Síða 1 af 1
HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Mið 15. Apr 2009 22:18
af hagur
Fannst þessi spurning betur eiga heima hér heldur en undir "Sjónvarpshornið" vegna augljósrar "tengingar" hennar við ljósleiðara ....
Er einhver hérna með HD myndlykil fyrir Vodafone Ljós?
Mig vantar upplýsingar um þennan myndlykil, einu upplýsingarnar sem ég finná vodafone.is eru um Digital Ísland HD afruglarann. Stórlega efast um að hann sé líka notaður fyrir ljósið.
Ef einhver er með þessa græju, má sá hinn sami vinsamlegast segja mér hvaða týpa þetta er og hvaða týpunúmer, eins ef viðkomandi á link á upplýsingar um hann á netinu.
Takk, takk.
Re: HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Mið 15. Apr 2009 22:44
af prg_
Þetta er Tilgin box, heitir Mood 400. Lítið mál fyrir þig að finna alls konar info um hann á netinu. Ég skal kippa þessu í liðinn með upplýsingarnar á vodafone.is
Láttu mig vita ef þú hefur einhverjar frekari spurningar, glad to help.
Re: HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Mið 15. Apr 2009 22:51
af ManiO
prg_ skrifaði:Þetta er Tilgin box, heitir Mood 400. Lítið mál fyrir þig að finna alls konar info um hann á netinu. Ég skal kippa þessu í liðinn með upplýsingarnar á vodafone.is
Láttu mig vita ef þú hefur einhverjar frekari spurningar, glad to help.
Til í að gefa yfirmönnum þínum gott spark í rassinn í leiðinni? Enda eru það þeir sem eru til vandræða.
Re: HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Mið 15. Apr 2009 22:53
af hagur
Þakkir til prg_
Re: HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Mið 15. Apr 2009 23:00
af hagur
Er þetta apparatið semsagt?
http://www.netmedia.fi/pdf/mood400.pdf Ef svo er þá er það algjör bömmer fyrir mig að það skuli ekki vera component-out tengi á þessu
Digital Ísland HD afruglarinn er með HDMI og Component og ég þarf að nota bæði. Að hafa eingöngu HDMI er so much of the suck.
Oh well.
Re: HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Mið 15. Apr 2009 23:59
af prg_
Því miður er ekkert component out á Mood 400 boxinu, það er rétt! Bömmer að það sé akkúrat það sem þig vanti.
Veit annars ekki hvaða yfirmenn eru til vandræða, mínir eru allir algjörar dúllur!
Re: HD afruglari fyrir Vodafone ljós
Sent: Fim 16. Apr 2009 00:47
af CendenZ
prg_ skrifaði:Því miður er ekkert component out á Mood 400 boxinu, það er rétt! Bömmer að það sé akkúrat það sem þig vanti.
Veit annars ekki hvaða yfirmenn eru til vandræða, mínir eru allir algjörar dúllur!
það er bara á vel flestum top boxum að það er ekki öll tengi í boði, enda minnir mig að það séu ákveðin gjöld fyrir framleiðendur að hafa tengi á boxinu.
höfundarréttarvarin tengi ?