Síða 1 af 1

RH Linux á Desktop vél með brennara?

Sent: Fim 09. Jan 2003 13:49
af Tinker
Jæja, þá langar mig enn og aftur að reyna við RH, helst 8,
á desktop vélina mína.

Þarf að koma uppsett með stuðning fyrir CD brennslu og
bara brennslu, ekkert re-write, over-write og solleis.

Er þetta til í dag? Síðast þegar ég gafst upp á Linux á desktop
vélinni minni þá fékk ég þetta aldrei inn hjá mér *andvarp*

Sent: Lau 25. Jan 2003 14:10
af Mandarax
Ég er með Redhat 8.0 á ferðavélinni minni, reyndar ekki með skrifara, en allt sem ég þarfnast er í stýrikerfinu. Allavega tvö skrifaraforrit eru með kerfinu þannig að það ætti örugglega ekki að vera vandamál.

Ég notaði Redhat 7.0 töluvert, en 8.0 er að mínu mati mörgum sinnum betra. Eina sem ég sakna úr windows er IE, skömm að segja frá. Mozilla er svo sem ágætur, en það eru bara svo margir vefir skrifaðir með IE í huga þannig að það getur verið vandamál.

Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi kerfið get ég reynt að svara eftir bestu getu, en ég er þó enginn linux sérfræðingur.

M.

Sent: Lau 25. Jan 2003 22:21
af Tinker
Þakka ábendinguna M!
Ég var lengi með RH7.x og setti það nokkrum sinnum upp,
tala ekki um eftir að ég uppgötvaði ftp install.
Var samt alltaf að svekkja mig á að RH7.x bauð upp á
"workstation" install en með því kemur ekki kjarni sem
styður brennara! *fáránlegt imho*
Finn ekkert um þetta á redhat.com fyrir RH8 þannig að ég
get bara giskað á að þetta sé ekki enn komið inn hjá þeim.
Á meðan ætla ég ekki að eyða meiri tíma í RH uppsetningar :!:

Sent: Sun 26. Jan 2003 20:15
af Mandarax
Ég held að flestir noti custom install, ekki server eða workstation valmöguleikana, til að geta valið betur hvað fer inn. Ég gerði það og fékk einhvern ágætan milliveg, en eins og ég segi þá veit ég ekki alveg með skrifarastuðninginn. Prófaðu endilega 8.0, það er alltaf svo gaman að setja upp nýtt stýrikerfi :D

M.

Stuðningur fyrir brennara inni í RH8! og það með stæl!

Sent: Lau 22. Feb 2003 19:40
af Tinker
Jæja, skellti rh8 inn og viti menn, þetta er komið inn og það svínvirkar, engar meldingar,
ekkert config í fleiri tíma, bara valdi inn skrár, smellti á "burn" og það mas á multisession cd....
oh happy happy joy joy!