Síða 1 af 1
Hvar er best að fá ljósleiðara?
Sent: Fim 13. Ágú 2009 13:50
af JohnnyX
Hjá hvaða fyrirtæki er best að vera í ljósleiðaraáskrift? Endilega deilið reynslusögum um kosti og galla etc.
Re: Hvar er best að fá ljósleiðara?
Sent: Fim 13. Ágú 2009 14:50
af ManiO
Væri gaman að heyra í einhverjum sem er hjá Hringiðunni myndi gefa góða lýsingu á sinni reynslu.
En annars er ég hjá Vodafone og er að velta því fyrir mér að skipta um fyrirtæki. Er búinn að fá endalaus bréf frá alls kyns innheimtufyrirtækjum og þrátt fyrir óteljandi símtöl virðist þetta ekkert lagast. En annars virkar tengingin fínt, með réttan router. Næ oftast að fá hámarkshraða á tengingunni á torrentum hérlendis. Hraðinn út í P2P er ekkert til að hrópa húrra fyrir, en við því má búast frá öllum netveitum. Leikjaspilun (PS3) gengur snurðulaust fyrir sig og í þeim tilfellum sem ég hef lent í veseni með það var það ekki tengingunni að kenna.
Hef heyrt um fólk sem er í veseni með Tal og opna port og einnig virðast þeir vera tregir til að leyfa fólki að nota eiginn router.
Re: Hvar er best að fá ljósleiðara?
Sent: Fim 13. Ágú 2009 19:13
af Dagur
Ég er með ljósleiðara hjá tali og er mjög sáttur. Það er alveg hægt að nota sinn eigin router, þú þarft ekki einu sinni að biðja um það
Re: Hvar er best að fá ljósleiðara?
Sent: Fös 14. Ágú 2009 12:04
af ManiO
Dagur skrifaði:Ég er með ljósleiðara hjá tali og er mjög sáttur. Það er alveg hægt að nota sinn eigin router, þú þarft ekki einu sinni að biðja um það
Hvernig fékkstu User og Pass? Þurftiru heldur ekki að virkja MAC addressuna?
Vill endilega líka heyra í einhverjum frá Hringiðunni.
Re: Hvar er best að fá ljósleiðara?
Sent: Fös 14. Ágú 2009 13:25
af Dagur
ManiO skrifaði:Dagur skrifaði:Ég er með ljósleiðara hjá tali og er mjög sáttur. Það er alveg hægt að nota sinn eigin router, þú þarft ekki einu sinni að biðja um það
Hvernig fékkstu User og Pass? Þurftiru heldur ekki að virkja MAC addressuna?
Vill endilega líka heyra í einhverjum frá Hringiðunni.
Maður þarf user og password fyrir orkuveitusíðuna sem kemur upp fyrst þegar þú ferð á netið. Mig minnir að þeir hafi látið mig hafa það þegar ég byrjaði með ljósleiðarann, annars er bara hægt að biðja um það.