mmm samsæriskenningar frá mönnum sem vita ekki hvernig Internetið virkar.... augljóslega vilja allir ISPar, öll fyrirtæki reyna græða sem mest á Internetinu.
Þetta er eithvað fólk sem er svo high að það eru örugglega ekki fyndið að það segist hafa séð einhvern samning milli "allra" ISPa að þeir ætli að loka Internetinu 2012 ( Já vegna þess að allir ISPar geta haldið kjafti með NDA samning ). Það eru bara svo margar rangfærslur, ohh sérstaklega við að horfa á
http://www.youtube.com/watch?v=puaYLiUu ... re=related shit þetta er það heimskulegasta sem ég hef heyrt ( tengt en samt ótengt ). Ástæðan fyrir að þetta er svo heimskulegt er vegna þess að hann segir að það sé 10,000 sinnum hraðvikrara ( allt að því ), en svo nefnir hann að allar tengileiðir séu fiber. Internetið sjálft er ekki skipulagt þannig til að þess að hámarka hraða, það fer bara jafn hratt og tengingar eru á milli aðila. Þetta snýst um hardware ekki hugmyndina af því hvernig Internetið virkar. Þetta er heimskulegasta viðtal sem ég hef heyrt og að Fox hafi ekki fengið einhvern lélegan network engineer til að koma þarna og hlæja að þessu gæja allan tímann er ótrúlegt.
Hins vegar hreinlega vegna þess hvernig bæði Internetið virkar og hvernig fyrirtæki virka og hversu litlar aðgangshindrandir eru á markðinum er ólíklegt að fyrirtæki eins og Comcast,AT&T,Time-Warner og fleirri ( stórir ISPar í Bandaríkjunum sem hefur oft viljað setja upp hindranir þannig að content-providerar borgi ispum fyrir að koma efninu sínu hratt til skila. Þannig að þeir sem borga þeim fá hraðan aðgang, hinir hægan ).
Gott dæmi um afhverju þetta gengur illa er Cogent Co. ISPi sem er næstum því orðinn Tier-1 ( er eiginlega orðinn Tier 1, en eins og ég skil það, þá borga þeir ennþá Level 3 fyrir tengingu sín á milli og þess vegna fær Cogent ekki að heita Tier1 ). Basicly er málið þannig að eru til fullt af ISPum, t.d. eins og Síminn, Síminn þarf svo að greiða öðrum ISPum fyrir "transit" það er að bera umferðina þeirra yfir á önnur netkerfi, Tier 1 tengist öllum stærstu aðilunum ( öðrum Tier 1 ) gjaldfrjálst og greiðir þess vegna engum fyrir Internet traffík. Ástæðan fyrir því að ég nefni Cogent, er að Cogent kom seint inná markaðinn og þursaði sér uppí að vera Tier 1, gerði allt vitlaust oft, sleit oft tengingum við aðra aðila bara til að fá sínu fram, en selur bandvíddina sína töluvert ódýrari en aðrir þannig að þeir fengu stóra content-providera á bak við sig og þetta varð að efni sem að viðskiptavinir hinnar ISPana hreinlega urðu að komast í og þess vegna komst Cogent í þessa stöðu sem þeir eru núna.
Ástæðan fyrir því að ég nefni Cogent, er að þetta er einmitt vandamál annara ISPa. Ef að jafnvel stóru ISParnir út í Bandaríkjunum myndu taka sig til og segja "Content-providerar þið verðið að borga premium gjald" þá myndu neytendur hugsa, djöfullinn afhverju er internet mitt svona hægt. Lítil fyrirtæki ( eða önnur stór sem vilja verða stærri ) myndu hreinlega segja, fáðu ALLT internetið á miklu lægra verði og mynud þannig keyra ISPana sem eru að takmarka content útaf markaðinum. Og vegna þess hvernig Internetið er byggt, myndu þetta skipta engu máli, það helsta sem gæti gerst er að ISPar sem vilja vernda net-neutarility ( þar sem það eru líka þeirra hagsmunir ) myndu hreinlega hafna rútum frá þessum ISPum sem eru að haga sér eins og fávitar og ennfremur skaða viðskiptin.
Þannig myndu "ósýnilega" höndin leiða markaðinn aftur í 100% net-neutrality vegna þess að það er það sem markaðurinn vill. Það er það sem gerðist hérna heima á Íslandi, bandvídd yfir FARICE varð of dýr, það sér enginn hag að fara á markaðinn og bjóða uppá meira gagnamagn vegna þess að þeir sjá ekki fram á hagnað á því.
Hins vegar býst ég við því að Internet breytist samt, þeir sem eiga höfundarréttarvarið efni muni fatta það að hraði skiptir öllu máli. Þess vegna býst ég hreinlega við því að bíómyndir munu verða til á "net"leigum um leið og þær koma út í bíó. Og að þættir munu hætta verða þættir fyirr ákveðin landsvæði á ákveðnum tímum, vegna þess að það er það sem markaðurinn vill. Fá efnið strax og það kemur út. Við munum þurfa greiða fyrir efnið þrátt fyrir allt og þegar fólk mun sjá þjónustuna verður betri ( eins og til dæmis með lausnum eins og Skjárinn ) að það er ekki fyrirhöfninar virði eða óttans við lögsókn virði að sækja í efnið í ólöglega. Höfundarétthafar þurfa bara átta sig á því að fólk vill fá efnið strax og það er komið einhversstaðar út og með lítilli fyrirhöfn og geta notað það eins og það vill.