Síða 1 af 1
Hjálp með windows
Sent: Þri 23. Des 2003 15:22
af kjarri
Málið er að fyrir svona viku síðan var eg að defragimenta og allti einu fraus tölvan, er með xp og hef verið með það frekar lengi og tölvan hefur aldrei frosið áður. Ég gat ekkert gert þurfti að slökkva á henni með því að halda takkanum inni. Núna er tölvan alveg endalaust hæg og frýs stundum þegar windows er að loadast , en annars frýs alltaf á henni eftir svona 15-30min.
Gæti verið að minnið hafi skemmst á þessum tímapunkti eða ?
Sent: Þri 23. Des 2003 15:30
af gumol
1. Það er TÖLVA ekki tölva.
2. Það er alveg möguleiki
3. Náðu þér í einhver forrit sem geta scannað minnið án þess að nota windows (semsagt bootup geysladisk) og láttu það ganga yfir nótt. Þú getur lesið meira um forrit sem gera þetta á eldri þráðum.
Sent: Þri 23. Des 2003 15:33
af Voffinn
Spurning hvort vifurnar séu eitthvað að klikka? Opnaðu dolluna og kíktu á örgjörvaviftuna.
Sent: Þri 23. Des 2003 15:35
af MezzUp
ég hef aldrei heyrt um vinnsluminni sem að hefur skemmst alltíeinu, bara heyrt um gölluð minni frá verksmiðjunni......
Sent: Þri 23. Des 2003 15:41
af elv
Er Windows ekki bara komið í steik.Bootaðu af XP disknum (CD) og athugaðu hvort þú getir ekki lagað Windows
Sent: Þri 23. Des 2003 15:55
af kjarri
eftir að hún fraus í fyrsta skiptið, komst eg ekkert inn í windows því það fraus alltaf þegar windows var að loadast. Þá formattaði eg tÖlvuna
og setti xp aftur upp og samt hélt hún áfram að frjósa og vera hæg :/
Sent: Þri 23. Des 2003 17:45
af Snorrmund
Ég myndi halda að þetta væri örgjörvinn að ofhitna gerðist með minn einusinni skellti einhverjum Coolermasterr á þetta og tölvan virkar...
Sent: Mið 24. Des 2003 01:26
af kjarri
ég efa að þetta hafi eitthvða með hitann á örgjorvanum að gera, ég hafði slokkt á tolvunni yfir nótt en samt fraus hún í start up.
Eitt enn, hvernig get eg séð hvort eg sé með Via4in1 driver og hvar fæ eg svoleiðis ef eg er ekki með það ?
Breytir miklu að hafa svona 4in1 ?
Sent: Mið 24. Des 2003 01:48
af gnarr
þú hefur 4in1 náttúrulega allsekki inni nema þú sért með via chipsett
Sent: Mið 24. Des 2003 02:05
af kjarri
getur ekki bara verið að moboið mitt sé farið :/
Sent: Mið 24. Des 2003 04:44
af gnarr
mér fynndist hd líklegra þótt bæði sé ólíklegt.
Sent: Fös 26. Des 2003 18:05
af kjarri
ég er buinn að komast að einu... alltaf ef eg er að skanna fyrir virus eða defragimenta þá frys hun þegar hun kemur á einhvern akveðinn stað í windows foldernum
Sent: Fös 26. Des 2003 18:08
af ICM
keyrðu eitthvað scan disk forrit, reyndu að einangra skemmdu staðina á disknum þínum og vonaðu það besta.
Sent: Mán 29. Des 2003 14:52
af kjarri
Vitiði um eitthvað gott scan disk forrit ?? scan disk forritið í windows vill ekki keyra sig hja mer... kemur alltaf að Scan disk þurfi að fa aðgang að sumum windows fælum sem hun fær ekki aðgang að nuna, en biðst til að gera þetta næst þegar windows startar ser upp.
En þegar eg restarta þa kemur scan disk ekki :/