Síða 1 af 1

Stillingar í IIS í windows 2003

Sent: Lau 29. Nóv 2003 13:40
af Palm
Mig vantar smá hjálp - ég er að fara að setja upp nokkrar vefsíður (mismunandi domain) sem ég ætla að setja upp á eigin win 2003 server.

1. Hvernig get ég still IIS þannig að ákveðið url vísi á réttan vef.
Mér tókst einhvern veginn að stilla þetta í win xp fyrir eitt url en nú er ég með mörg url (og win 2003) sem öll vísa á sömu tölvuna og þarf að stilla þetta rétt í IIS.
Ég er að nota DNS park fyrir dns hýsinguna.
Ég er að keyra asp og asp.net vefi á þessari tölvu.

2. Í IIS og default web site þá er hægt að hægri klikka og smella á new og þar eru nokkrir möguleikar - hvaða munur er á öllum þessum möguleikum (virtual directory vs. server extension web vs. new website vs....) - ég er ekki alveg að skilja muninn á þessu öllu.

3. Undir deafult web site þá birtast allir vefir sem eru á tölvunni - í listanum þá eru mismunandi icon (möppu icon og svo eitthvað annað) - hver er munurinn á þessum vefum?

4. Eru þið með einhver góð tips þegar maður er að setja inn svona vef - hvað þarf að varast og hvað er gott að gera. Ég er frekar nýr í þessum þessum uppsetningum er meir í forritun.


Palm

Sent: Lau 29. Nóv 2003 13:52
af Fletch
Til að hýsa marga vefi á IIS notar þú host headers. Undir website flipanum í advanced getur stillt host headers, sagt að þetta site svari t.d. http://www.mbl.is og mbl.is á meðan annað svari t.d. http://www.visir.is og visir.is

Mæli með að þú hafir default web site'ið svona upplýsingablaðsíðu, ef hún finnur engan hostheader sem passar sendir hún notandanum default web site'ið...

Fletch

Sent: Lau 29. Nóv 2003 14:53
af Palm
Takk fyrir þetta.

Hvar stilli ég svo hvar hvaða vefir eru sýnilegir útávið og hverjir sjást einungis á localhost?

Hákon

Sent: Lau 29. Nóv 2003 15:07
af Palm
Ég sé engann website flipa og þess vegna engann advanced takka.

Einu fliparnari sem ég sé þegar ég fer í properties eru:
virtula directory - documents - directory security - http headers - custom errrors - bits server extension

Eru til einhverjar mismunandi útgáfur af win 2003 þar sem þetta getur verið disablað?

Palm

Sent: Lau 29. Nóv 2003 15:26
af Palm
Fann þennan website flipa - ég var alltaf að skoða properties á vefnum í staðinn fyrir properties á default website :)

Ef þið hafið einher svör við hinum spurningunum mínum þá endilega pósta.

Palm

Sent: Lau 29. Nóv 2003 15:59
af Voffinn
Ég er nú ekki með nein svör handa mér, en ég hef eina spurningu handa þér :)

Af hverju í ósköpunum IIS ? :)

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:01
af gumol
Voffinn skrifaði:Ég er nú ekki með nein svör handa mér, en ég hef eina spurningu handa þér :)

Af hverju í ósköpunum IIS ? :)

líklega því það er góður innbygður webserver í windows

Re: Stillingar í IIS í windows 2003

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:05
af Fletch
Palm skrifaði:
2. Í IIS og default web site þá er hægt að hægri klikka og smella á new og þar eru nokkrir möguleikar - hvaða munur er á öllum þessum möguleikum (virtual directory vs. server extension web vs. new website vs....) - ég er ekki alveg að skilja muninn á þessu öllu.

3. Undir deafult web site þá birtast allir vefir sem eru á tölvunni - í listanum þá eru mismunandi icon (möppu icon og svo eitthvað annað) - hver er munurinn á þessum vefum?

4. Eru þið með einhver góð tips þegar maður er að setja inn svona vef - hvað þarf að varast og hvað er gott að gera. Ég er frekar nýr í þessum þessum uppsetningum er meir í forritun.


hmm Þú átt að búa til nýtt website fyrir hvern vef, stillir hostheaders bara rétt og setur hvern vef í sitt eigið folder, ættir ekki að sjá hina vefina undir default website, nema þú sért að setja þá undir default wwwroot directory'ið.. settu þá bara í sér dir annarsstaðar á disknum.

tips, passaðu bara að læsa vélinni vél og vera með hana up-to-date..

Fletch

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:05
af Palm
Voffinn: Ég sé linux merkið glampa í augunum á þér :)

Ég er að keyra asp og asp.net vefsíður á vélinni og þá eru nú ekki margir kostir í stöðunni.

Hvað er annars Linux maður að gera inn á windows umræðum? :)

Palm

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:07
af Fletch
Bara einhver árátta hjá linux köllum.. Ég hef rekið IIS vefi í mörg ár án vandkvæða...

eins og alltaf, bara passa öryggismálin og hafa vélina up-to-date

Fletch

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:11
af gumol
Palm skrifaði:Voffinn: Ég sé linux merkið glampa í augunum á þér :)

Ég er að keyra asp og asp.net vefsíður á vélinni og þá eru nú ekki margir kostir í stöðunni.

Hvað er annars Linux maður að gera inn á windows umræðum? :)

Palm

Flesstir hérna sem eru eitthvað aktívir skoða alla þræði, sama hvar þeir koma. Svo er voffinn líka þráðstjóri eins og hann bendir á fyrir ofan linux mörgæsina :P

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:37
af Palm
Þetta er allt að skýrast - samt ennþá einhver vandamál.
Ég var alltaf að nota virtual vef undir default website en bjó ekki til nyjan vef - núna sé ég þennan host header á vefnum mínum.

ÉG er bara með eina ip tölu og get ekki búið til nýjan vef sem er líka á porti 80 - ekki satt?
Þannig að ég bjó hann til á öðru porti (81) og ætlaði svo bara að láta dnspark vísa á ip tölu og port en mér sýnist að það sé ekki hægt hjá þeim. Er ég eittvað að misskilja :) - eða á þetta ekki að vega hægt?

Hvar er það stillt þannig að maður fái ekki upp login glugga þegar maður fer inn á ákveðinn vef - það kemur núna ef ég reyni að tengjast domaini.

Takk fyrir öll svörin.

Palm

Sent: Lau 29. Nóv 2003 16:40
af Fletch
Palm skrifaði:Þetta er allt að skýrast - samt ennþá einhver vandamál.
Ég var alltaf að nota virtual vef undir default website en bjó ekki til nyjan vef - núna sé ég þennan host header á vefnum mínum.

ÉG er bara með eina ip tölu og get ekki búið til nýjan vef sem er líka á porti 80 - ekki satt?
Þannig að ég bjó hann til á öðru porti (81) og ætlaði svo bara að láta dnspark vísa á ip tölu og port en mér sýnist að það sé ekki hægt hjá þeim. Er ég eittvað að misskilja :) - eða á þetta ekki að vega hægt?

Hvar er það stillt þannig að maður fái ekki upp login glugga þegar maður fer inn á ákveðinn vef - það kemur núna ef ég reyni að tengjast domaini.

Takk fyrir öll svörin.

Palm


Já, þú ert að misskilja... ;)
Þú átt að búa til alla vefina sem nýtt website, allir geta keyrt á sömu IP tölu og allir á port 80 (annars þurfa notendur að skrifa portnúmer í browser).
IIS'in aðgreinir svo milli vefa með hostheaders, client'in requestar mbl.is og er sent site sem er með hostheader mbl.is, næsti biður um visir.is og er sent site með hostheader visir.is, etc...

getur þess vegna verið með mörg hundruð/þúsund vefi á sama IP/porti

Fletch

Sent: Lau 29. Nóv 2003 17:01
af Palm
Ok - en fyrst þegar ég reyndi að búa til vefinn þá kom villa um að það mætti ekki vera sama port eitthvað...ég misskildi þau skilaboð bara eitthvað. Annars þá ætlaði ég bara að dns-ið væri þannig skilgreint að þar væri sett inn ipaddressa:port og notandi þyrfit ekki að slá neitt inn - dns-ið sæi um .það.
Allavega mér tókst að breyta þessu í port 80 á öllum vefum.

Nún er mér samt alltaf samt vísað inn á index.htm síðu sem er í dafault vefnum þó að ég sé búinn að stilla host header ... einhver hugmynd af hverju það er?

Kannski ég ætti bara að fá þig Fletch til að hýsa þessa vefi fyrir mig :)
Ertu ekki annars að taka svoleiðis að þér?


Palm

Sent: Lau 29. Nóv 2003 18:26
af Fletch
yep, við gerum svoleiðis ;)

Fletch

Sent: Fim 04. Des 2003 16:49
af Fox
farðu í STart, veldu help, skrifaðu IIS6, & RTFM!