Síða 1 af 1
Windows server 2003 vandamál!!
Sent: Sun 07. Jún 2009 06:40
af Krissinn
Er búinn að setja upp windows server 2003 á einni vél en ég fæ ekki netið til að virka í sjálfri tölvunni og heldur ekki á domain svæðunum :S vildi gjarnan fá smá hjálp
tek það fram að Windows server er alveg nýtt fyrir mér
Re: Windows server 2003 vandamál!!
Sent: Sun 07. Jún 2009 13:44
af lukkuláki
Veit ekki hversu grænn þú ert
Ertu búinn að setja upp alla driverana ?
Re: Windows server 2003 vandamál!!
Sent: Sun 07. Jún 2009 13:50
af Krissinn
ekki alveg alla en net driverinn er í tölvunni, netið virkaði alveg áður en ég virkjaði domain controller-inn?
Re: Windows server 2003 vandamál!!
Sent: Sun 07. Jún 2009 15:44
af Gullisig
Er nú ekki alveg viss hvað er að hjá þér ,,, en hefurðu sett upp routing and remote access ,,, eða skoðað eitthvað dns og joinað notendum í öðrum tölvum á domainið
Re: Windows server 2003 vandamál!!
Sent: Sun 07. Jún 2009 16:39
af Krissinn
hef stillt eina tölvu á lénið en fæ ekki netið til að virka á henni. Held að ég þurfi að setja inn þetta DNS eða eitthvað... þetta er bara eitthvað stillingar atriði sem ég þarf að laga en bara kann það ekki
Re: Windows server 2003 vandamál!!
Sent: Sun 07. Jún 2009 18:13
af Gullisig
krissi24 skrifaði:hef stillt eina tölvu á lénið en fæ ekki netið til að virka á henni. Held að ég þurfi að setja inn þetta DNS eða eitthvað... þetta er bara eitthvað stillingar atriði sem ég þarf að laga en bara kann það ekki
Þá er bara að lesa sig til ,, þetta kemur ekki á einni nóttu.