Síða 1 af 1
Tölvan þarf forgangsröðun, notar allt cpu-ið í file sharing
Sent: Fim 18. Des 2003 12:12
af Roggi
Slíkt er vandamálið að í hvert skipti sem einhver nær í shared files hjá mér þá fer tölvan mín í algjört rusl og gengur eins og 50hz útvarp.
Þetta er meira en lítið pirrandi á lani þar sem að tölvan mín er ónothæf til nokkurs á meðan verið er að ná í hluti af henni, sem að getur stundum verið dágóð stund enda er mikið verið að downloada frá mér.
Er ekki leið til að segja tölvunni að einbeita sér frekar að því sem
ég er að gera en ekki að að sniðganga mig meðan annar er að ná í hluti?
Ég keyri XP Home. Vona að einhver hafi fundið lausn á þessu meini.
Sent: Fim 18. Des 2003 14:35
af elv
Þú getur í TaskManager , hægrismellt á Processes og set Priority eins og þú vilt.
En þetta gæti líka verið harði diskurinn sem er ekki að ráða við þetta.Ef þú ert bara með ein disk þ.e.a.s
Sent: Fim 18. Des 2003 14:37
af Roggi
Þetta er ekki process, bætist allavega ekkert process við þó þetta fari í gang.
Ég er með tvo diska, en systemið er ekki með sér system disk.
Sent: Fim 18. Des 2003 14:40
af elv
Hafðu taskmanagerinn opin á processes.Og startaðu þá þessu P2P sem þú ert með, þá sérðu það koma inn þar
Sent: Fim 18. Des 2003 16:01
af Spirou
Hann er áræðanlega ekki með ultra dma í gangi sem þýðir að örgjörvinn þarf að sjá um að kópera öll gögn frá hörðum disk yfir í minni og þaðan á netkortið.
Í taskmanager er nokkuð sem heitir "Show Kernel Times" sem bætir við rauðri línu á grafið þá serðu hvað örgjörvinn er að eyða miklu í stýrikerfisköll(þar á meðal skráarvinnsla).
Að kópera frá hörðum disk á ekki að taka nema 5 til 10% af örgjörvanotkunin ef allt er rétt stillt.
Sent: Fim 18. Des 2003 17:26
af Roggi
Og hvernig á þetta að vera "rétt stillt"?
Sent: Fim 18. Des 2003 17:53
af Spirou
Roggi skrifaði:Og hvernig á þetta að vera "rétt stillt"?
réttir móðurborðs driverar uppsettir
Fyrri AMD móðurborð þá eru mjög margir með VIA 4in1(man ekki nýja nafnið).
Sent: Lau 20. Des 2003 20:26
af Snorrmund
elv skrifaði:Hafðu taskmanagerinn opin á processes.Og startaðu þá þessu P2P sem þú ert með, þá sérðu það koma inn þar
ég er ekki viss en ég held að hann sé að tala um Windows File Sharing sem þú getur notað ef þú ert á lani með því að fara í my network places þar sést hverjir eru á laninu o.s.f. ... annars ekki viss
Sent: Mán 22. Des 2003 23:30
af Roggi
Ég hef prófað að fylgjast með task manager á fyrir, á meðan, og eftir file sharing og það bættist ekkert inn á process listann. Var heldur ekkert augljóst lan process.
Sent: Mán 22. Des 2003 23:45
af MezzUp
Roggi skrifaði:Ég hef prófað að fylgjast með task manager á fyrir, á meðan, og eftir file sharing og það bættist ekkert inn á process listann. Var heldur ekkert augljóst lan process.
hann hélt að þú notaðir eitthvað sér p2p forrit, það kemur ekkert sér proccess fyrir windows file sharing.
annars myndi ég bara skella upp DC hub og láta menn tengjast með oDC eða DC++
Sent: Þri 23. Des 2003 00:06
af Roggi
Það er óásættanleg lausn
Vill helst ná að stilla eitthvað þannig að þetta virki betur. En það er líklega enginn hérna sem kann það fyrst ég er ekki ennþá búinn að fá lausnina.
Sent: Þri 23. Des 2003 02:12
af Zaphod
ertu með Enable Write Caching á ?
eða er diskurinn kannski stilltir á PIO?
Sent: Þri 23. Des 2003 03:46
af gnarr
testaðu líka nýja drivera á netkortið
Sent: Þri 23. Des 2003 15:49
af Roggi
Hmm, fínt. Þetta var stillt á PIO. Setti á DMA eins og þú sagðir mér. Sýnist það reyndar ekki vera virkt núna, kemur líklega við restart.
Jæja, vona þá að þetta sé komið.
Takk fyrir hjálpina.
Sent: Mið 24. Des 2003 00:51
af Zaphod
yup þar liggur hundurinn líklega grafinn