Síða 1 af 1

Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 16:09
af SteiniP
Er einhver hérna sem er hjá Tal og hefur fengið þá til að opna fyrir stillingarnar á routernum?
Ég er búinn að biðja þá nokkrum sinnum en fæ alltaf frekar vafasöm svör.
Þeir sögðu mér að ef ég fengi aðgang, þá beri ég sjálfur ábyrgð á routernum og missi þjónustu frá þeim. Ég sagði að það væri í góðu lagi. Hann sagðist ætla að senda inn beiðni og síðan hef ég ekki heyrt meira.
Alveg óþolandi að geta ekki opnað og lokað portum eins og mér sýnist og þurfa alltaf að gera það gegnum þriðja aðila.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 17:27
af Harvest
er það ekki bara:

192.168.1.254 og svo admin, admin (í user og pass) ?

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 17:30
af Gunnar
Harvest skrifaði:er það ekki bara:

192.168.1.254 og svo admin, admin (í user og pass) ?

nei það er 192.168.1.1 og svo það sem þú sagðir

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 17:56
af AntiTrust
Kemst ekki inná CP á þessu í gegnum http gateway né telnet.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 18:53
af SteiniP
Harvest skrifaði:er það ekki bara:

192.168.1.254 og svo admin, admin (í user og pass) ?

Það ætti að vera 192.168.1.1 en það kemur bara "page not found"
Tal læsa routerunum sínum þannig það er bara hægt að komast inn á hann frá þeirra enda.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 18:55
af Gunnar
kemmst inná hjá mér...
er með P-660HW-D1

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 20:09
af KrissiK
Gunnar skrifaði:kemmst inná hjá mér...
er með P-660HW-D1

sama hérna.. (Y)

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 20:13
af andr1g
192.168.1.1:87

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 20:15
af bridde
farðu í command prompt og Ipconfig

sláðu svo inn default gateway töluna í Browserinn. Kemstu virkilega ekki þar inn?
Ertu tengdur við router með snúru eða Wifi? Wifi er stundum soldið leiðinlegt með þetta hjá mér.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 20:19
af andr1g
IP Talan á routerinn er 192.168.1.1 eða 192.168.1.1:87.

Notabene Firefox lokar á port 87.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 22:50
af AntiTrust
bridde skrifaði:farðu í command prompt og Ipconfig

sláðu svo inn default gateway töluna í Browserinn. Kemstu virkilega ekki þar inn?
Ertu tengdur við router með snúru eða Wifi? Wifi er stundum soldið leiðinlegt með þetta hjá mér.


Routerarnir frá Tal eru læstir fyrir notendur.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Þri 12. Maí 2009 23:46
af SteiniP
Gunnar skrifaði:kemmst inná hjá mér...
er með P-660HW-D1

Hefurðu alltaf haft aðgang eða þurftirðu að biðja Tal um það sérstaklega?

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Mið 13. Maí 2009 00:04
af KermitTheFrog
Ég kemst inná minn og hef alltaf gert. Fékk router frá Hive þegar það var og hafði fullan aðgang að honum. Svo lentum við í einhverju veseni þegar við vorum búin að vera að borga fyrir 12Mb tengingu og fá einhverja 1Mb eða eitthvað í einhverja mánuði (þá var Hive orðið Tal). Fengum einhverja 6 routera og 2 tæknimenn til skiptis og enduðum með sama router og í upphafi en fengum 12Mb tenginuna.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Mið 13. Maí 2009 00:09
af AntiTrust
Ég var alltaf með aðgang inn á 660 routerinn þegar ég var með hann eftir stutt samtal við mann með viti í þjónustuverinu. Svo fengum við nýjann router upp á VOIP-ið, og eftir það lendi ég alltaf á e-rjum aulum sem bera því fyrir sig að það sé með öllu ómögulegt að gefa mér samband við eigin router. I call bigtime BS.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Mið 13. Maí 2009 01:16
af Gunnar
SteiniP skrifaði:
Gunnar skrifaði:kemmst inná hjá mér...
er með P-660HW-D1

Hefurðu alltaf haft aðgang eða þurftirðu að biðja Tal um það sérstaklega?

hef alltaf verið með aðgang.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Mið 13. Maí 2009 23:03
af SteiniP
Gunnar skrifaði:
SteiniP skrifaði:
Gunnar skrifaði:kemmst inná hjá mér...
er með P-660HW-D1

Hefurðu alltaf haft aðgang eða þurftirðu að biðja Tal um það sérstaklega?

hef alltaf verið með aðgang.

Þú hefur þá væntanlega byrjað hjá tal eða hive áður en þeir byrjuðu að læsa routerunun...

Ætli það sé ekki bara málið að hringja nógu oft og vera nógu pirrandi þar til þeir gefa eftir.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Mið 13. Maí 2009 23:08
af AntiTrust
Ég held að þrjóskan þeirra sé ekki vandamálið, heldur það að krakkarnir í þjónustuverinu vita sum EKKERT í sinn haus. Ég enda í 2/3 skiptum að biðja um "yfirmann" eða vera sendur þangað hvort sem er, fólkið sem vinnur þarna kannast ekki við hugtök eins og NAT eða QoS.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Fim 14. Maí 2009 09:42
af natti
AntiTrust skrifaði:Ég held að þrjóskan þeirra sé ekki vandamálið, heldur það að krakkarnir í þjónustuverinu vita sum EKKERT í sinn haus. Ég enda í 2/3 skiptum að biðja um "yfirmann" eða vera sendur þangað hvort sem er, fólkið sem vinnur þarna kannast ekki við hugtök eins og NAT eða QoS.


Hvað í ósköpunum ætti einstaklingur í þjónustuveri fyrir internet við einstaklinga að vita eitthvað um QoS nema að viðkomandi sé sérstakur áhugamaður um networking?
Það er ekkert sem viðkomandi þarf að vita um QoS til að geta sinnt starfi sínu sem er þjónusta við einstaklingsmarkað.

Re: Tal og aðgangur að routerum

Sent: Sun 31. Maí 2009 00:58
af bjartman
Strákar ekki nenntuð þið sem hafið aðgang að tal/hive að segja mér helstu stillingarnar sem eru til að stilla netið, þar að setja vpi, vci, multiplexin (llc eða vc) og svo hvort það er PPPoE eða PPPoA. Held að þetta eru helstar, ef það eru einhverjar fleiri væri gaman að fá.

takk takk