Síða 1 af 1
Vodafone/Tal Ljós
Sent: Fim 01. Okt 2009 18:13
af coldone
Ætla að skella mér á Ljósleiðaratengingu og valið stendur á milli Vodafone og Tal. Var að spá hvort menn hafi einhverja slæma sögu að segja um þessar tengingar hjá Vodafone eða Tal? Pakkaverð hjá Vodafone er hagstæðara, en áður en maður skiptir um fyrirtæki væri gott að fá smá feedback.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Fim 01. Okt 2009 18:24
af ManiO
Er hjá Voda með ljós, 120 gig á mánuði og er bara sáttur, nema við liðið sem sendir reikningana.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Fim 01. Okt 2009 19:02
af andripepe
Tal bauð mér frítt niðurhal, en bara 20 mb tengingu, og frian heimasima en ekkert sjonvarp
ég færði mig yfir í vodafone í 50 mb tengingu,frian heimasima,og sjónvarp(myndlykil) og það er 2þúsnud kalli ódyrara en eg var að borga tal fyrir bara 20 mb tengingu
En annars ekkert slæmt að segja um tal tenginuna aldrei neitt vesen,
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Fim 01. Okt 2009 23:27
af Krissinn
Tal er rekið í gegnum vodafone. Ef eitthvað bilar í interneti hjá Vodafone þá gerist það hjá Tal líka.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Fim 01. Okt 2009 23:40
af hagur
Ég er hel sáttur hjá Vodafone, með 50mbit ljós og 70gb erlent d/l á mánuði. Þessi tenging bara virkar, er stabílli en andskotinn.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 13:29
af coldone
Takk fyrir svörin
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 13:50
af andr1g
krissi24 skrifaði:Tal er rekið í gegnum vodafone. Ef eitthvað bilar í interneti hjá Vodafone þá gerist það hjá Tal líka.
Nei ekkert endilega.
Vodafone er heildsali fyrir Tal... Tal á nú einhvern slatta af tengingum sjálfir síðan Hive var til en selja núna einungis tengingar gegnum Vodafone m.a til að geta boðið uppá IPTV.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 15:02
af ZoRzEr
Vodafone ljos 50mb 120gb download a manuði. Mjög anægður með þetta, ekkert downtime hingað til eftir 6 manuði i notkun og sjonvarpið er mjög sniðugt. Eina er kannski það að þraðlausa netið er ekki nærrum þvi jafn stöðugt og snuran, mun meira heldur en með ADSL i minni reynslu.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 15:45
af depill
andr1g skrifaði:Nei ekkert endilega.
Vodafone er heildsali fyrir Tal... Tal á nú einhvern slatta af tengingum sjálfir síðan Hive var til en selja núna einungis tengingar gegnum Vodafone m.a til að geta boðið uppá IPTV.
Júmm endilega. Vodafone keypti tæknihluta HIVE út áður en HIVE og SKO var smellt saman, þannig er AS34464 ( gamla HIVE ASið ) dautt og hefur verið sameinað AS12969 ( Vodafone ASið ). Þannig ef það bilar eithvað hjá Vodafone sem hefur áhrif á marga kúnna er líklegt að það sé líka bilað hjá Tal, þar sem að Tal er eingöngu þjónustufyrirtæki í dag ( Ég versla samt við TAL þrátt fyrir að vita þetta )
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 16:34
af Pollonos
Hef verið með ljós hjá Vodafone í tæplega tvö ár. 50mb hraði og 70gb niðurhal. Þetta bara virkar. Í þau fáu skipti sem maður hefur þurft að hringja í þjónustuver vodafone hefur viðmótið verið alveg einstaklega gott, þeir vilja allt fyrir mann gera...!
Annað varðandi ljósið, ég get ekki séð að þeir séu að mæla gagnamagn hjá mér. Getur einhver staðfest það að Vodafone séu í raun að mæla gagnamagn í gegnum ljós?
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 16:54
af Gúrú
Pollonos skrifaði:Annað varðandi ljósið, ég get ekki séð að þeir séu að mæla gagnamagn hjá mér. Getur einhver staðfest það að Vodafone séu í raun að mæla gagnamagn í gegnum ljós?
Ég.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 17:31
af benson
Pollonos skrifaði:Hef verið með ljós hjá Vodafone í tæplega tvö ár. 50mb hraði og 70gb niðurhal. Þetta bara virkar. Í þau fáu skipti sem maður hefur þurft að hringja í þjónustuver vodafone hefur viðmótið verið alveg einstaklega gott, þeir vilja allt fyrir mann gera...!
Annað varðandi ljósið, ég get ekki séð að þeir séu að mæla gagnamagn hjá mér. Getur einhver staðfest það að Vodafone séu í raun að mæla gagnamagn í gegnum ljós?
Ég er búinn að vera með Vodafone 50mb ljós síðan í mars og 40gb gagnamagn. Svona var gagnamagns notkunin.
Ágúst 2009 35,75 GB
Júlí 2009 66,57 GB
Júní 2009 43,54 GB
Maí 2009 91,45 GB
Apríl 2009 39,47 GB
Mars 2009 24,62 GB
Ég fór semsagt yfir gagnamagnið 3 mánuði í röð (maí, júní og júlí) en var samt aldrei cappaður. Í september var gagnamagninu breytt í 70gb og þá fóru þeir að cappa mig eftir að ég fór yfir 70gb. Þannig að já það er verið að mæla gagnamagnið hjá þér og þetta varð til þess að ég breytti í 120gb.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 17:47
af Pollonos
Ok, en ef ég fer inn á
http://www.vodafone.is/internet/adsl/gagnamagn Kemur upp að ekki sé hægt að birta upplýsingar um notkun á minni tengingu. Það hefur verið þannig frá því í mars.
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 18:28
af benson
Spurning um að spjalla þá við þjónustuver?
Re: Vodafone/Tal Ljós
Sent: Lau 03. Okt 2009 18:55
af hagur
Það hefur gerst hjá mér, og þá hef ég getað farið inná Tal síðuna og séð gagnamagnið þar .... svo hefur það hætt að virka og þá virkar aftur gagnamagnssíðan á Vodafone.is Frekar furðulegt.
Prufaðu þessa síðu:
http://www.tal.is/index.aspx?GroupId=771