Síða 1 af 1

Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mán 05. Okt 2009 23:33
af KermitTheFrog
Sælir

Fékk fyrir mánuði eða tveimur fékk ég nýjan router frá Tal og auðvitað kemst ég ekki inn með því að smella default gateway úr ipconfig inn í browserinn. Svo ég hringi bara þarna niðureftir og bið þá um að opna fyrir mig port. Þeir gera það og ég prófa með µTorrent hvort það sé ekki örugglega opið, og jújú, það er það.
Nú undanfarið hef ég tekið eftir því að µTorrent er eitthvað tregt að tengja sig við aðra svo ég smellti á græna checkmarkið sem tilkynnir að portið sé opið og smelli á "Test if port is forwarded properly". En viti menn, það virðist vera búið að loka portinu. WFT?

Ég man að einhver gaf mér einhverja tölu/slóð inná routerstillingarnar, en ég man bara ósköpin ekki hvar. Einhver hérna sem veit um leið?

Ætla að hringja þangað niðreftir á morgun ef mér tekst ekki að finna út úr þessu.

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mán 05. Okt 2009 23:46
af AntiTrust
Ég var alltaf að lenda í þessu, port reglan virtist alltaf detta út þangað til ég restartaði routernum. Hætti þegar ég fékk aðgang að routernum og gerði þetta sjálfur.

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mán 05. Okt 2009 23:53
af Blackened
uh.. er pottþétt að það sé sama ip tala á vélinni? þaðer.. routerinn hafi ekki gefið þér aðra ippu..
ég hringdi í TAL og lét opna haug af portum einhverntímann og það virkar ennþá.. þó ég hafi restartað routernum og tölvunni nokkrumsinnum síðan þá

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mán 05. Okt 2009 23:55
af KermitTheFrog
Já, sýnist vera sama ip tala á tölvunni.

Finnst nú bara asnalegt að mega ekki gera þetta sjálfur.

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Þri 06. Okt 2009 00:27
af SteiniP
Þessir gaurar í þjónustuverinu eru alveg merkilegir sumir. Einhvernveginn tekst að klúðra einföldustu verkefnum eins og opna port.
Ég hef nánast undantekningarlaust þurft að hringja tvisvar í hvert skipti. Lenti á einum sem að hélt greinilega að það að forwarda porti væri það sama og að slökkva á eldveggnum.

Hringdi samt um daginn og bað um að fá aðgang á routerinn svo ég gæti sett WPA-PSK vörn á þráðlausa netið, það var ekkert mál.
Þá fer ég bara inná http://externaliptalan:87
Þarft að gera þetta í IE, það þarf að leyfa sérstaklega tengingar á port 87 í about:config í FF

Passwordið hjá mér var allavega 123456

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Þri 06. Okt 2009 00:59
af Blackened
öhm.. þó að merkið sé grænt í uTorrent þá er það greinilega blöff :oops:

tékkaði á hvort að torrent portið mitt er forwardað og það var það ekki.. fjandskotans..
..sennilega þessvegna sem að torrentar eru búnir að taka forever að sækjast undanfarna daga

gerði samt eins og SteiniP og ég komst inn í routerinn þannig.. en ég get ekki stillt neitt þar eða gert neitt.. svo að það er frekar useless :S

..hringi í þá á morgun.. ef þeir svara þá í símann.. hefur einhver orðið var við það að það er frekar erfitt að ná í þjónustuverið stundum?

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Þri 06. Okt 2009 21:56
af KermitTheFrog
SteiniP skrifaði:Þessir gaurar í þjónustuverinu eru alveg merkilegir sumir. Einhvernveginn tekst að klúðra einföldustu verkefnum eins og opna port.
Ég hef nánast undantekningarlaust þurft að hringja tvisvar í hvert skipti. Lenti á einum sem að hélt greinilega að það að forwarda porti væri það sama og að slökkva á eldveggnum.

Hringdi samt um daginn og bað um að fá aðgang á routerinn svo ég gæti sett WPA-PSK vörn á þráðlausa netið, það var ekkert mál.
Þá fer ég bara inná http://externaliptalan:87
Þarft að gera þetta í IE, það þarf að leyfa sérstaklega tengingar á port 87 í about:config í FF

Passwordið hjá mér var allavega 123456

Ég kemst inn með þessu móti, en get ekkert gert þarna inni.

Feilaði alveg á því að hringja þarna niðreftir í dag.

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mið 07. Okt 2009 07:26
af DoofuZ
Ég er með svo mikið af port forward að ég sendi alltaf bara email, fór líka að senda þeim lista yfir mac addressur á tölvunum og hvaða ip-tölur áttu að vera á þeim fljótlega eftir að ný tölva á heimanetinu fór að stela ip-tölu af annari :roll: Hefur alltaf virkað nema núna síðast þá var einhver starfsmaður sem klúðraði einhverju, það var einmitt eitthvað tengt eldvegg #-o

Reyndi svo að fara inná minn router með lykilorðinu 123456 en það virkaði ekki :? Eitthvað annað sem menn vita um? Er kannski til eitthvað gott password hakkaraforrit fyrir þetta? :-k 8-[

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mið 07. Okt 2009 08:52
af KermitTheFrog
Pw hjá mér var 1234

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mið 07. Okt 2009 10:15
af AntiTrust
DoofuZ skrifaði:Ég er með svo mikið af port forward að ég sendi alltaf bara email, fór líka að senda þeim lista yfir mac addressur á tölvunum og hvaða ip-tölur áttu að vera á þeim fljótlega eftir að ný tölva á heimanetinu fór að stela ip-tölu af annari :roll: Hefur alltaf virkað nema núna síðast þá var einhver starfsmaður sem klúðraði einhverju, það var einmitt eitthvað tengt eldvegg #-o

Reyndi svo að fara inná minn router með lykilorðinu 123456 en það virkaði ekki :? Eitthvað annað sem menn vita um? Er kannski til eitthvað gott password hakkaraforrit fyrir þetta? :-k 8-[

Nóg til af bruteforce forritum f. svona.

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Mið 07. Okt 2009 11:57
af KermitTheFrog
Myndi samt reyna admin, 1234, 12345, admin 1234 o.s.frv. áður en þú ferð að hakka pw

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Fim 28. Júl 2011 14:14
af zcar
Lykilorðið var 1234

Re: Routerstillingar hjá Tal

Sent: Fim 28. Júl 2011 14:26
af Benzmann

hahahaha