Síða 1 af 1

Er til forrit..

Sent: Fim 04. Jún 2009 18:25
af Molfo
sem virkar eins og Driver Detective nema frítt??

Allar ábendingar vel þegnar.

Kv.

Molfo

Re: Er til forrit..

Sent: Fim 04. Jún 2009 22:11
af KermitTheFrog
DriverGenius?

Re: Er til forrit..

Sent: Fim 04. Jún 2009 22:15
af SteiniP
Þú getur lært hvaða vélbúnaður er í tölvunni þinni og sett upp viðeigandi drivera. Það er ókeypis :roll:

Re: Er til forrit..

Sent: Fös 05. Jún 2009 09:55
af Molfo
Heyrðu já það er sniðugt... :? en þegar maður er með afdankaða 10 ára gamla vél þá er ekki alltaf það auðveldasta í heimi að finna driver og dót fyrir það..

Driver Genius er ekki frítt samkv. því sem kemur fram á heimasíðunni þeirra.. :(

Re: Er til forrit..

Sent: Fös 05. Jún 2009 10:02
af ZoRzEr
Sækir driver pakkana af http://driverpacks.net/DriverPacks/ - Sound A eða B fer eftir vélinni, Graphics A, og LAN. Þá ertu nokkurn veginn kominn með alla driverana sem þú þarft.

Ferð í þráðinn http://forum.driverpacks.net/viewtopic.php?id=2403 á sömu síðu.

Notar þetta forrit til að finna HWID og setur upp driverana úr pakkanum. Það eru leiðbeiningar í þræðinum hvernig þú ferð að því.

Þetta er best þegar þú ert með alveg óþekkta vél sem þú veist ekkert um og ert að reyna setja upp driverana. Þetta forrit finnur driverana sjálfvirkt, en þetta getur verið dálítið flókið, en virkar vel ef það tekst. Ég nota þetta þegar ég formata vélar, skelli bara USB lyklinum mínum með þessu uppsettu, keyri þetta og finn 99% alla drivera sem þarf.

Re: Er til forrit..

Sent: Fös 05. Jún 2009 11:30
af CendenZ
Molfo skrifaði:Heyrðu já það er sniðugt... :? en þegar maður er með afdankaða 10 ára gamla vél þá er ekki alltaf það auðveldasta í heimi að finna driver og dót fyrir það..

Driver Genius er ekki frítt samkv. því sem kemur fram á heimasíðunni þeirra.. :(



opnar vélina og skrifar það niður :wink:

Re: Er til forrit..

Sent: Fös 05. Jún 2009 13:30
af Molfo
Takk fyrir þetta ZoRzEr... kíki á þetta.

CendenZ.. það er nú hægara sagt en gert að finna drivera fyrir svona gamlar vélar þó svo að maður sé með allt niðurskrifað.. :( þannig að þess vegna var ég að vona að það væri til eitthvað svona patent lausn á þessu..

Re: Er til forrit..

Sent: Fös 05. Jún 2009 15:24
af AntiTrust
Ég hef verið að nota driveragent, finnst það best af þessum autodriverdecterum.

Hinsvegar ekki frítt, en þegar maður er að setja upp 1-4 vélar á dag þá er maður ekki mikið að pæla í nokkrum $.

Re: Er til forrit..

Sent: Fös 05. Jún 2009 15:33
af KermitTheFrog
Molfo skrifaði:Heyrðu já það er sniðugt... :? en þegar maður er með afdankaða 10 ára gamla vél þá er ekki alltaf það auðveldasta í heimi að finna driver og dót fyrir það..

Driver Genius er ekki frítt samkv. því sem kemur fram á heimasíðunni þeirra.. :(


Þá hef ég notað serials.ws til að fá serial númer fyrir það. Man allavega að ég notaði þetta á gömlu tölvuna mína.

Muna bara að downloada engu þaðan.