Síða 1 af 1

ReadyBoost

Sent: Mán 31. Ágú 2009 19:23
af nessinn
Var að spá hvort einhver hefði einhverja reynslu af þessu ReadyBoost sem kemur með Vista og mun líka koma í Windows 7.

Gerir þetta tölvuna eitthvað hraðari ?

Ég er með fartölvu með 2 GB í RAM og 2GHz Intel Core Duo.
Væri alveg til í að sjá aðeins meiri hraða í tölvunni án þess að fara í einhverjar heavy aðgerðir eins og að kaupa nýtt minni.

Re: ReadyBoost

Sent: Mán 31. Ágú 2009 19:24
af CendenZ
nessinn skrifaði:Var að spá hvort einhver hefði einhverja reynslu af þessu ReadyBoost sem kemur með Vista og mun líka koma í Windows 7.

Gerir þetta tölvuna eitthvað hraðari ?

Ég er með fartölvu með 2 GB í RAM og 2GHz Intel Core Duo.
Væri alveg til í að sjá aðeins meiri hraða í tölvunni án þess að fara í einhverjar heavy aðgerðir eins og að kaupa nýtt minni.



Heavy aðgerð að setja meira minni í vélina ?? :lol: :lol:

Re: ReadyBoost

Sent: Mán 31. Ágú 2009 19:35
af SteiniP
Er ekki málið bara að prófa?
Þú átt samt ekki eftir að finna nálægt jafn mikinn mun og ef þú bætir við minni, sem er nú ekkert "heavy" aðgerð svosem.

Re: ReadyBoost

Sent: Mán 31. Ágú 2009 19:47
af Hvati
Þú tekur líklegast ekki eftir miklum mun með Readyboost nema þú sért með eldri og hægari tölvu. Getur líklega fundið fólk tala um þetta á http://www.Google.com :wink:

Re: ReadyBoost

Sent: Mán 31. Ágú 2009 19:49
af AntiTrust
Readyboost gerir ekkert fyrir tölvur sem eru með 2Gb eða meira fyrir, og lítið sem ekkert ef þú ert með 1Gb.

Stærsti og næstum eini munurinn sést á tölvum sem eru með 512Mb, sem er sjaldséð á Vista vélum.