Síða 1 af 1
Internet vandamál
Sent: Sun 13. Sep 2009 20:18
af Krissinn
Eru einhverjir hér búnir að lenda í veseni eftir að þeir breyttu áskriftarleiðum á internetinu hjá símanum? Ég færði mig í 120 GB pakkann og eftir það er netið alltaf að detta annað slagið út hjá mér :S fleiri með sama vesen?
Re: Internet vandamál
Sent: Sun 13. Sep 2009 20:26
af binnip
Ég er með 2mb tengingu sem hefur reynst vel, s.s ekki verið mikið að detta út þótt netið sé stundum hægt. En núna um helgina hefur þetta verið að detta soldið mikið út.
Re: Internet vandamál
Sent: Mán 14. Sep 2009 01:00
af Krissinn
okey
held að þessir nýju pakkar hjá símanum séu ekki nógu góðir ennþá, þeir þora bara ekki að viðurkenna það!
Re: Internet vandamál
Sent: Mán 14. Sep 2009 01:28
af Vectro
Virkar fínt hér. 16 Mb og ekki orðið var við neinar truflanir.
Re: Internet vandamál
Sent: Mán 14. Sep 2009 06:40
af Krissinn
ok
ég Bý á Suðurnesjum reyndar, en þetta hefur verið alveg í lagi áður en ég breytti þessu :S
Re: Internet vandamál
Sent: Mán 14. Sep 2009 10:08
af siminn
krissi24 skrifaði:Eru einhverjir hér búnir að lenda í veseni eftir að þeir breyttu áskriftarleiðum á internetinu hjá símanum? Ég færði mig í 120 GB pakkann og eftir það er netið alltaf að detta annað slagið út hjá mér :S fleiri með sama vesen?
Sæll krissi24,
Geturðu sent mér upplýsingar í einkaskilaboðum um símanúmerið sem tengingin er á svo að ég geti látið athuga þetta fyrir þig og lagað.
Það er ekkert í þessum nýju leiðum sem á ekki að virka enda ekkert í þeim sem við höfum ekki gert áður.
Sendu mér skilaboðin og við reddum þessu.
kveðja,
Guðmundur hjá Símanum.
Re: Internet vandamál
Sent: Mán 14. Sep 2009 11:40
af Snorrivk
Ég breitti í 16Mb hjá mér um mánaðamót og þetta er stundum eins og ég sé á 56k módemi.(er i Grindavík)