Síða 1 af 2

Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 20:48
af Tiger
Sælir, hvernig er besta leiðin fyrir mig til að magna upp þráðlaust net? Routerinn er á einum stað í húsinu og er svo til dautt þráðlaust net annarstaðar. Er til einhver magnari eða álíka til að staðsetja miðsvæðis til að hafa gott net útum allt?

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 21:59
af Gullisig
Þetta er fljótlegt ,, en hraðin er ekki svo mikill en ef þú ert bara að vafra þá virkar þetta ,,,, þetta færst hjá nýherja

https://www.netverslun.is/verslun/produ ... 0,363.aspx

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 22:15
af lukkuláki
Hef ekki prófað en kannski virkar þetta

http://www.computer.is/vorur/6538

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 22:25
af sakaxxx

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 22:59
af depill

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 23:03
af ManiO
depill skrifaði:Þetta virkar alltaf mega-vel http://www.youtube.com/watch?v=LY8Wi7XR ... annel_page

=D>

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 23:20
af Gullisig
depill skrifaði:Þetta virkar alltaf mega-vel http://www.youtube.com/watch?v=LY8Wi7XR ... annel_page

[-X

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Mið 01. Apr 2009 23:22
af GuðjónR
depill skrifaði:Þetta virkar alltaf mega-vel http://www.youtube.com/watch?v=LY8Wi7XR ... annel_page

hehehehe...

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fim 02. Apr 2009 01:34
af zedro
Djöf er ég að fara að prufa etta windsurfer dóterí :D

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fim 02. Apr 2009 09:12
af mind
Gætir látið bara alminnileg loftnet á búnaðinn t.d.
http://www.tl.is/vara/18084

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fim 02. Apr 2009 09:30
af viddi
Zedro skrifaði:Djöf er ég að fara að prufa etta windsurfer dóterí :D

Segjum tveir :D

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fim 02. Apr 2009 10:07
af Hyper_Pinjata
sakaxxx skrifaði:http://one-sick-psi-guy.blogspot.com/2008/09/windsurfer-wifi-tests.html
skaðar ekki að prófa

Þetta Helvíti Actually Virkar....

ég klippti hluta af Kellogg's pakka
sótti Álpappír
tók slatta af álpappír og vafði utan um "hliðina" af kellogg's pakkanum sem ég klippti af...
tók "klósettpappírsrúllu" (tóma) setti álpappír á hana (coveraði hana með álpappír) notaði svo Glært límband til að líma frá enda í enda á pakkahliðinni sem ég klippti af,og festi þannig að hún er beygð einhverjar gráður bara næstum eins og U eða eitthvað...setti svo klósettpappírsrúlluna á milli,festi með teipi og niðurstaða:

Fartölva með 54mb þráðlaust netkort
Staður: Neðri hæð (hæðinni fyrir neðan routerinn,steypugólf á milli)
Niðurstaða án "heimatilbúins Windsurfers" 36mbps / Good (Pingaði Borðtölvuna mína,sem er tengd locally) Avg 5 m/s Max 11 m/s
Niðurstaða með Heimatílbúnum Windsurfer: 54mbps / Excellent (Borðtölvuping) : Avg 2 m/s Max 5 m/s

þetta myndi ég kalla niðurstöður...og ég mæli með þessu :D

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fim 02. Apr 2009 12:11
af Gullisig
Hyper_Pinjata skrifaði:

Örugglega mjög myndarlegt þarna á stofuvegnum ..... og já hver hafi hugsað sér að álpappír endurkasti bylgjum ,,,, þannig að þeir sem setja álpappír á hausin á sér eru virkilega að trufla geimverurnar að lesa hugsanir sínar.

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fim 02. Apr 2009 12:51
af Tiger
mind skrifaði:Gætir látið bara alminnileg loftnet á búnaðinn t.d.
http://www.tl.is/vara/18084

Ef ég er með router sem er með loftnet, get ég skrúfað annað af og notað svona ásamt hinu sem verður eftir á routernum? (það sem ég meina er, eru bæði loftnetin á routernum að senda það sama nema bara tvölfalt eða er annað loftnetið fyrir eitthvað annað)

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 01:04
af Hyper_Pinjata
af hverju að eyða 3 til 9þús í loftnet þegar maður getur búið til mörg fyrir talsvert minni pening....

1. þarft "pappaspjald" (getur klippt af kelloggspakka)
2. Klósettpappírsrúllu
3. Álpappír
4. Skæri
5. Límband
6. Frítíma.....

Svo má náttúrulega bara vefja Koparvír inn í klósettpappírsrúlluna,og snúa því upp á loftnetið á routernum til að geta sett þetta á betri stað....er alveg handviss um að koparvírinn sé nógu sterkur til að pikka upp merkið og til að geta borið það...

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 09:20
af sakaxxx
Snuddi skrifaði:
mind skrifaði:Gætir látið bara alminnileg loftnet á búnaðinn t.d.
http://www.tl.is/vara/18084

Ef ég er með router sem er með loftnet, get ég skrúfað annað af og notað svona ásamt hinu sem verður eftir á routernum? (það sem ég meina er, eru bæði loftnetin á routernum að senda það sama nema bara tvölfalt eða er annað loftnetið fyrir eitthvað annað)

það er mismunandi eftir routerum hvort hægt sé að losa loftnetið þú ert enga stund að komast að því

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 09:27
af lukkuláki
Ég get ekki skrúfað loftnetið af routernum mínum þannig að ég fékk mér 7 dbi. loftnet á serverinn og það breytti mjög miklu styrkurinn er exellent sem áður var very low en svo er ég meö fartölvu á neðri hæð hússins sem hefur aldrei náð almennilegu signali fyrr en ég bjó til þetta windsurfer dæmi og það þrælvirkar :) ég er svo heppinn að routerinn er ekki upp á miðjum vegg heldur bak við þunnar gardínur svo þetta sést ekki neitt en virkar svona líka frábærlega.

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 09:32
af lukkuláki
Gullisig skrifaði:Örugglega mjög myndarlegt þarna á stofuvegnum ..... og já hver hafi hugsað sér að álpappír endurkasti bylgjum ,,,, þannig að þeir sem setja álpappír á hausin á sér eru virkilega að trufla geimverurnar að lesa hugsanir sínar.

Ætli fólk sé almennt með routerinn sinn á stofuveggnum ? ert þú það ?
...og þetta með geimverurnar trúir þú í alvöru að þær lesi hugsanir ?

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 11:40
af Gullisig
lukkuláki skrifaði:
Gullisig skrifaði:Örugglega mjög myndarlegt þarna á stofuvegnum ..... og já hver hafi hugsað sér að álpappír endurkasti bylgjum ,,,, þannig að þeir sem setja álpappír á hausin á sér eru virkilega að trufla geimverurnar að lesa hugsanir sínar.

Ætli fólk sé almennt með routerinn sinn á stofuveggnum ? ert þú það ?
...og þetta með geimverurnar trúir þú í alvöru að þær lesi hugsanir ?

Ég er ekki með minn router inn í stofu sá það í einu myndbandi ,,, en hvort það sé þar eða annarstaðar er þetta ekki snyrtilegt ,, að minni hálfu séð...

Varðandi geimverur ,,, ef þú lest að sem ég skrifaði ((((( þannig að þeir sem setja álpappír á hausinn á sér eru virkilega að trufla geimverurnar að lesa hugsanir sínar.)))))

þar sagði ég "þeir" ekki "ég" plús það þetta var """""Grín"""""

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 13:06
af KrissiK
því ekki bara að vera snúrutengdir? :lol: :8)

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 15:20
af Revenant
Síðan er líka pæling að búa til stefnuvirkt loftnet eins og pringles cantenna (yagi eða sjónvarpsgreiða) til að fá gott wifi merki.

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 15:47
af lukkuláki
KrissiK skrifaði:því ekki bara að vera snúrutengdir? :lol: :8)

Stundum þá er það einfaldlega ekki hægt

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 17:21
af sakaxxx
Revenant skrifaði:Síðan er líka pæling að búa til stefnuvirkt loftnet eins og pringles cantenna (yagi eða sjónvarpsgreiða) til að fá gott wifi merki.

ég bjó til cantenna en notaði stæðstu gerðina af piknik dós og það svínvirkar efnið sem þurfti í þetta kostaði um 1500kall

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 18:45
af Tiger
KrissiK skrifaði:því ekki bara að vera snúrutengdir? :lol: :8)

Því ég er með 3 fartölvur, og 2 iphone og fyrir iphonana þá virkar það víst ekki :). Og nei mig langar ekki að hafa klósettrúllu og kornflekkspakka inni hjá mér takk. Það er ekki hægt að skrúfa loftnetið af routernum því miður. Greinilega ekki margt hægt að gera nema fara í stundina okkar föndur sem heillar ekki

Re: Að magna upp þráðlaust net?

Sent: Fös 03. Apr 2009 19:17
af lukkuláki
Snuddi skrifaði:
KrissiK skrifaði:því ekki bara að vera snúrutengdir? :lol: :8)

Því ég er með 3 fartölvur, og 2 iphone og fyrir iphonana þá virkar það víst ekki :). Og nei mig langar ekki að hafa klósettrúllu og kornflekkspakka inni hjá mér takk. Það er ekki hægt að skrúfa loftnetið af routernum því miður. Greinilega ekki margt hægt að gera nema fara í stundina okkar föndur sem heillar ekki

Þá getur þú farið þá leiða að eyða peningum eins og er búið að benda þér á og kaupa eitthvað til þess að magna merkið