Síða 1 af 1
Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Mið 04. Nóv 2009 17:53
af KermitTheFrog
Jæja, nú er maður nýkominn með Ubuntu 9.10 á lappann. Það eru nokkrar spurningar sem mér brenna á vörum.
* Mig vantar góðan media player. Einhvern þægilegan og góðan, fyrir jafnt myndbanda- og tónlistarspilun. Má alveg vera sitthvort forritið.
* Mig vantar codec pakka sem coverar öll helstu formöt og slíkt
* Ég kemst ekki inn á möppur sem ég share-a úr Windows. Er alltaf beðinn um lykilorð þó slökkt sé á "password protected sharing" í Windows.
* Fleiri neat og þægileg forrit fyrir daglega vinnslu?
Er búinn að setja upp hjá mér OpenOffice fyrir skólann, og svo aMsn. Ekkert miklu meira
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Mið 04. Nóv 2009 20:14
af Gothiatek
KermitTheFrog skrifaði:* Mig vantar góðan media player. Einhvern þægilegan og góðan, fyrir jafnt myndbanda- og tónlistarspilun. Má alveg vera sitthvort forritið.
* Mig vantar codec pakka sem coverar öll helstu formöt og slíkt
VLC fyrir vídjó. Held þú þurfir enga auka codec pakka lengur, en ef svo er þá er Google vinur þinn. Amarok fyrir tónlist.
KermitTheFrog skrifaði:* Ég kemst ekki inn á möppur sem ég share-a úr Windows. Er alltaf beðinn um lykilorð þó slökkt sé á "password protected sharing" í Windows.
Ert væntanlega að nota Samba (
smb://...) til að komast í drivin... Sérðu samt drifin eftir að þú ert búinn að gefa upp lykilorðið?
KermitTheFrog skrifaði:* Fleiri neat og þægileg forrit fyrir daglega vinnslu?
Það er til aragrúi af forritum fyrir Linux, en flest það sem þú þarft fyrir daglega vinnslu er til staðar í Ubuntu
Svo fer þetta bara allt eftir því hvað þú flokkar sem "daglega vinnslu".
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Mið 04. Nóv 2009 20:31
af KermitTheFrog
Eftir að ég set inn lykilorðið (búinn að reyna bæði usrname og pw inná Ubuntu aðganginn og Windows aðganginn) þá hverfur sá gluggi í svona 2 sek og poppar aftur upp.
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Mið 04. Nóv 2009 23:48
af gardar
Smplayer er besti video spilarinn!
Getur fylgt leiðbeiningum hér til þess að fá hann með allra nýjasta mplayer
http://ubuntuforums.org/showthread.php?t=1081070Og svo er það Amarok 1.4 fyrir tónlist, nýjasti amarok sökkar.
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 01:06
af coldcut
gardar skrifaði:Og svo er það Amarok 1.4 fyrir tónlist, nýjasti amarok sökkar.
algjörlega ömurlegur! en því miður hef ég ekki fundið mér almennilegan music spilara í Ubuntu...er farinn að halda að það sé ekkert betra heldur en Winamp =/
VLC fyrir vídeó!
codec pakki er að mig minnir
Kóði: Velja allt
# apt-get install ubuntu-restricted-extras
í terminal
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 01:37
af gardar
Leiðbeiningar til að fá amarok 1.4 í ubuntu
http://thedaneshproject.com/posts/insta ... buntu-904/Annars mæli ég með því að vlc fans tékki á smplayer, hann kemur á óvart.
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 09:34
af KermitTheFrog
Hef einmitt smá óbeit á vlc, veit ekki afhverju.
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 19:33
af KermitTheFrog
Jæja, nú tókst mér að skemma eitthvað. Var að setja upp ubuntu-restricted-extras og á netinu í Firefox þegar tölvan frýs (hún hefur gert það nokkrum sinnum síðan ég setti upp 9.10) og ég gat ekkert gert nema force shutdown. Svo kveiki ég aftur og Firefox hefur corruptast eitthvað. Hann bara drepur á sér ef ég ætla inn á spjall.vaktin eða Huga eða Google (hefur ekki komið fyrir með fleiri síður, en ég prufaði ekkert margar). Hann bara einfaldlega slekkur á sér og ég get ekkert skoðað.
Það er ekkert system restore til fyrir Ubuntu?
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 20:15
af gardar
https://wiki.ubuntu.com/TimeVault er fínt fyrir restore
Hvaða villu skilaboð koma annars ef þú ræsir firefox úr terminal?
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 21:55
af KermitTheFrog
gardar skrifaði:https://wiki.ubuntu.com/TimeVault er fínt fyrir restore
Hvaða villu skilaboð koma annars ef þú ræsir firefox úr terminal?
Kóði: Velja allt
Fonconfig error: "/etc/fonts/conf.d/30-defoma.conf", line 1: no element found
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Fim 05. Nóv 2009 22:29
af dori
Fáðu þér GnomeDo til að kveikja á forritum, Super+bilstöng og þá slærðu bara inn nokkra stafi og ert kominn í forritið. Mér hefur alltaf fundist Rhythmbox virka fínt fyrir tónlist, nota það ekki mikið en hefur alltaf náð að duga mér.
Google Chrome er fáanlegur fyrir Linux (
http://dev.chromium.org/getting-involved/dev-channel) en ef þér finnst Firefox betri þá er það auðvitað bara flott.
Fyrir utan það er ég ekki með neitt annað en það sem kemur með eða hefur verið talið upp í þessum þræði (nema forritunar tól sem þú þarft væntanlega ekki á að halda).
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Sun 08. Nóv 2009 20:35
af gardar
KermitTheFrog skrifaði:Kóði: Velja allt
Fonconfig error: "/etc/fonts/conf.d/30-defoma.conf", line 1: no element found
prófaðu að keyra
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Sun 08. Nóv 2009 20:42
af KermitTheFrog
Setti kerfið upp, upp á nýtt bara.
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Sun 08. Nóv 2009 20:43
af gardar
Þú lærir ekkert af því maður
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Sun 08. Nóv 2009 20:59
af KermitTheFrog
Neinei, þurfti bara að hafa kerfið up and running yfir helgina.
Re: Ubuntu 9.10 - Ýmislegt
Sent: Sun 15. Nóv 2009 00:59
af kizi86
með tónlistarforrit.. ég nota Audacious.. finnst það bara mjög fínt og er ekkert ósvipað og Winamp í útliti