Síða 1 af 1

Eldveggur?

Sent: Mán 23. Feb 2009 00:43
af coldcut
Sælir

Þegar ég skipti nú um daginn í Antivir vírusvörnina þá fór ég að reyna að finna hvaða eldvegg ég ætti að nota með henni. Ég fann lítið um þetta á netinu en sá að um mitt síðasta ár var verið að mæla með Comodo, Sunbelt-Kerio, Online Armor og fleirum sem góðum eldveggjum.
Þannig að ég spyr hvaða eldvegg menn mæla með og þá með þessari vírusvörn?

-Hann má ekki vera með mikið að trufla mig nema þegar nauðsyn krefst, þarf helst að vera heldur "þögull"
-Þarf að vera traustur og öruggur
-Má alveg vera smá flókin, en engin geimflaugavísindi samt

og hvaða forrit eru menn að nota með vírusvörnunum og eldvegg?
eru spybot og ad-aware kannski ennþá þau bestu?

...og já kannski að minnast á það að ég vill að þetta sé frír hugbúnaður ;)