ég leitaði að. Þetta er ekki eins og ShoutCast heldur er þetta svona Streaming Mp3 Server. Notendur geta valið hvaða lög þeir vilja hlusta á úr MP3 safninu mínu og streamað það í WinAmp, XMMS, Windows Media Player o.fl.

Þeir sem hafa áhuga á að setja upp svona sjálfir fara inn á http://edna.sourceforge.net/ og ná í þetta sniðuga littla Python forrit. Þarft að hafa nýjustu Python útgáfuna í tölvunni sem fæst fyrir flest stýrikerfi (http://www.python.org/).

Síðan þarf bara að opna edna.conf og skilgreina hvaða port Mp3 serverinn er á og benda á möppurnar sem innihalda mp3 skrárnar. Ég myndi líka setja user og pass. Og svo bara % python edna.py. ( Í Windows nægir að tvíklikka á edna.py skrána)

En það er eitt sem ég er í vandræðum með, það er að fá þessa scriptu til að vera service hjá mér í Windows XP, það er ekki alveg að virka.

Sent: Sun 04. Jan 2004 18:52
af Guffi
aha takk hef verið að leita af ihverju líkt þessu :D oftast rekist bara á drasl

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:05
af MezzUp
nohh, þetta líst mér vel á fyrir heima LAN, nóg að hafa MP3 safni á einni tölvu og geta spilað allstaðar frá

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:32
af Cras Override
jamms þetta er sniðugt fyrir þannig kanski að mar setji bara upp svona server þegar að þetta er komið í lag hjá mér.

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:43
af Amything
Ég hef notað þetta til að hlusta á safnið úr vinnunni, mjög smart stream server: http://www.streamsicle.com/

Sent: Sun 04. Jan 2004 22:40
af ibs
Ég prófaði að setja upp þetta Streamsicle og var það mjög einfalt í uppsetningu og flott "look" en þetta Java dót étur upp minnið svo að ég kýs frekar að nota Edna sem notar mun minna minni.

Sent: Sun 04. Jan 2004 22:42
af Cras Override
ég ætla að prófa þetta edna dót

Sent: Sun 04. Jan 2004 22:46
af dabb
þarft ekkert að gera marga pósta sem segja að þú ætlir að prufa þetta.

Sent: Sun 04. Jan 2004 22:48
af Cras Override
ok ég skal slpeppa því í framtíðinni

Sent: Sun 04. Jan 2004 22:57
af galldur
nei takk , diskurinn verður ansi snöggur að gefast upp og tengingin líka ,

þetta er kannski flott fyrir mann sjálfan prívat,
að geta hlustað á lagasafnið heima í vinnunni.

Sent: Mið 07. Jan 2004 16:10
af MezzUp
galldur skrifaði:nei takk , diskurinn verður ansi snöggur að gefast upp og tengingin líka ,

þetta er kannski flott fyrir mann sjálfan prívat,
að geta hlustað á lagasafnið heima í vinnunni.

við vorum náttla ekki að tala um að leyfa öllum að hlusta á lögin okkar. bara til þess að stream'a á heima LAN'inu svo að maður þurfi ekki að hafa lögin á öllum tölvunum.

Sent: Fös 10. Sep 2004 18:25
af andrig
þetta virkar ekki hjá mér, gæti einhver hjálpað mér að setja þetta upp?

Sent: Fös 10. Sep 2004 18:55
af MezzUp
andrig skrifaði:þetta virkar ekki hjá mér, gæti einhver hjálpað mér að setja þetta upp?

Ættir vitaskuld að búa til nýjan þráð frekar heldur en að svara hálfs-árs gömlum..............

Og hvernig eigum við svo að vita hvað er að?? :evil:
Skalt lesa upplýsingarnar á heimasíðunni, og leita síðan á Google, ef að það gengur ekki skaltu búa til nýjan póst og;
segja hvað þú ætlaðir að gera, og segja afhverju það er ekki hægt(s.s. hvað er að) og hvað þú ert sjálfur búinn að reyna