Síða 1 af 1

forgangsraða nettengingunni ?

Sent: Mið 18. Nóv 2009 23:32
af mercury
var að spá. nú spila ég tölvuleiki á netinu og konan elskar að horfa á þætti og downloada á torrent og þessháttar. málið er að þegar hún er að þessu þá fæ ég hærra ms og choke. á það til að frjósa við og við inn á milli. þetta fer alveg skelfilega í taugarnar á mér.
Var bara að spá hvort ég geti forgangsraðað tengingunni hjá mér þannig að ég fái allan forgang =) og það myndi því laga laggið.
er með 12mb tengingu hjá símanum..

Re: forgangsraða nettengingunni ?

Sent: Mið 18. Nóv 2009 23:34
af depill
Og með ST585v6 router ? ( eða aðra ST585 routera ), nei ekki sem ég man eftir að það er til almennilegur QoS á ST585....

En með réttum búnaði eða er þetta hægt.

Re: forgangsraða nettengingunni ?

Sent: Mið 18. Nóv 2009 23:36
af mercury
já ST585 er ég með. ef það skiptir einhverju máli þá er hún í fartölvu en ég beintengdur routernum.

Re: forgangsraða nettengingunni ?

Sent: Mið 18. Nóv 2009 23:40
af Gunnar
slökkva á þráðlausa á meðan þú ert í leik og segjast ekki vita hvað er að? :)

Re: forgangsraða nettengingunni ?

Sent: Mið 18. Nóv 2009 23:48
af lukkuláki
depill skrifaði:Og með ST585v6 router ? ( eða aðra ST585 routera ), nei ekki sem ég man eftir að það er til almennilegur QoS á ST585....

En með réttum búnaði eða er þetta hægt.


Ertu þá að tala um Cisco router eða eitthvað annað ?

Re: forgangsraða nettengingunni ?

Sent: Fim 19. Nóv 2009 00:06
af depill
lukkuláki skrifaði:
Ertu þá að tala um Cisco router eða eitthvað annað ?


Skomm þetta er nottulega minnsta málið með Cisco búnaði, meiri segja 877 myndi ekki svitna einu sinni pinku lítið við það að forgangsraða tengingu eða halda x bandvídd frá fyrir hann og takmarka torrent.

Hins vegar getur það orðið soldið dýrt fyrir marga, 2740 D-LINK búnaðinn á að geta þetta, en ég hef ekki reynslu á þannig búnaði til að geta lofað að hann muni höndla þetta sómasamlega.

Þannig er allavega eitt atriði á data sheetinu sem fylgir á ejs.is "lygi" ( ekki til inní búnaðinum ) í EU firmwareinu :(...

Hins vegar er líka hægt að leysa þetta þar sem þið búið saman og svona með því að limita bara í torrent clientinum hvað torrent clientinn fær mikla bandvídd og margar tengingar ?