Síða 1 af 1
Smá hjálp
Sent: Fim 18. Jún 2009 22:39
af Krissinn
Hvernig breytir maður þannig að tegundin á tildæmis mynd .jpg sjáist ekki. Ítölvunni minni er þetta svona við hverja skrá. Eins og fyrir aftan nafn á öllum myndum stendur .jpg og ég vil geta falið þetta. Hvernig geri ég það
Re: Smá hjálp
Sent: Fim 18. Jún 2009 22:57
af Starman
Re: Smá hjálp
Sent: Fim 18. Jún 2009 22:57
af mind
Fer eftir stýrikerfi.
Ef windows XP þá t.d. Explorer(Windows takki + E)
Tools > Folder Options > View > [X] Hide extensions for known file types
Re: Smá hjálp
Sent: Fim 18. Jún 2009 23:35
af Krissinn
takk allir
Re: Smá hjálp
Sent: Fim 18. Jún 2009 23:41
af dori
Þú vilt þetta kannski ekki. Hugsaðu aðeins um það allavega fyrst. Þetta opnar nefnilega fyrir það að einhver óprúttinn aðili búi til forrit og kalli það flottmynd.jpg.exe, láti iconið vera svipað og myndaicon í Windows og sendir þér það svo. Þú sérð endinguna .jpg og heldur að allt sé í lagi og svo er tölvan þín allt í einu komin með vírusa.
Hugsaðu allavega málið, mér finnst það að fela endingar hræðilegur fítus og alveg fáránlegt að hann skuli vera default í XP.
Re: Smá hjálp
Sent: Fös 19. Jún 2009 00:50
af SteiniP
dori skrifaði:Þú vilt þetta kannski ekki. Hugsaðu aðeins um það allavega fyrst. Þetta opnar nefnilega fyrir það að einhver óprúttinn aðili búi til forrit og kalli það flottmynd.jpg.exe, láti iconið vera svipað og myndaicon í Windows og sendir þér það svo. Þú sérð endinguna .jpg og heldur að allt sé í lagi og svo er tölvan þín allt í einu komin með vírusa.
Hugsaðu allavega málið, mér finnst það að fela endingar hræðilegur fítus og alveg fáránlegt að hann skuli vera default í XP.
Þá færðu þér vírusvörn sem skannar incoming skrár (t.d. Avast) og þarft ekkert að hafa áhyggjur af þessu.
Ég hef hinsvegar aldrei skilið fólk sem að felur skráarendingar af fúsum og frjálsum vilja. Alltaf að það fyrsta sem ég geri eftir að ég set upp windows er að birta þær.