Síða 1 af 2

Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 01:50
af KermitTheFrog
Afhverju lítur taskbarinn í Win 7 hjá mér ekki svona út? Þetta er bara eins og Vista hjá mér

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 02:01
af oskarom
Lítur út fyrir að vera pre-Beta, hvaða build er þetta?

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 02:33
af KermitTheFrog
6801. Downloadaði þessu reyndar bara þegar betunni var releasað.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 03:42
af viddi
Það er eldgamalt, reddaðu þér build 7077

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 12:04
af KermitTheFrog
Ég á 7057, er mikill munur á þeim?

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 12:14
af supergravity
Neinei, settu þá upp 7057, það er ltill munur miðað við stökkið sem þú ert að taka úr 6801.. Svo er komin 7103 minnir mig sem er ansi nálægt því að vera RC.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 12:30
af KermitTheFrog
Ok get ég downloadað einhverju update .exe eða þarf ég að skrifa .iso á disk?

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 12:41
af viddi
Held að þú eigir að geta mountað iso í virtual drif og keyrt upgrade

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 13:23
af KermitTheFrog
Nú, jæja. Athuga í kvöld eftir vinnu

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 17:35
af oskarom
6801 er preBeta, 7000 og hærra er Beta endilega drífðu þig að henda því upp og prófa get lofa því að þú verður ekki fyrir vonbrigðum.

Síðan er RC1 væntanlegur, hef heyrt um að hann sé dott inn inná MSDN og TechNet plus en ekki fengið það staðfest síðan var talað um að hann kæmi á netið official fyrir public 5. Maí en það er ekkert staðfest. Get ekki beðið! enda búinn að vera með build 7000 síðan það kom út og hef sjaldan keyrt jafn stöðugt stýrikerfi....


kv.
Oskar

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 17:51
af bridde
Ég fíla Windows7

En Ubuntu með Compiz plugin finnst mér mun flottara samt.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 20:20
af KermitTheFrog
Win 7 er að virka í botn hjá mér. Búinn að keyra það í ca. viku á skólalappanum mínum sem ég hélt að Win 7 væri algert overkill fyrir þar sem hann skeit á sig með Vista, en sú varð ekki raunin.

Er að fara að uppfæra þetta núna

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 20:23
af GuðjónR
Win7 er bara æði!

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 20:46
af KermitTheFrog
Er x86 ekki það sama og 32bit?

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 21:01
af TechHead
x86 = 32 bit
x64 = 64 bit

Er að keyra Win 7 build 7103 á Am3 x920 m 4gb og það er snilld þetta kerfi.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Sun 19. Apr 2009 21:13
af KermitTheFrog
TechHead skrifaði:x86 = 32 bit
x64 = 64 bit

Er að keyra Win 7 build 7103 á Am3 x920 m 4gb og það er snilld þetta kerfi.


Það er það sem ég leitaðist eftir.

Turns out að þetta build 7057 hjá mér var x64 og þarf ég því að downloada 32bit útgáfu og fann bara x86 download með góðum download hraða

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 01:04
af KermitTheFrog
Win 7 leyfir mér greinilega ekki að upgrada. Verð þá sennilega bara að formata :@

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 09:09
af viddi
getur verið afþví að þú ert með pre-beta á vélinni, ég hef alltaf getað upgradað frá build 7000

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 09:35
af KermitTheFrog
Datt það líka í hug

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 14:26
af Stebet
supergravity skrifaði:Neinei, settu þá upp 7057, það er ltill munur miðað við stökkið sem þú ert að taka úr 6801.. Svo er komin 7103 minnir mig sem er ansi nálægt því að vera RC.


Smá leiðrétting...

7077 er úr RC branchinu og mjög nálægt því að vera RCinn.
7103 er sama build og 7076 nema úr RTM branchinu þannig að tæknilega séð er 7077 nýrra en 7103 og örugglega stabílla.

Annars eru bara nokkrir dagar í að RCinn (sennilega merktur 7100) komi.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 20:37
af KermitTheFrog
Nú er build 7077 komið upp hjá mér en kerfið virðist ekki taka við WLAN drivernum sem er bara til fyrir XP fyrir tölvuna mína.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 20:56
af blitz

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 21:52
af KermitTheFrog
Er eitthvað workaround til með þetta WLAN drivervesen. Tekst ekki að finna neitt á Google.

Þarf að fá þennan driver til að virka. Eða allavega driver fyrir þetta netkort sem virkar

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 23:16
af Stebet
KermitTheFrog skrifaði:Er eitthvað workaround til með þetta WLAN drivervesen. Tekst ekki að finna neitt á Google.

Þarf að fá þennan driver til að virka. Eða allavega driver fyrir þetta netkort sem virkar


Gætir prófað að tengja hana með netkapli ef þú ert með innbyggt netkort til að komast á Windows Update og sjá hvort Win 7 finnur driver þar, þ.e.a.s ef það virkar. Windows Update fann helling fyrir gamalt hardware hjá bróður mínum.

Re: Win 7 taskbar

Sent: Mán 20. Apr 2009 23:25
af KermitTheFrog
Stebet skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:Er eitthvað workaround til með þetta WLAN drivervesen. Tekst ekki að finna neitt á Google.

Þarf að fá þennan driver til að virka. Eða allavega driver fyrir þetta netkort sem virkar


Gætir prófað að tengja hana með netkapli ef þú ert með innbyggt netkort til að komast á Windows Update og sjá hvort Win 7 finnur driver þar, þ.e.a.s ef það virkar. Windows Update fann helling fyrir gamalt hardware hjá bróður mínum.


Athuga hvort ég geti grafið upp gamlan ethernet kapal og athuga málið.