Síða 1 af 1
windows 7 með vesen
Sent: Sun 08. Nóv 2009 21:46
af tomas52
daginn ég setti uppi W7 um daginn og var búinn að setja nokkur forrit upp og eitthvað svo kom bluescreen svo ég restartaði og það kom aftur eftir smá stund og þetta gerðist alveg svona 5 sinnum svo ég setti skrifaða w7 diskinn minn í tölvuna og ætlaði bara að setja það upp aftur og það gékk eftir alltof mörg skipti fannst mér og það gékk í dag svo kom þetta helvítis bluescreen aftur og er búin að vera að því síðan 6 í dag :/ ég er bara búin að vera restarta tölvunni eftir bláu scrínin. eða hún gerir það sjálf nema þegar ég logga mig inn þá kemur annaðhvort bluescreen eða að hún gefur mér svona 2-5 mín og þá kemur það... hvað er í gangi hérna hjá mér?
Re: windows 7 með vesen
Sent: Sun 08. Nóv 2009 21:52
af Taxi
Hvernig væri að taka yfirklukkið af á meðan þú setur upp Win 7 og ef það er ennþá vesen keyrðu þá memtest eða prufaðu annann harðann disk.
Re: windows 7 með vesen
Sent: Sun 08. Nóv 2009 22:18
af tomas52
það er ekkert yfirklukk sem ég hef sett sko
og þetta er fartölva
Re: windows 7 með vesen
Sent: Sun 08. Nóv 2009 23:20
af Taxi
Hehe ég hélt að þetta væri vélin í undirskriftinni þinni.
Er þetta sett upp af orginal disk eða brennd ISO image sem þú downloadaðir. ?
Re: windows 7 með vesen
Sent: Sun 08. Nóv 2009 23:58
af tomas52
þetta er brennt
Re: windows 7 með vesen
Sent: Mán 09. Nóv 2009 02:25
af Danni V8
Varstu búinn að nota þessa tölvu eitthvað áður en að þú settir W7 upp? Getur verið að það sé einhver búnaður í tölvunni bilaður? Innra minni t.d...
Þegar innra minnið var gallað í borðtölvunni minni náði ég einmitt að setja upp stýrikerfið en síðan fór allt í fokk fljótlega eftir það þannig ég reinstallaði og það lagaðist aldrei. Prófaðu að ná í memtest86+ (
http://www.memtest.org/) og brenna á disk. Síðan er nóg að hafa diskinn bara í tölvunni og memtest fer í gang sjálfkrafa og skannar minnin. Það komu einhver errors um leið og þegar ég var búinn með first pass voru komnir rúmlega 12þúsund errorar. Fékk minnunum skipt, keyrði memtest uppá nýtt og það kom enginn error svo ég setti upp stýrikerfið aftur og það var allt í góðu eftir það.
Re: windows 7 með vesen
Sent: Mán 09. Nóv 2009 02:50
af demigod
brenndu þetta aftur á disk á hægasta mögulega brennsluhraða og settu aftur upp, virkaði fyrir mig þegar windows7 var með eitthvað vesen
Re: windows 7 með vesen
Sent: Mán 09. Nóv 2009 17:22
af tomas52
ég var búinn að nota þessa tölvu með Windows xp í 2 mánuði og ekkert vesen svo ákvað ég að skipta yfir í Windows 7 og það gékk ekki í fyrsta og þar sem ég nota tölvuna í skólanum þá setti ég ubuntu á hana í tvo daga og ákvað svo að reyna setja windows 7 og það gékk svo datt það út af eitthverjum orsökum svo reyndi ég að setja W7 upp aftur það gékk eftir nokkrar tilraunir og þar er ég nú ég fæ alltaf blue screen
og ég skrifaði þetta á lægsta hraða
en getur maður ekki skrifað memtestið á cd disk?
Re: windows 7 með vesen
Sent: Mán 09. Nóv 2009 22:43
af tomas52
er það ekki þar sem hringurinn er er það ekki staðurinn sem errorarnir sem ég ætti að fá koma?
Re: windows 7 með vesen
Sent: Mán 09. Nóv 2009 23:28
af intenz
tomas52 skrifaði:er það ekki þar sem hringurinn er er það ekki staðurinn sem errorarnir sem ég ætti að fá koma?
Jú, en þú verður að bíða þangað til PASS fer upp í 100%
Re: windows 7 með vesen
Sent: Mán 09. Nóv 2009 23:38
af tomas52
jájá ég tók þetta af síðunni þeirra þarna.. mitt er búið að vera í gangi í 4 tíma og það er bara í gangi.. en shitt það eru komnir yfir 317 þúsund errorar :S
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 00:14
af intenz
tomas52 skrifaði:jájá ég tók þetta af síðunni þeirra þarna.. mitt er búið að vera í gangi í 4 tíma og það er bara í gangi.. en shitt það eru komnir yfir 317 þúsund errorar :S
Þá er augljóst að minnið er ónýtt. Ég keyrði einmitt þetta test á minni, fékk mörg hundruð þúsund errora, fór með tölvuna til þeirra (ábyrgð) og fékk nýtt minni.
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 00:28
af tomas52
já nema þessi tölva er keypt í ameríkunni :/ þetta er hp pavilon dv9410 us hvar fæ ég ný minni í þessa vél (ég er einnig að spurja hvernig minni eru í henni)
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 00:42
af intenz
Það er held ég eins árs alheimsábyrgð.
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 08:41
af viddi
tomas52 skrifaði:já nema þessi tölva er keypt í ameríkunni :/ þetta er hp pavilon dv9410 us hvar fæ ég ný minni í þessa vél (ég er einnig að spurja hvernig minni eru í henni)
Gjössovel
2 GB DDR21 GB DDR2Hún tekur max 2 GB
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 14:28
af tomas52
intenz skrifaði:Það er held ég eins árs alheimsábyrgð.
'
hvert fer ég þá með hana?
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 17:37
af intenz
tomas52 skrifaði:intenz skrifaði:Það er held ég eins árs alheimsábyrgð.
'
hvert fer ég þá með hana?
Umboðsaðila HP á Íslandi; Opin Kerfi.
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 18:20
af littli-Jake
ÞArf maður virkilega að brenna þetta forrit á disk
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 18:43
af Danni V8
littli-Jake skrifaði:ÞArf maður virkilega að brenna þetta forrit á disk
Það má vera að það er hægt að setja þetta á USB lykil eða Floppy disk. Ég skrifað mitt allavega á disk og þrátt fyrir að þetta er bara pínulítið og tekur innan við prósentu af plássinu á disknum, þá hef ég meiri not fyrir þennan disk en marga aðra sem ég skrifa
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 18:51
af DoofuZ
Gætir svosem líka prófað að uppfæra biosinn. Ég lenti einmitt í því þegar ég keypti mína núverandi að minnið virtist vera gallað, fór og fékk skipt en sama með það. Lagaðist svo eftir bios uppfærslu enda stóð að meðal helstu breytinga í henni væri betri minnisstuðningur
Svo það sakar ekki að prófa það, svo lengi sem það er ekki alltof erfitt að finna nýjan bios
Annars er þetta samt svo rosalega mikið af villum að þetta er örugglega bara gallað minni.
Svo varðandi memtest þá er ég svo heppinn að það er innbyggt í bios hjá mér, get kallað upp boot menu við ræsingu og keyrt það beint þaðan
En það var ekki alveg það gott í upprunalega biosnum.
Re: windows 7 með vesen
Sent: Þri 10. Nóv 2009 23:33
af tomas52
já testið er núna búið að vera í 23 klukkutíma og er búið að finna 1674496 errora sem þýðir þá væntanlega að minnið sé ónýtt :/ ég ætla að líta á félagana í opin kerfi núna á morgun eða allavega hringja og spurja að þessu :/