Síða 1 af 1

Vandamál í Windows.

Sent: Sun 12. Apr 2009 23:01
af Gunni
Sælir. Langar til að athuga hvort einhver hérna kannast við vandamál sem hefur verið að stríða mér undanfarið og hefur þá einhverja lausn á málinu.

Þannig er mál með vexti að undanfarið hefur tölvan tekið upp á því reglulega að "slökkva" á sér án nokkurs fyrirvara og upp á skjáinn kemur blár skjár þar sem stendur eitthvað á þessa leið: " A problem has been detected and windows has been shut down to prevent damage to your computer.
If this is the first time you've seen this stop error screen, restart your computer.
Technical information:
***STOP: 0X0000007B (0XF78E2524, BXC0000034, 0X00000000, 0X00000000)"

Þetta hefur verið að koma upp ansi oft nýlega og virðist engu breyta hvað verið er að gera í tölvunni þegar þetta á sér stað. En hvað um það, ef einhver kannast við vandamálið og er með hugmynd að lausn væri gríðarlega vel þegið að sá hinn sami léti heyra í sér. :)

Re: Vandamál í Windows.

Sent: Þri 14. Apr 2009 01:12
af BrynjarDreaMeR
Ertu búinn að vera breyta einhver af involsi tölvunnar ? Vinnsluminni eða ?
Tölvan gæti líka verið að ofhitna. Semsagt komið of mikið ryk inní hana ?

Re: Vandamál í Windows.

Sent: Þri 14. Apr 2009 02:02
af einarhr

Re: Vandamál í Windows.

Sent: Þri 14. Apr 2009 23:09
af Gunni
Heyrðu já, ég reyndar bætti við vinnsluminni nýlega. Getur það verið skýringin ?