Síða 1 af 1
get ekki installað windows
Sent: Lau 02. Maí 2009 17:00
af sakaxxx
málið er að tölvan virðist ekki finna neitt geisladrif þegar ég reini að installa windows en ég hef prufað 2x geisladrif en hvorugt virkar ég hef einnig prufað að nota aðrar snúrur en ekkert virðist virka .
þetta gerðist eftir að harðidiskurinn með styrikerfið krassaði.
þetta er k8n neo4 móðurborð gæti verið að móðurborðið sé ónýtt?
Re: get ekki installað windows
Sent: Lau 02. Maí 2009 17:55
af KrissiK
fara yfir BIOSinn hjá þér? , eða loada Fail Safe settings ?
Re: get ekki installað windows
Sent: Lau 02. Maí 2009 18:46
af lukkuláki
Er þetta rétt stillt í BIOS ?
farðu í BIOS [DEL]
Breyttu boot up röðinni og settu boot from DVD/cd first
síðan HDD0
Ef þetta er þannig stillt þá er spurning hvort þú ert með bootable disk ?
Re: get ekki installað windows
Sent: Lau 02. Maí 2009 22:30
af mainman
Nýji diskurinn þinn er vitlaust jumpaður.
Re: get ekki installað windows
Sent: Sun 03. Maí 2009 13:04
af bridde
Móðurborðið er allavega í lagi
Þú ert ekki búinn að stilla í bios að tölvan leiti fyrst á cd drifinu, Og þarsem að diskurinn þinn er tómur/dáinn/ekki með stýrikerfi þá færðu þessa meldingu.
Re: get ekki installað windows
Sent: Fös 08. Maí 2009 20:41
af KermitTheFrog
Getur verið að þú þurfir að stilla jumper á geisladrifinu úr slave yfir í master?
Re: get ekki installað windows
Sent: Lau 16. Maí 2009 17:00
af sakaxxx
nú er þetta næstum því komið i lag nú er vandamálið að tölvan ætlar sér að installa windowsið af floppydrifinu sem er ekki einusini tengt
floppydrifið er drif A
hvernig breyti ég nafninu á drifunum í biosinum ég virðist ekki geta fundið það
svo að geisladrifið sé drif A