Síða 1 af 1

HD klippiforrit - video editing

Sent: Mið 15. Júl 2009 11:36
af Gothiatek
Var að fjárfesta í Canon SX200 IS vélinni sem býður uppá upptökumöguleika í HD 720p.

Er að leita að klippiforrit, bara svona þar sem hægt er að klippa vídjóin til og bæta við texta...basic stöff. Einnig vil ég get exportað video annarsvegar til að geta streamað í PS3 tölvuna í HD gæðum og hinsvegar fyrir vefinn (FLV væntanlega).

Hef aðeins verið að googla en nenni ekki að vera ná í trial af hinu og þessu...ég er ekki að fara nota Windows Movie Maker!

Re: HD klippiforrit - video editing

Sent: Mið 15. Júl 2009 13:58
af KrissiK
Sony Vegas Pro 8?

Re: HD klippiforrit - video editing

Sent: Mið 15. Júl 2009 18:22
af Gúrú
Ég myndi einnig mæla með Sony Vegas Pro x.

Re: HD klippiforrit - video editing

Sent: Mið 15. Júl 2009 19:46
af KermitTheFrog
Hef notað Vegas Pro 8 í allt mitt. Prufaði 9 en það var bara eitthvað svo óþægilegt á litinn.

Re: HD klippiforrit - video editing

Sent: Mið 15. Júl 2009 20:49
af hagur
Ulead VideoStudio 11 er líka ágætt .... fyrir utan þann fáránlega eiginleika að það er alltaf maximized á skjánum og því er ekki hægt að færa það yfir á annan skjá, ef þú ert með fleiri en einn skjá við tölvuna.

Re: HD klippiforrit - video editing

Sent: Fim 16. Júl 2009 12:11
af Gothiatek
Takk fyrir þetta. Sýnist Sony Vegas Pro x vera málið. Nú er bara að finna bestu mögulegu leiðina til að exporta video í HD formatti.

Fann þennan guide sem mér sýnist gefa góð ráð ef einhverjir hafa áhuga: http://eugenia.gnomefiles.org/2007/11/09/exporting-with-vegas-for-vimeo-hd/