Síða 1 af 1
Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 00:39
af KermitTheFrog
Hvað varð um gagnamagnsmælinguna á erlendu downloadi sem maður gat séð á heimasíðu þeirra?? Þetta var heví nett en því miður finn ég þetta ekki núna. Bara búið að taka út? iss
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 08:29
af ponzer
Hef alltaf geta séð það á Vodafone síðuni, líklega því að sumar TAL tengingar eru á línum frá þeim.
Prófaðu
http://www.vodafone.is/internet/adsl/gagnamagn
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 08:51
af Gúrú
25.119,36 MB
24,53 GB
Vá bullskít, sæki ekkert erlent nema youtube og spjallborðssíður, og þetta eru niðurstöðurnar?
Bágt með þessu trúa ég á að.
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 09:36
af ManiO
Enda sama fyrirtækið í raun.
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 14:05
af Ordos
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 14:44
af KermitTheFrog
Hvort ætli þeir cappi eða rukki mann ef maður fer yfir 80 gígabætin??
EDIT:
Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Eftirfarandi atriði falla undir það að geta haft áhrif á eða skert þjónustu til annarra viðskiptavina. Ef erlent gagnamagn fer yfir sem svarar 80 GB á 30 dögum á 8 Mb og 12 Mb tengingum og 60 GB á 30 dögum á 1 Mb og 4 Mb tengingum, áskilur Tal sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar eða grípa til annarra ráðstafana til að draga úr notkun áskrifanda.
Hef samt ekkert tekið eftir neinni cöppun. Er samkvæmt teljaranum með 108GB í erlent niðurhal
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Fös 16. Jan 2009 15:12
af ManiO
KermitTheFrog skrifaði:Hvort ætli þeir cappi eða rukki mann ef maður fer yfir 80 gígabætin??
EDIT:
Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Eftirfarandi atriði falla undir það að geta haft áhrif á eða skert þjónustu til annarra viðskiptavina. Ef erlent gagnamagn fer yfir sem svarar 80 GB á 30 dögum á 8 Mb og 12 Mb tengingum og 60 GB á 30 dögum á 1 Mb og 4 Mb tengingum, áskilur Tal sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar eða grípa til annarra ráðstafana til að draga úr notkun áskrifanda.
Hef samt ekkert tekið eftir neinni cöppun. Er samkvæmt teljaranum með 108GB í erlent niðurhal
Færð rukkun býst ég við. Hringdu bara og spurðu.
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Þri 17. Feb 2009 23:01
af idle
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Mið 18. Feb 2009 00:07
af Dagur
Takk fyrir þetta. Það er greinilegt að þeir eru farnir að mæla ljósleiðarann líka.
Ég sé að ég þarf að downloada miklu meira en ég geri
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Mið 18. Feb 2009 16:29
af gardar
Tal voru að cappa mig núna í dag...Skv síðunni þeirra stendur þetta:
Febrúar 2009 (1. Febrúar - 28. Febrúar): 64.78 GB
Hringdi í þá og spurði afhverju ég væri cappaður... Þeir svöruðu að ég væri farinn yfir 80gb... Ég nefndi þá að staðan væri önnur skv síðunni þeirra og þá var mér sagt að síðan ætti eftir að uppfærast.
Andskotans rusl! Hef alltaf reitt mig á að skoða gagnamagnið á síðunni þeirra, en það er greinilega ekki nóg!
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Mið 18. Feb 2009 16:47
af dori
http://tal.is/index.aspx?GroupId=771 virðist sýna betri (nýrri) tölur en
http://notkun.hive.isLélegt samt að hafa úreld gögn þarna og taka það ekkert fram. Hvernig annars á maður að fylgjast með þessu?
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Mið 18. Feb 2009 17:50
af Arena77
Eru einhverjar internetveitur að bjóða ótakmarkað niðurhal í dag? Mér finnst samkeppnin í þessum bransa
alveg dottin niður í botn, eftir að siminn fór að takmarka þetta virðast allir vera að apa eftir
Re: Gagnamagnsmæling hjá Tal
Sent: Mið 18. Feb 2009 18:15
af GuðjónR
Það er engin samkeppni á internetmarkaði.