Síða 1 af 1
Tölvan restartar sér við upload
Sent: Lau 27. Des 2003 22:15
af hallihg
Ég hef sent inn þráð um þetta áður en fékk í rauninni engin nytsamlega svör, svo ég spyr aftur.
Málið er, að í hvert skipti sem einhver byrjar að uploada frá mér á DC hubbum, þá restartar tölvan sér. Þetta gerist líka á lönum þegar einhver fer að browsa það sem ég er með í share. Ég hef reynt að installa nýjum driver fyrir netkortið en það breytti engu. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta er pirrandi
. Hafiði einhverja hugmynd um hvernig ég get lagað þetta, án þess að formatta?
kveðja
HalliHg
Og ef þið getið ekki hjálpað þá væri ágætt ef þið mynduð sleppa því að svara, svo ég fái ekki heilan aragrúa af emailum
Sent: Lau 27. Des 2003 23:41
af GuðjónR
Fyrsta sem manni dettur í hug er vírus, ertu búinn að vírustékka?
Ef ekki farðu þá
HINGAÐ og vírustékkaðu tölvuna.
Sent: Sun 28. Des 2003 14:11
af gnarr
tékkaðu hvort þú getur update-að firmware-ið á netkortinu. annars geturu líka prófað að uppfæra biosinn. ef ekkert gengur, þá geturu altaf testað að skipta á kortum við vin þinn, kanski virkar þitt kort fínt hjá inhverjum vini þínum og hanns kort hjá þér.
Sent: Sun 28. Des 2003 23:37
af hallihg
Ég er með smá update hérna;
Tölvan virðist restarta sér einnig þegar ég downloada frá fleiri en 2 aðilum á Dc++ hubbum. Mér þykir afar líklegt að þetta sé tengt því að tölvan restarti sér líka þegar einhver uploadar frá mér.
kveðja,
Sent: Sun 28. Des 2003 23:53
af gnarr
þú lætur okkur líka ekkert vita nógu mikið hvað þú ert búinn að gera.. ertu búinn að gera það sem ég var að stinga uppá áðan? virka önnur forrit, td. eins og odc eða dc pro
Sent: Sun 28. Des 2003 23:56
af Pandemic
i think he is faking it
Sent: Mán 29. Des 2003 01:20
af hallihg
Ég hef oft prófað oDC og önnur forrit, það breytti engu, enda held ég að þetta tengist dc forritinu ekki á neinn hátt, þe. það sé ekki blóraböggullinn. Ég held að ég sé ekki einu sinni með firmwire á netkortinu mínu, og ég veit ekkert hvert skal leita til þess að uppfæra biosinn minn.
Sent: Mán 29. Des 2003 03:06
af gnarr
segðu okkur hvernig móðurborð þú ert með.. hvað framleiðanada og týpu
Sent: Mán 29. Des 2003 04:43
af Zaphod
þarft eiginlega að koma með nákvæmari lýsingu á tölvunni þinni . Stýrikerfi, velbúnaður........
ertu að nota BitTorrent?
Sent: Mán 29. Des 2003 17:46
af hallihg
Eftir mikið fikt í support center og því öllu held ég að ég hafi náð að laga þetta. Ég fann upplýsingar um þennan error,
hér. Þarna stendur að tölvan restarti sér ef notandi er að nota Windows XP með sausb.sys driver fyrir Universal Reader frá Lexar Media, sem er eldri en version 4.6. Ég hef aldrei heyrt um þennan Universal Reader, en þetta er víst einhvers konar USB memory dót. Ég googglaði eftir version 4.6 af þessum driver og fann einn á heimasíðu fyrirtækisins
hérna. Ég downloadaði Lexar USB Combo Reader 4.6.zip drivernum, og installaði. Eftir reboot fór ég beint á Ásgarð og viti menn, tveir hófu að hlaða lögum frá mér og ekkert gerðist. Vonandi er þetta horfið fyrir fullt og allt, en þetta er samt ótrúlega skrýtið þar sem að ég hef aldrei heyrt um þennan universal reader og hvað þá þetta Lexar Media fyrirtæki. Ætli þessi 4.6 version sausb.sys fæll hafi ekki lagað þetta. Takk fyrir hjálpina allir.