Hjálp við netkerfi
Sent: Fim 01. Okt 2009 00:22
Ég er með Leið 2 hjá Símanum og nota Linksys WAG200G router og er með 8 tölvur, þar af eru 3 fartölvur og mér finnst netið vera svolítið hægt að vinna hjá mér. Það eru 2 borðtölvur tengdar beint í routerinn og 2 í gegnum 5 porta swicth og svo er ég einnig með Linksys NAS en það er tengt í 8 porta Switch ásamt 1 borðtölvu. Get ekki verið með einn Switch þar sem einn er á neðri hæð (þessi sem 2 tölvur tengjast í) og hinn switch-inn er á sama stað og routerinn. Svo er ég með 2 heimasíma og eru báðir með símsíu sem virkar. Það eru 3 tölvur sem utorrent er í. Svo eru 2 tölvur með CS og þær eru báðar tengdar 5 porta switch-inum auk þess er önnur þeirra með utorrent. Og Þegar CS er spilaður þá er ekki hægt að hafa kveikt á utorrent á meðan því þá laggar svo mikið í CS. Hinar 2 sem nota utorrent eru báðar tengdar í routerinn. Vill reyna að laga þetta til að fá meiri hraða. Get hugsanlega ekki fengið mér stærri pakka hjá Símanum þar sem ég bý ekki á Ljósleiðarasvæði og ég prófaði leið 3 hjá Símanum en það var ekki að virka, netið datt alltaf út á klukkutíma fresti. Hvað get ég eiginlega gert? skipta um símdós, símalínuna inní húsinu? Mér var reyndar sagt að hún er gömul en þar sem þetta hús var einu sinni notað undir skrifstofu-rekstur þá er ég ekki alveg að trúa því að það hafi ekki verið lagað til þá. Reyndar var engin kapall úr inntakinu og í dósina (inntakið er niðri kjallara og dósin uppi) En það kom maður og tengdi það saman. En ég bið ykkur um hjálp